Íslendingar eru kjánar og þegar þeir grípa til örþrifaráða í þröngri stöðu tekst þeim jafnan að gera illt verra. Þá virðist Íslendingum einnig vera ómögulegt að velja sér vini og gera greinarmun á þeim og hreinum og klárum óvinum. Nú er ráðalausa forsætisráðherranum okkar Geir H. Haarde að takast að þjappa laskaðri þjóðinni saman í hyldjúpu hatri og fyrirlitningu á vinglinum Gordon Brown. Ráðherrann segir í einu orðinu að ekki sé tímabært að leita sökudólga en í því næsta kannar hann möguleika á málsókn á hendur Gordon þessum sem vissulega hefur gert sig sekan um að vera kjáni. Þá sök ber hann þó síður en svo einn og Geir og fleiri deila henni með honum.
Á meðan Geir pönkast á Brown og hefur meira að segja fengið Guðna Ágústsson sem meðreiðarsvein, hálfgerðan Sansjó Pansa, í þeim herleiðangri hefur hann gert út sendinefnd til Rússlands til að sníkja þar út smálán sem verður í besta falli dropi í það skuldahaf sem þjóðin velkist nú í. Spekingur í hinni feigu borg Tróju benti samborgurum sínum á það löngu fyrir Íslandsbyggð að varast bæri Grikki og gjafir þeirra. Blessað fólkið hlustaði ekki og þáði risastóran og tilgangslausan tréhest frá Grikkjum og allir þekkja framhaldið. Borgin féll.
Maður þarf ekki að vera neitt sérstaklega vel að sér í bókmenntasögu til þess að sjá úr mílufjarlægð að Rússalánið er hreinræktaður trójuhestur og þegar við höfum tekið við því og eytt öllum milljörðunum í að borga fyrir eitthvert flipp sem kemur hinum almenna borgara ekkert við verða Rússarnir komnir með traust hreðjatak á okkur og þeir munu aldrei sleppa. Og það sem verra er, gamall draumur hins sturlaða rússneska þjóðernissinna, Vladimirs Zhirinovskí, mun rætast.
Zhirinovskí þessi er miklu hættulegri óvinur en Gordon Brown, sem sjálfsagt má lempa með einhverjum diplómatískum leikfimiæfingum. Zhirinovskí og hans kónar kaupa hins vegar ekkert kjaftæði og við getum gleymt því að hóta Rússum málsókn þegar þeir byrja með leiðindi. Þegar Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra, fór að gera sig breiðan í Eystrasaltsríkjunum og lýsa yfir stuðningi Íslendinga við sjálfstæði þeirra aflaði hann okkur hættulegs óvinar sem hefur legið í leyni alla tíð síðan og beðið færis. Og nú er lag. Íslendingar liggja marflatir og því lítið mál að trampa á þeim.
Þegar Hannibalsson byrjaði með sinn derring trylltist Zhirinovskí og lýsti því yfir að þegar hann kæmist til valda myndi hann breyta Íslandi í fanganýlendu. Vissulega má verja með rökum að við séum sjálf búin að breyta landinu í (skulda)fangelsi en innflutningur á rússneskum ribböldum og óþjóðalýð er þó ekki hafinn enn. Almenn skelfing greip um sig á Íslandi þegar Zhirinovskí brjálaðist undir lok síðustu aldar og varð hennar ekki síst vart þar sem sauðsvartur almúginn spókaði sig og höfðu menn á orði að Jón Baldvin myndi með töffarastælum steypa okkur öllum í glötun.
„Já, þetta er það eina sem Ísland hefur unnið gegn Rússlandi og þið eigið eftir að sjá eftir því. Eystrasaltslýðveldin eru og verða hluti af Rússlandi. Og við látum engar smáþjóðir skipta sér af okkar innanlandsmálum. Þið eruð smáþjóð og þið eigið að vera hlutlaus og eiga góð samskipti við Rússland. Það er ykkar framtíðarvon. Hvers vegna eruð þið í Nató, án þess að eiga svo mikið sem einn skriðdreka eða kafbát? (Hlátur) Til hvers að vera í Nató? (Meiri hlátur) Nató bjargar ykkur aldrei. Með nokkrum tundurskeytum og loftárás er eyjan ykkar búin að vera,“ sagði Vladimír þá.
Í gær kom á daginn að flokkur Zhirinovskís vill fá herstöð á Íslandi gegn láninu góða og Rússar þurfa ekki einu sinni að taka okkur herskildi til þess að fá sitt fram. Þeir munu gera það með einni millifærslu í netbanka. Allir kostir sem Íslendingum bjóðast þessa dagana eru slæmir og vissulega kemur okkur nú í koll að eiga hvorki kafbát né skriðdreka. Við verðum bara að sætta okkur við að við getum hvorki staðið uppi í hárinu á Rússum né Bretum sem geta látið hvað sem er yfir okkur ganga. Gömlu víkingarnir vissu sem var að þeir sem ætluðu sér í útrás yrðu að eiga fley, fagrar árar og eitthvað af vopnum. Þessu klikkuðum við á og auðvitað var vitað mál að við myndum ekki taka mark á varnaðarorðum efnahagssérfræðinga. En af hverju í ósköpunum hlustuðum við ekki á Björn Bjarnason? Þá ættum við nú her og værum ekki betlandi mýs, heldur gætum varið hendur okkar eins og menn.
Blogg
Þjóð án skriðdreka
10:34 › 16. október 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
