Skúli Helgason

Skúli Helgason

Skúli Helgason er fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann var formaður nefndar Alþingis um eflingu græna hagkerfisins og formaður starfshóps um samþættingu menntastefnu og atvinnustefnu. Skúli er með meistarapróf í opinberri stjórnsýslu frá University of Minnesota og BA próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.

Nýtt og betra stjórnarráð

17. maí 2012 › 09:47

Alþingi samþykkti í gær lokaáfangann í sameiningu og fækkun ráðuneyta sem boðuð var í stjórnarsáttmálanum og gekk reyndar skrefinu lengra en þar var boðað með því að fækka ráðuneytum úr tólf í átta í stað níu. Tilgangurinn er ekki síst sá að efla og styrkja stjórnsýsluna með færri en öflugri ráðuneytum, bæta yfirsýn yfir málaflokkana, auka skilvirkni og styrkja stefnumótunarvinnu og bregðast þar m.a. við gagnrýni Rannsóknarnefndar Alþingis.


Loksins sameinað atvinnuvegaráðuneyti


Stóru tíðindin í þeim stjórnkerfisbreytingum sem Alþingi hefur nú samþykkt  er að þar með er loks orðið til sameinað atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti og umhverfisráðuneyti fær aukið hlutverk í auðlindamálum.  Það hefur verið stefna Samfylkingarinnar um árabil að skapa jafnræði milli atvinnugreina með því að færa alla umsýslu atvinnugreina undir eitt ráðuneyti.  Þetta eru mikil tíðindi og í fullu samræmi við þá grundvallarbreytingu sem orðið hefur á íslensku atvinnulífi á undanförnum árum.  Sú tíð er löngu liðin að sjávarútvegur og landbúnaður beri uppi íslenskt atvinnulíf, vaxtargreinar eins og ferðaþjónusta, hugverkaiðnaður, greinar sem byggja á umhverfistækni, skapandi greinar baka sífellt stærri sneiðar af þjóðarkökunni og kalla eðlilega á jafnstöðu við hinar hefðbundnu greinar, hvað varðar stoðþjónustu og aðgengi að fjármagni til rannsóknar, þróunar og nýsköpunar.


Umhverfis- og auðlindaráðuneyti


Það er líka mikilvægt tímanna tákn að umhverfisráðuneyti fær nú aukið hlutverk varðandi sjálfbæra nýtingu auðlinda í samráði við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.  Ráðuneytið mun m.a. setja viðmið um sjálfbærni til að tryggja ábyrga umgengni við náttúruna og allar auðlindir hennar.  Þetta er í samræmi við þær auknu áherslur á umhverfis- og náttúruvernd sem m.a. má sjá í frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá.  Ísland byggir afkomu sína meira á auðlindum náttúrunnar en margar þjóðir og löngu tímabært að skapað sé betra jafnvægi milli sjónarmiða umhverfisverndar og auðlindanýtingar en við áttum að venjast á stóriðjuáratugnum þegar Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur héldu um stjórnartaumana. 


Hagræðing


Sparnaður og hagræðing er ekki meginmarkmið stjórnkerfisbreytinganna heldur betri og markvissari stjórnsýsla með áherslu á jafnræði annars vegar milli atvinnugreina innbyrðis og hins vegar atvinnugreina og umhverfisverndar.  Hins vegar er ljóst að sameining fjögurra ráðuneyta í innanríkis –og velferðarráðuneyti skilar tæplega 150 milljóna sparnaði á ári í lægri húsnæðiskostnað og fækkun starfsfólks.  Það losar 600 milljónir á næsta kjörtímabili. Nýtt atvinnuvegaráðuneyti mun sömuleiðis skila sparnaði í rekstri ekki síst í lægri húsnæðiskostnaði, þó ekki liggi fyrir nákvæm áætlun á þessu stigi.  Frá þessu dregst svo einskiptiskostnaður vegna húsnæðisbreytinga sem talið er að nemi 150-180 milljónum króna. 


Nýja eða gamla Ísland?


Þingsályktunartillagan um sameiningu ráðuneyta var samþykkt á Alþingi í gær með atkvæðum þingmanna Samfylkingarinnar og VG (nema tveggja fyrrum ráðherra) og Hreyfingarinnar en Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur voru á móti.  Andstæðingar málsins hótuðu því að vinda ofan af breytingunum ef þeir komast til valda á ný eftir næstu kosningar og því er ljóst að kjósendur munu í þessu efni eins og fleirum velja á milli þess hvort áfram verður haldið með uppbyggingu hins nýja Íslands eða farið aftur til gamla tímans þegar hagsmunasamtök eins og LÍÚ, Bændasamtökin og Viðskiptaráð fjarstýrðu stefnumótun í atvinnumálum.  



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.