ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.4° 9m/s SE
Svarthöfði

Svarthöfði

Svarthöfði hefur rökstutt sérstæðar skoðanir sínar á þjóðmálunum allt frá áttunda áratugnum, fyrst í Vísi og svo í sameinuðu Dagblaðinu Vísi. Svarthöfði er frelsaður af fasisma og trúir því nú að hann sé hinn eini útvaldi skósveinn skrílræðisins. Gagnárásir og liðsauki berist á svarthofdi@dv.is.

Dóminó og lató

10:11 › 2. október 2008

Svarthöfði fylgdist andaktugur með því þegar Davíð Oddsson skriðtæklaði Glitni banka til að bjarga honum. Það er ofar skilningi Svarthöfða hvers vegna stjórnvöld gleyptu Glitni, þennan vel rekna banka, eins og tönnlast var á. En ef hann fylgir reglu rannsóknarblaðamennskunnar, „follow the money“, er niðurstaðan augljós. Það átti að fella Baugsmenn og láta ríkið græða. En það má spyrja að leikslokum. Kannski fól plottið í sér að Björgólfsfeðgum yrði bjargað, með því að færa þeim Glitni á silfurfati.

Svo virðist sem Davíð hafi ekki fullkomlega áttað sig á því hvaða leik hann var að leika. Íslenska efnahagslífið er nefnilega ekki rúgbí heldur dóminó. Ísland er, á sinn hátt, dóminíska lýðveldið. Það sem stjórnvöld gerðu var að ýta fyrsta dóminókubbnum. Vandræði Íslendinga byrjuðu nefnilega fyrst eftir þessa björgunaraðgerð ríkisins, sem margir segja hafa verið óþarfa. Það hefði þurft að styrkja dóminókubbinn í stað þess að fella hann. Eftir björgun Geirs og Davíðs hefur krónan hrunið um fjögur til fimm prósent á hverjum einasta degi. Vont er þeirra aðgerðaleysi, en enn verri eru þeirra aðgerðir.
Svarthöfði er, eins og margir, innlyksa með íbúð á lánum sem hækka um hundruð þúsunda í hverjum mánuði. Allt er þetta út af krónunni. Krónan er nú orðin 50 aurar og hver veit hvar hún endar. Hún er greinilega ekki sætasta stelpan á ballinu, eins og Geir myndi orða það. Svarthöfði hefur því fylgt í kjölfar alvörufjárfesta úti í heimi og tekið stöðu gegn krónunni. Hann hefur síðustu daga sankað að sér lató-peningum, því eina sem er einhvers virði hér á landi. Það ku vera gulltryggt að maður fái í það minnsta mjólk og brauð fyrir lató-peningana.

Geir Haarde ætti að grípa til afgerandi aðgerða í kreppunni. Hann ætti að skipta úr krónu yfir í lató-peninga. Þannig gæti hann tryggt fæðuöryggi þjóðarinnar til frambúðar. Öll spákaupmennska hyrfi og þjóðin gæti unað sátt við sitt. Erfiðast verður fyrir Geir að steypa Davíð Oddssyni af stóli seðlabankastjóra. Þó mætti segja að Íþróttaálfurinn myndi jafnvel sóma sér betur sem seðlabankastjóri. Hann gæti fylgt í fótspor Davíðs og talað um árás á lató-hagkerfið. Það einfaldar myndina fyrir þjóðinni ef óvinurinn verður Glanni glæpur, í staðinn fyrir lýðskrumara og óljósa óprúttna aðila. Solla stirða myndi standa við hlið Íþróttaálfsins og allsherjar harmónía fælist í samstöðu þeirra og afvötnun Sigga sæta, sem hlýtur að teljast eiga margt sameiginlegt með Geir Haarde. Þetta hljómar vissulega absúrd, en getur varla orðið verra.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?