Græna serían: Ingvar Þór Ávaxtameistarinn -- hver sigrar á Grænmetismótinu á föstudaginn?
Ingvar Þór Jóhannesson sigraði með glæsibrag á Ávaxtamótinu í Sumarskákhöllinni á föstudag. Þetta var fyrsta mótið í Grænu seríunni, sem Skákakademían heldur til að fagna sól og sumri. Í hádeginu nú á föstudaginn er röðin komin að Grænmetismótinu og svo tekur Blómaskákmótið við í næstu viku.
Hraðskákmótin í Grænu seríunni eru öllum opin og á fyrsta mótinu voru á fjórða tug keppenda á öllum aldri. Vignir Vatnar Stefánsson fékk verðlaun fyrir besta árangur barna á Ávaxtaskákmótinu, en hann hlaut 4 vinninga af 5, og tapaði ekki skák.
Þá er Græna sería haldin til að vekja athygli á Sumarskákmótum SR sem nú standa sem hæst, við frábærar aðstæður að Þingholtsstræti 37, í sal Kvennaskólans. Gengið er inn beint á móti þýska og breska sendiráðinu beint fyrir neðan Hótel Holt.
Skákáhugamenn á öllum aldri eru hvattir til að mæta í hádeginu á föstudaginn, taka skák og gæða sér á hnossgætinu frá Sölufélagi garðyrkjumanna!
