Svarthöfði fær ekki betur séð en aðeins tveir fjölmiðlar standi vaktina í kreppunni og láti sér fyrst og fremst umhugað um almenning í landinu og sinni sálgæslu fjöldans frekar en að strjúka tættum sjálfsmyndum stjórnmálamanna og fyrrverandi auðmanna með silkihönskum. Hér er vitaskuld átt við DV og Útvarp Sögu. Svarthöfði hefur vitaskuld alltaf borið sterkar taugar til DV og auðvitað þarf ekki að fjölyrða um einfaldar ástæðurnar fyrir því hvers vegna DV er uppáhaldsblað Svarthöfða. Öðru máli gegnir um Útvarp Sögu en Svarthöfða hefur löngum þótt stöðin sú ansi hjákátleg og hefur helst séð skemmtigildi í því að hlusta á gegndarlausan vaðalinn í furðulegum fastahlustendunum.
Auðvitað var þetta viðhorf Svarthöfða mengað af góðærishrokanum en Svarthöfði var, eins og svo margir aðrir, með glýju í augunum og þótti enginn vera maður með mönnum nema hann ætti lúxusjeppa, tjaldvagn og lifði í almennum vellystingum í krafti myntkörfuláns. Nú hefur Svarthöfði hins vegar áttað sig á að þeir sem fleyttu góðærisrjómann eru fíflin en þeir sem supu marga fjöruna á meðan og sögðu frá því á Sögu eru hinir mestu spekingar.
Útvarp Saga má eiga það sem hún á og það er ekki lítið. Hún er beintengd við alþýðuna, þessa alþýðu sem Arnþrúður á Sögu ætlar sko ekki að láta skera auðmennina úr snörunni og enn síður að láta apakettina sem múgurinn kaus yfir sig komast upp með að halda áfram fíflaganginum sem setti landið á hausinn. Ó, nei! Nú er sko líf á Sögu og á meðan Jón Baldvin stendur eins og sturlaður byltingarleiðtogi án byltingar og öskrar froðufellandi yfir nokkur hundruð hræðum á tröppum ráðherrabústaðarins fer hin raunverulega andspyrna fram á Útvarpi Sögu.
Þar vaknar fólk í byltingarhug við ráman reiðilestur Arnþrúðar sem eirir engu á meðan froðusnakkarar á öðrum stöðvum tala um sjálfstyrkingarnámskeið og kökuuppskriftir eða eitthvað álíka fánýtt. Þá kemur æringinn Halldór E. sterkur inn í símatímum á föstudögum og tekst einhvern veginn að hafa taumhald á eintrjáningnum og harðlínurepúblíkananum Jóni Val Jenssyni á milli þess sem hann espar kommahjörðina upp þannig að blóðþrýstingur hennar fer alveg upp að þolmörkum. Tvö ólíklegustu kyntröll Íslandssögunnar, Sigurður G. Tómasson og Guðmundur Ólafsson hagfræðingur, lyfta föstudögum Svarthöfða alltaf upp með frjálslegu tali sínu um ástina og kynlífið. Þess á milli benda þeir strangir á helstu sökudólgana í hruninu en á aftökulista þeirra eru litlir grænir kallar, Davíð Oddsson og allt þar á milli. Kynlíf og kreppa. Frábær blanda.
Strigakjafturinn Sverrir Stormsker hefur heldur ekki gefið þumlung eftir frá því hann hóf upp London Docks-mengaða rödd sína á Sögu og í þeim tryllta heimi sem nú blasir við þjóðinni er brengluð lífssýn Stormskersins kærkomin vin í andlegri eyðimörk góðæristremmans.
Útvarp Saga hugsar svo sannarlega um sína og veitir hlustendum sínum andlegan stuðning og finnur reiði þeirra heppilegan farveg en gremjunni er vitaskuld veitt beint inn í eyru allra hinna sem eru að tryllast á ástandinu. Þetta fólk á fyrr eða síðar eftir að tala sig sameiginlega upp í slíkan ofsa að byltingin hlýtur að brjótast út og þá fyrst verður barist fyrir betri heimi. Uppreisn með Arnþrúði í fylkingarbrjósti er öllu lífvænlegri en sú sem Kolfinna Baldvinsdóttir hefur verið að brasa við að hrinda af stað með engum árangri.
Helsta byltingarhetja Sögu er svo tvímælalaust fastakúnninn Eiríkur Stefánsson en þessi fyrrverandi verkalýðsleiðtogi hringir reglulega inn og gargar hressilega á alla þá óláns garka sem hafa komið okkur á vonarvöl. Eiríkur er nefnilega búinn að eyrnamerkja alla illmennahersinguna og slengja henni saman við hina alræmdu olígarka í Rússlandi. Nú gargar Eiríkur á útrásargarkana, stjórnmálagarkana og alls konar fleiri garka. Nú veður svo hressilega á Eiríki að Svarthöfði skilur hann aldrei alveg og er fjarri því að átta sig á því hvernig hann hugsar yfirleitt. En assgoti er vel til fundið að einfalda leitina að hinum seku með því að gera þá að görkum. Orð í tíma töluð og -garki er orðin almenn skammarending.
Áfram íslensk alþýða! Niður með garkana!
Blogg
Gargað á garkana
08:27 › 28. október 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
