Skáklandið

Skáklandið

Stefán Bergsson er framkvæmdastjóri Skákakademíu Reykjavíkur sem stendur fyrir skákkennslu í grunnskólum Reykjavíkur.
Sjá nánar á skakakademia.is/um-felagid/starfsmenn/

INGÓLFSTORG 16:00

2. ágúst 2012 › 22:17

Arnar í VIN er góður maður. Nú er hann að hætta í VIN eftir 13 ára starf.  Arnar er fyrir miðri mynd, ásamt félögum úr VIN.


Í VIN hefur hann byggt upp eitt skemmtilegasta og flottasta skákfélag landsins -- með fjölbreytta félaga flóru og feyki skemmtileg skákmót. Hann hefur leitt félagið frá upphafi - auk þess að hafa farið ellefu sinnum til Grænlands að kenna grænlenskum börnum að tefla. 


Á morgun klukkan 16:00 verður haldið skákmót á Ingólfstorgi honum til heiðurs. Vegleg verðlaun frá Stofunni sem er veitingastaður rétt við Ingólfstorgið.


Mætum og heiðrum kappann - Arnar Valgeirsson og hans líkir eru ein af auðlindum Íslands. Maður sem vinnur sín verk í þegjanda hljóði, hógværðin uppmáluð og verkin látin tala.


 



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.