Svarthöfði er heltekinn af nostalgíu vegna fregna af því að bankarnir séu búnir að sprengja almenning aftur á steinöld. Það var einkar táknrænt að Geir H. Haarde skyldi flytja þjóðinni ávarp um yfirvofandi þjóðargjaldþrot með málverk af íslensku sauðkindinni í bakgrunni. Sauðkindin er nefnilega holdgervingur íslenskra verðmæta. Enda er málsögulegur munur á sauðkindum og peningum enginn. Allt er þetta fé.
Íslendingar hafa í gegnum tíðina verið þrenns konar: Bændur, fiskimenn og víkingar. Upphaflega vorum við víkingar, svo bændur, því næst fiskimenn og síðan aftur víkingar. Svokallaðir útrásarvíkingar. Nú er komið að þeirri stund að við verðum aftur bændur. Og nú liggja bændur í því.
Í hinu nýja hagkerfi Íslendinga verður byggt á raunverulegu fé, ekki lánsfé. Það verður ómögulegt að komast í álnir nema raunveruleg verðmæti liggi að baki. Fé sem má borða. Nú verður ekki nóg að gíra sig upp hjá bankanum og veðja á réttan hest. Tími kindarinnar er runninn upp, í táknrænum skilningi.
Gömlu gildin snúa nú aftur og gildismat þjóðarinnar umvendist á nokkrum dögum. Farið hefur betra fé en víkingarnir áhættusæknu, sem nú sitja kindarlegir í eigin óreiðu. Það er ærin ástæða til að fagna því að þjóðin áttar sig á þeim raunveruleika að verðmætin komi til vegna vinnu, ekki vegna þess að gamblað sé. Sérhver uppsker nú samkvæmt réttlætishagfræði Karls Marx, eftir vinnuframlagi sínu, en ekki samkvæmt flóknum útreikningum um ætlað verðmæti. Þéttvaxin börn munu nú neyðast til að vinna að nýju í staðinn fyrir að troða í sig innfluttu gotteríi og spila innflutt tölvuspil. Vinnan göfgar manninn, og nú börnin.
Margt bendir til þess að þjóðin hafi aldrei þroskast upp úr sauðshætti sínum. Þannig segir það sína sögu að maðurinn sem hefur æðsta vald yfir fé landsmanna skuldi vera dýralæknir. Árni Mathiesen fjármálaráðherra, stundum kallaður Dr. Dolittle, er sem sagt menntaður í því að annast sauðfé en ekki fé í hinum skilningi orðsins. Svarthöfða þykir fara vel á því að hann haldi stöðu sinni sem fjármálaráðherra í breyttu efnahagskerfi þar sem sauðfé verður hinn raunverulegi gjaldmiðill.
Liggur þá ekki í augum uppi hver á að leiða þjóðina þegar hún er komin aftur til fortíðar? Hver er sá maður hér á landi sem ann sauðkindinni meira en nokkurri annarri skepnu og setur hagsmuni hennar ofar skilningi okkar? Það er Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins. Hann er forsætisráðherra framtíðarinnar í fortíðinni.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
