Suðurkjördæmi er merkilegt fyrir margra hluta sakir en þó stendur upp úr hversu mörgum furðufuglum það hefur skilað þjóðinni á Alþingi Íslendinga. Kjördæmið er án efa skemmtilegasta kjördæmið eins og sást svo vel í aðdraganda síðustu alþingiskosninga þegar hið magnaða tvíeyki, Guðni Ágústsson og Bjarni Harðarson, reið um héruð. Fullkomið ígildi Don Kíkóta og Sansjó Pansa. Áður var Ísólfur Gylfi Pálmason í hlutverki Sansjó í föruneyti Guðna og gaf Bjarna lítið eftir. Þar fyrir utan kemur svo hinn kostulegi þingmaður og gítarglamrari Árni Johnsen úr þessu litríka kjördæmi.
Ekki er nóg með að úr kjördæminu komi skemmtilegustu þingmennirnir heldur eru þeir líka öðrum þingmönnum heiðarlegri og þannig hafa þeir báðir, Árni og Bjarni, séð sig tilneydda til að segja af sér þingmennsku eftir að hafa gert tæknileg mistök.
Árni lýsti sér og Bjarna í viðtali við Fréttablaðið í aðdraganda kosninganna og sagði að þeir væru „skynsamir menn“. Þetta hafa þeir báðir staðfest með því að hætta á Alþingi eftir að hafa gert söguleg axarsköft. Tæknileg í báðum tilfellum.
Tæknileg mistök Árna fólust í sjálftöku launa. Hann er vitaskuld mikil hamhleypa til verka og skilar óumdeilanlega ærlegra dagsverki en lunginn úr því liðleskjugengi sem fyllir þingsalinn. Árna þótti þingfararkaupið því ekki duga og greiddi sér bónusa í mótatimbri, vaxdúk og ýmsu öðru smálegu.
Mistök Bjarna voru svo tæknileg í bókstaflegri merkingu þess orðs en það kom á daginn að Bjarni kann hvorki á tölvu né tölvupóst þegar hann hugðist plotta rækilega gegn varaformanni sínum Valgerði Sverrisdóttur. Framsóknarmönnum er undirferli og tilhneiging til svika við félaga sína í blóð borin en þegar kemur að framkvæmdalið rógsherferðanna fer oft allt í vaskinn.
Alkunna er hversu klaufskir framsóknarmenn eru með hnífana sem hitta þá oftar en ekki sjálfa fyrir áður en þeir rata í bök samherjanna. Tæknileg mistök Bjarna eru tölvuklúður á heimsmælikvarða og um leið byrjendamistök í pólitískum hráskinnaleik og lýsandi fyrir þá sem stíga hikandi úr moldarkofum framsóknar inn í heim nútímatækni. Hefði Bjarni haldið sig við samskiptaleiðir kotbænda og sent hjálparhellu sinni frímerkt sendibréf hefði hann sneitt hjá þessum tæknilegu mistökum og sæti enn á þingi.
Fall Bjarna þarf samt ekki að vera mikið reiðarslag fyrir Guðna sem nú þarf einn að kljást við vindmyllur sem sækja að honum úr öllum áttum. Bjarni er einhvern veginn þannig vinur og bandamaður að hafi maður hann sér við hlið þarfnast maður ekki óvina neitt sérstaklega. Þessi Sansjó Pansa íslenskra stjórnmála á hins vegar hrós skilið fyrir að þekkja sinn vitjunartíma, gangast við tölvutæknilegum mistökum og ganga af velli. Dæmi Árna og Bjarna er þó fyrst og fremst átakanleg áminning um að „tæknileg mistök“ eru einu mistökin sem duga til þess að losna við klaufa og klúðrara af þingi og fá brennuvarga til að axla ábyrgð.
Hér sitja aulabárðar á öllum helstu póstum, í stóli forsætisráðherra, ráðuneyti fjármála og viðskipta, hjá Fjármálaeftirliti, hjá VR og síðast en ekki síst í stjórn Seðlabanka Íslands. Þetta fólk hefur gert röð afdrifaríkra mistaka sem ekki sér fyrir endann á og koma til með að kosta þjóðina slíkan fjölda skrilljóna að áratugi mun taka að rétta þjóðarskútuna af. Andvirði segldúks og kantsteina er slíkir smámunir í samanburðinum að uppreist æra Árna Johnsen er sjálfsagður hlutur. Æra þeirra sem enn sitja og steyptu landi og þjóð í glötun á sér hins vegar ekki viðreisnar von.
En samt hvarflar ekki að þessu liði að fara að dæmi Bjarna og ganga á dyr enda kannski engin ástæða til þar sem mistökin voru ekki tæknileg í pólitískum skilningi þess orðs þótt þau séu æði dýrkeypt.
Blogg
Tæknileg mistök!
08:17 › 12. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
