Jákvætt
+ Staðurinn er mjög flott innréttaður og er bjartur og skemmtilegur. Sætin eru svona þokkalega þægileg og ná öllum gæðaprófum, jafnvel þótt að básar séu á staðnum.
+ Fólkið sem vinnur á staðnum er mjög almennilegt og viljugt, með því besta sem ég hef séð.
+ Ég verð bara að gefa aukaplús fyrir nafnspjöldin sem starfsfólkið er með, en þar kemur fram nafn og heimabær viðkomandi. Mjög skemmtilegt athæfi sem færir manni nær starfsfólkinu.
+ Matseðillinn er fjölbreyttur og mjög skemmtilega telft með marga hamborgarana. Lambborgari, hreindýraborgari, gæsaborgari, laxaborgari og ég veit ekki hvað.
+ Franskarnar eru mjög góðar.
+ Bernaissósan, sem er nauðsynlegt að dýfa frönskunum sínum í þessa dagana, er hreint út sagt afbragð á fabrikkunni.
Neikvætt
- Verðið er náttúruelga svívirðilega hátt, eins og flestir landsmenn hafa örugglega tekið eftir. Staðurinn er bara skyndibitastaður en afþví að hann er í sparifötunum þá er hægt að hækka verðið umtalsvert.
- Ég hata ferkantaða brauðið, það verður bara að segjast hreint út. Það er alltof stórt og fyllir magan of mikið. Fólk talar alltaf um hvað það hafi nú oltið útaf fabrikkunni, það var bara fullt af brauði. Einnig er það mjög pirrandi með ferkantaða brauðið að það myndast alltaf svona þurrir hornabitar afþví að kjötið nær ekki útí hornin.
- Ég hef aldrei séð stað sem er meira "business" heldur en fabrikkan. Hann er markaðsettur fyrir fjölskyldufólk, fyrir djammara, fyrir skyndibitaunnendur og fyrir fólk sem vill fara á veitingastað. Einnig eru seldar fabrikkusósur og brauð í Bónus svo eitthvað sé nefnt. Í anddyrinu á staðnum eru seldar fabrikku lyklakippur, fabrikku leðurfótbolti, fabrikku dagbók og svona gæti maður haldið áfram. Þarna er sjarminn horfinn.
- Tónlistin er oftar en ekki alltof hávær. Tala nú ekki um þegar að hálfur staðurinn á afmæli.
Niðurstaðan: +2 stig.
Ég verð að viðurkenna að fabrikkan er ekki í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Vissulega eru hamborgararnir virkiega góðir á bragðið og mjög skemmtilega samsettir, en allt annað við staðinn er tilgerðarlegt og ilmar af sölumennsku. Fólkið á landinu er ótt í hamborgara sem sjónvarpskynnar og almenni vitleysingar hafa haft hugmyndina að. Ég tek að vísu hattinn ofan fyrir þeim, eru örugglega að græða á tá og fingri á staðnum og eru greinilega með betra viðskiptavit en ég hefði þorað að gefa þeim. Svo verður að koma fram að staðurinn er með allt á hreinu, þjónustan, hráefnið og þar fram eftir götunum er fyrsta flokks. staðurinn er tilvalinn fyrir fólk sem er tilbúið að borga rúmar 2000 kr. fyrir tilgerðarlegan hamborgara.
