9. febrúar 2010
VERTU MEÐ - FLAUTUM!
Skessulegt raus
Komdu og sýndu smá samstöðu! Þetta tekur örfáar mínútur og samstaða gefur manni góða tilfinningu.
Vertu með - flautum!
Bílalánamótmæli 9. febrúar 2010 Íslandsbanka Kirkjusandi.
Við söfnumst saman fyrir framan Íslandsbanka Kirkjusandi kl 12:15 þriðjdaginn 9.febrúar. Við mótmælum óréttlátum bílasamningum og flautum í 3 mínútur hið minnsta, þ.e.a.s. ef gagn-tilboði NÍ verður hafnað af Íslandsbanka.
Geta má þess að Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, er að íhuga gagntilboð um úrbætur/leiðréttingar sem samtökin afhentu Íslandsbanka s.l. þriðjudag. Fyrirhugað er að hittast á þriðjudaginn kemur kl 12:15 við höfuðstöðvar Íslandsbanka Kirkjusandi en þar mun Birna væntanlega svara gagn-tilboði samtakana NÍ. Gagntilboðið innihélt höfuðstólslækkun stökkbreysts höfuðstóls aftur til ársins 2007 / 2008, (c.a 56% úrbætur/leiðréttingar vegna myntkörfulána).
Aðeins verður mótmælt hjá Íslandsbanka, þriðjudaginn 9. febrúar.
Það sem Íslandsbanki er að bjóða, er sjónhverfing, aðeins er verið að lengja í hengingaról skuldsettra einstaklinga og fjölskyldna sem tóku bílasamninga hjá ónýtu bankakerfi á Íslandi.

















