ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.4° 9m/s SE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Skilningslaus skríll

08:32 › 13. nóvember 2008

Dómsmálaráðherra Íslands er frábær náungi með einfaldan smekk. Hann er einlægur aðdáandi hervæðingar og hefur barist fyrir því lengst af sinni ráðherratíð að komið verði upp öflugu liði á Íslandi til að verjast hryðjuverkamönnum. Hann vill að valdstjórnin á Íslandi verði í senn virk og vel vopnum búin. Þannig er draumur ráðherrans sá að herlið hans fái rafbyssur til að geta lamað óvini ríkisins. Hann veit að ofbeldi er það eina sem dugar á þann skríl sem stöðugt heimtar upplýst lýðræði.

Skilningur á baráttu ráðherrans hefur verið sáralítill. Það lýsir þingmönnum landsins vel að þeir sjá ekki þá ógn sem steðjar að Íslandi. Þúsundir landa ráðherrans safnast saman á Austurvelli til að mótmæla ríkisstjórn og embættismönnum sem hafa leitt þjóðina á tímum erfiðleika sem eru Bretum, Hollendingum og Þjóðverjum að kenna. Sá skilningslausi múgur sem nú er að koma landinu á uppreisnarstig skilur ekki að flokkur ráðherrans, Sjálfstæðisflokkurinn, hefur stýrt efnahagsmálum af gríðarlegu öryggi. Yfirstandandi hrun er tilkomið vegna allra annarra en stjórnvalda. Auðjöfurinn sem náði sparifé út úr nágrannaþjóðum okkar með velútfærðri auglýsingaherferð ber heldur enga ábyrgð. Hann benti réttilega á að það eru ótímabær kaup almennings á flatskjáum sem settu bankana á hausinn. Svo það er eðlilegt að þjóðin borgi brúsann fyrir einkavæddan bankann með nokkrum ársverkum. Allir innan Sjálfstæðisflokksins vita að sjitt happens og það er ekki þeim að kenna. Þetta fattar ekki afgangur þjóðarinnar.

Þegar hluti Íslendinga er í þessum hugarheimi er nauðsynlegt að hafa uppi varnir gegn eigin þjóð. Ráðherrann hefur þegar lagt seðlabankastjóranum til nokkra lífverði og ráðherrar verið settir í lífvörslu. Þau endemi hafa nefnilega gerst að hluti Íslendinga telur að stjórnvöldum hafi mistekist og peningamálastefna Seðlabankans hafi leitt til glötunar. Það er misskilningur. Brjálaðir Bretar hafa ofsótt þjóðina eins og í þorskastríðinu forðum. Það er þeim að kenna að krónan hrundi og samfélagið er á barmi lömunar. Flestir utan Íslands eru fífl.

Lögreglan á Íslandi er á forræði ráðherrans og hann veit að þjóðarhagur veltur á því að henni takist að berja niður múginn þegar upp úr sýður vegna misskilnings. Lögregluliðið er einstaklega vel skipað og lýtur forystu einkavinar ráðherrans. Það tókst að hreinsa úr lögregluforingja nokkurn á Suðrnesjum sem ekki skildi að hann átti að vera í Sjálfstæðisflokknum og hlýða þeim reglum sem flokkurinn setur um ofsóknir á hendur óvinum lýðræðisins.

Vandi ráðherrans og foringjanna í löggunni er hins vegar skortur á tólum til valdbeitingar gegn þeim lýð sem ekki skynjar ábyrgð sína á því hvernig komið er. Valdbeitingarhundar sem löggan hafði þjálfað upp eru ýmist dauðir eða hafa verið reknir. Bryndreki sem hefði getað sómt sér vel á Austurvelli á laugardögum er fornbíll á þrítugsaldri, ef marka má lögregluna. Og varaliðið sem ráðherrann fékk samþykkt er eingöngu til þess að vakta fyllibyttur á sveitaböllum. Þetta er ófremdarástand sem ætti að bregðast við með fjárveitingum til lögreglumála. En það hlustar enginn á dómsmálaráðherra. Þess vegna stefnir í að hér verði óeirðir án þess að ríkislöggan fái rönd við reist. Einu varnirnar eru hjáróma lögreglumenn stormsveitar með kjölturakka og spreibrúsa sem hásum rómi veina: Gas, gas, gas, á óeirðaseggina sem raska ró máttvana valdstjórnar.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?