Nú þegar þjóðin hefur gefið eftir ferðafrelsi sitt og fjárhagslegt frelsi er viðeigandi að hún sinni kalli Davíðs Oddssonar, Péturs Blöndal og fleiri leiðtoga um að gefa eftir málfrelsi sitt.
Pétur komst snilldarlega að orði í Silfri Egils Helgasonar um helgina, þegar hann setti ofan í við neikvæðnistal fjárhagslega tjónaðs manns. Ekkert bölsýnistal! Nú er tíminn til að tala jákvætt. Hreinlega tala markaðina upp. Gagnrýnendur eru verstu óvinir þjóðarinnar.
Þar sem líf þjóðarinnar liggur við ætti að beita niðurskurðarhnífnum á tjáningarfrelsi og banna neikvætt tal í fjölmiðlum og annars staðar á opinberum vettvangi. Ef málfrelsið hefur einhvern tímann gagnast þjóðinni er það ekki nú. Markaðurinn er bara ímynd og ef eitthvað neikvætt er sagt um markaðinn veldur það lækkun á honum. Þess vegna er mikilvægt að einungis ábyrgir menn tali nú um stundir. Og hverjir eru ábyrgari en stjórnmálamennirnir?
Sveltandi fátæklinga ætti einnig að fjarlægja af almennum vettvangi þannig að þeir dragi ekki kjark og djörfung úr þjóðinni á þessum síðustu og verstu tímum. Við megum ekki heldur við því að erlendir fjölmiðlar eða ferðamenn sjái öreigana lepja dauðann úr skel niðri í bæ. Best væri að fara með skuldsetta fátæklingana á afgirt svæði á fjöllum, þar sem enginn kemur. Það kæmi þjóðinni og fátæklingunum best að þjóðnýta þá, á þann hagkvæma hátt að þeir dveldust í vinnubúðum og reistu virkjun þjóðinni til heilla.
Nú er ekki tíminn til að leita uppi sökudólga, heldur verðum við að útrýma gagnrýnendum íslenska efnahagskerfisins til að tryggja lífsafkomu þjóðarinnar. Eins og Pétur Blöndal sagði í Silfri Egils þarf samt að athuga þátt fjölmiðla í þeirri nettu snertilendingu sem hagkerfið stefnir nú í. Þeir hafa fjallað á neikvæðan hátt um þessa niðursveiflu, sem er einungis liður í stórkostlegum árangri framtíðarinnar, líkt og lendingin á trampólíninu leiðir til ógnarstökks upp á við. Draga verður DV til ábyrgðar fyrir að ota því að heilalausum lýðnum, strax í janúar, að hættulegt væri að fjárfesta í íbúð vegna yfirvofandi niðursveiflu og verðbólgu. Og DV verður að axla ábyrgð á því að hafa otað þeim upplýsingum að fólki að fjárhagsleg staða þeirra væri í uppnámi, strax í vor. Ekki voru það stjórnmálamennirnir eða greiningardeildirnar sem sáðu fræjum óttans hjá múgnum.
Fjölmiðlar hafa dreift óhróðri um þennan aðdraganda ómældrar uppsveiflu sem niðursveiflan verður að teljast. Til að forða frekari skaða ætti að þjóðnýta fjölmiðla landsins, sem hvort eð er eru í vandræðum og fá engin lán. Þannig mætti koma í veg fyrir að fjölmiðlar dreifi ótta hjá ósjálfráða lýðnum um að eitthvað sé að. Þegar þjóðfélagið rambar á barmi gjaldþrots er lýðurinn líklegur til að koma sjálfum sér í koll með óheftu hjarðeðli sínu. Það er lýðnum fyrir bestu að einungis fjárhirðarnir tali, að smalarnir ráði för. Aðeins stjórnmálamennirnir eru nógu ábyrgir til þess.
Nú á að tala í lausnum og lausnin er að láta sem vandamálið sé ekki til og enginn beri ábyrgð á því. Nema kannski fjölmiðlar og taumlaus lýðurinn. Þetta er allt ímyndun, kjánarnir ykkar!
Það gagnast ekkert taumlausum og heilalausum lýðnum að benda á að stjórnmálamennirnir eru ábyrgir fyrir því ástandi sem nú er komið upp. Fólk hefur ekkert við þær upplýsingar að gera og myndi einungis misnota þær. Þetta ruglar bara fólk. Móta ætti þjóðarritstjórn sem leidd yrði af Pétri Blöndal og Davíð Oddssyni, þjóðinni til bjargar í einu glæsilegasta og öfundsverðasta trampólínstökki allrar heimssögunnar.
Blogg
Björgum þjóðinni - bönnum málfrelsi
15:43 › 10. október 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.





















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
