ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.4° 9m/s SE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Eþíópíumenn á jeppum

11:10 › 3. október 2008

Jæja, þá er þetta búið. Íslenska efnahagsundrið var alvöru undur. Hindurvitni sem við kusum að trúa á og þarf svo sem engan að undra. Trúgirni Íslendinga er gamalgróin og heimsfræg og hingað til höfum við ekki séð neina ástæðu til þess að efast um tilvist álfa, trölla og huldufólks. Við sjáum þetta lið eiginlega aldrei en vitum af því og það dugir okkur til þess að sneiða hjá álfabjargi við vegagerð og þess háttar. Þess vegna þótti okkur ekkert sjálfsagðara en að festa fé okkar í ósýnilegum pappírsfyrirtækum sem hlóðu á mettíma upp geggjuðum gróða. Ósýnilegum að vísu en við vissum af honum og það var nóg.

Í krafti huldupeninganna okkar tókum við alls konar lán í ýmiss konar vafningum og körfum og notuðum peninginn til þess að stækka vistarverur okkar sem voru nú ekkert slor fyrir, keyptum nýja jeppa og alls konar ómissandi glingur og dót. Í þessu góðærisæði gleymdum við að varast eina drauginn sem hefur fengið tilvist sína sannaða í áreiðanlegum annálum og nú gengur sá forni fjandi ljósum logum á ný.
Verðbólgudraugurinn er mættur í mögnuðum jötunmóð og hefur aldrei verið hressari enda vel útbelgdur af lánavafningum og alls konar gúmmilaði upp úr alþjóðlegum lánakörfum. Enginn, ekki eini sinni seðlabankastjórinn hvað svo sem sá ágæti maður heitir, fær neitt við ráðið og kannski vill hann það ekki neitt. Seðalbankastjórinn hefur eiginlega komið Svarthöfða fyrir sjónir undanfarið sem sturlaður særingamaður sem hefur í illmennsku sinni vakið upp drauginn í þeim tilgangi einum að siga honum á fjendur sína. Sé Svarthöði að lesa rétt í þau tarotspil feigðarinnar sem lögð hafa verið í Svörtuloftum hefur þó því miður komið fram stærsti og hættulegasti gallinn á ráðabruggi seðlabankastjórans. Forynjunni halda engin bönd og draugurinn sem átti aðeins að tortíma nokkrum götustrákum hefur nú snúist gegn þeirri hræddu þjóð sem byggir þetta hrjóstruga land.

Sjálfur forsetinn, sem þekkir manna gerst innsta eðli seðlabankastjórans, hefur nú loks stigið fram en hafði aldrei þessu vant ekkert fram að færa og hefur því miður hvorki áhrif né völd sem duga til þess að kveða verðbólgudrauginn niður og varpa honum, ásamt þeim sem vakti hann upp, ofan í svörtustu myrkur. Forseti vor hafði engin huggunarorð fram að færa en benti á að ástandið hefði oft verið verra. Að Íslendingar hefðu séð það svartara. Það má vel vera. Svarthöfði man bara ekki eftir Móðuharðindunum, stóru bólu og Svartadauða. En að þeim hörmungum slepptum hefur ástandið bara aldrei verið verra. Ballið er búið.

Íslendingar geta ekkert gert annað en afsalað sér sjálfstæði sínu og gengið Danadrottningu á hönd. Nú dugir ekki að kasta krónunni. Það er of seint og við verðum hreinlega að viðurkenna að við kunnum ekki að fara með frelsið. Áttum það ekki skilið.

Afsal fullveldis blasir við nema Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sjái aumur á okkur. Nú verðum við að fara í biðröðina með bláfátækum þriðjaheimsríkjum og sníkja ölmusu frá alþjóðasamfélaginu til að bjarga okkur frá sultardauða. Þessu fylgir að við verðum að sleppa hrokanum sem hefur á nokkrum árum gert okkur að aumkunarverðustu flottræflum í heimi. Íslendingar í dag eru ekkert annað en Eþíópíumenn á Range Rover-jeppum. Sultur og seyra er það sem við okkur blasir og ekki er langt í að við munum þurfa að stoppa í götin á skónum okkar með blaðsíðum úr bókinni Íslenskir auðmenn. Og nú hefnist okkur fyrir að hlæja að Eþíópíubröndurunum sem Davíð og Geir hafa staðfært upp á okkur.

Hvernig komst fyrsti Íslendingurinn til tunglsins? Hann var að fikta í teygju. Er þetta strikamerki? Nei, þetta er bekkjarmynd af 4. C í Verzló. Hvernig þekkirðu íslenskan Range Rover? Það er beinagrind undir stýri. Brandarinn hans Davíðs er búinn og hann var ekki einu sinni fyndinn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?