ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.4° 9m/s SE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Halim heim!

08:17 › 23. október 2008

Á þessum erfiðu tímum kemur í ljós hverjir eru sannir Íslendingar og hverjir ekki. Hver auðmaðurinn á fætur öðrum yfirgefur nú landið, en aðrir koma í staðinn. Jón Ólafsson athafnamaður hefur verið rægður hér innan lands sem utan, en á daginn er komið að hann er þjóðinni haukur í horni. Í samtali við DV á mánudag lýsti hann því yfir að hann myndi snúa aftur með sín umsvif til hjálpar þjóðinni.

Paul „Ian Strachan“ Aðalsteinsson heitir maður af íslensku bergi brotinn sem þekktastur er fyrir að hafa reynt að kúga fé út úr bresku konungsfjölskyldunni. Við þann gjörning hlaut hann viðurnefnið krúnukúgarinn. Í viðtali við DV í vikunni kvaðst hann vilja koma aftur heim til Íslands, í þeirri aðstöðu sem landið er nú. Honum þótti fall Landsbankans hroðalegt. Ljóst er að þjóðinni veitir ekki af slíkum Bretakúgara á þessum verstu tímum.

Svarthöfði vonar að fleiri muni fylgja í kjölfar þessara sóma Íslands, sverða og skjalda. Margir muna eftir Halim Al, hinum tyrkneska eiginmanni Sophiu Hansen, sem nam dætur sínar á brott af landinu vegna forræðisdeilu. Halim er nú auðugur maður í Istanbul, höfuðborg Tyrkjaveldis. Þjóðinni væri mikill akkur í því að Halim Al kæmi aftur til Íslands með sinn rekstur. Hann rekur arðbæra verksmiðju í Tyrklandi þar sem hann framleiðir gallabuxur fyrir Disney og tískuboli af öllu tagi. Hana mætti vel reka hérlendis. Sú staðreynd að laun eru lág á Íslandi miðað við annars staðar, vegna falls krónunnar, felur í sér að hagkvæmt gæti orðið að flytja slíka saumastofu norður á Frón.

Svarthöfði leggur til að þjóðin sameinist í ákalli til Halims um endurkomu. Stofna mætti áheitasíma og Facebook-síðu undir slagorðinu „Halim heim!“ Best af öllu væri að Halim yrði stórtækari hérlendis og léti ekki staðar numið við gallabuxnaframleiðslu, heldur tæki við bankastjórastöðu. Ekkert kæmi Íslendingum betur en að Sharia-banki væri rekinn hérlendis. Íslömsk lög heimila ekki að vextir séu teknir af lánum, enda er slíkt flokkað undir ósiðlegt gróðabrask og arðrán. Með þessu mætti forða þjóðinni af flæðiskeri okurvaxta og verðtryggingar um ókomna tíð. Býður einhver fram betri lausn?
Bretar flokka Íslendinga nú undir hryðjuverkamenn og beita þar til gerðum lögum á landsmenn. Við höfum því engu að tapa. Hagfelldast þjóðinni væri að taka upp íslam hér á landi og hefja formlega baráttu gegn vestræna auðvaldinu. Halim Al gæti leitt þá baráttu, en ljóst er að hans helsti jarl yrði Steingrímur J. Sigfússon.

Klæðnaður múslima er einnig kjörinn fyrir íslenskar aðstæður. Búrkan hylur líkamann afar vel og gerir konum kleift að ganga hnarreistar í hvers kyns vályndum veðrum án þess að vökna eða kólna.
Árið 1000 stóð þjóðin frammi fyrir gríðarlegu uppgjöri. Þorgeir Ljósvetningagoði lagðist þá undir feld í þrjá daga og komst að þeirri niðurstöðu að hann og aðrir Íslendingar ættu að taka upp kristni og varpa ásatrúnni fyrir róða. Nú, þúsund og átta árum síðar, stöndum við í sömu sporum.
Geir Haarde forsætisráðherra hefur nú legið undir feldi í tæpar þrjár vikur og miðað við fyrri framlög hans til björgunar þjóðarbúsins er allt eins líklegt að hann komist að þeirri niðurstöðu að upptaka íslams á Íslandi sé nauðsynleg, í þeirri erfiðu stöðu sem upp er komin eftir að Lehman-bræður fóru á hausinn.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?