ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW
Valur Gunnarsson

Valur Gunnarsson

Valur Gunnarsson trúir því að Ísland geti auðveldlega fullnægt þörfum allra. En ekki græðgi sumra.

Vítisenglar og vandræðagemsar

17:08 › 10. febrúar 2010

Ekki fyrr er minnst hér á spilavíti en Vítisenglar nágrannalandanna fara að láta á sér kræla á ný. Vafalaust mun lögreglan taka vel á móti þeim. Þó efast megi um lagalegt réttlæti slíkra aðgerða er hitt þó nokkuð ljóst að vítisenglar eru varla velkomnir gestir og að fátt gott muni hljótast af komu þeirra. Í stað þess að kvarta undan fyrri og væntanlegum aðgerðum lögreglu í þessu máli vil ég frekar biðja um samræmi. Þeir voru til sem ekki aðeins vildu breyta Hótel Nordica, heldur landinu öllu, í eitt stórt spilavíti. Við vitum öll um afleiðingarnar. Því mælist ég nú til þess að lögreglan taki sig til og snúi eins og nokkra alþjóðlega viðskiptamenn niður í fríhöfninni, hvort sem þeir eru af íslensku eða erlendu bergi brotnir. Það myndi færa þjóðinni allri aukna trú á embættið.
Annars minnir þessi umræða öll á virkjanaumræðuna. Eftir að Kárahnjúkavirkjun var reist ofhitnaði efnahagskerfið og því þarf að virkja meira. Eftir að Kauphöllinni var breytt í spilavíti fór allt á annan enda og því þarf fleiri spilavíti til að bjarga okkur út úr kreppunni. Hvernig sem fer er þó eitt ljóst. Íslendingar munu örugglega umgangast spilavítið af mikilli skynsemi og hófsemd. Alveg eins og þeir gera með áfengi og verðbréf.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.