Skáklandið

Skáklandið

Stefán Bergsson er framkvæmdastjóri Skákakademíu Reykjavíkur sem stendur fyrir skákkennslu í grunnskólum Reykjavíkur.
Sjá nánar á skakakademia.is/um-felagid/starfsmenn/

ÚTITAFLIÐ Í DAG!

17. júní 2012 › 12:15



Útitaflið vaknar til lífsins: Fjöltefli Björns á þjóðhátíðardaginn!

 


Björn Þorfinnsson Skákakademían býður upp á taflmennsku á útitaflinu sunnudaginn 17. júní milli klukkan 14 og 17. Björn Þorfinnsson, margreyndur landsliðsmaður í skák, mætir og teflir við gesti og gangandi. Þátttaka kostar ekkert, og eru áhugasamir skákmenn á öllum aldri hvattir til að mæta.


Fjölteflið á þjóðhátíðardaginn markar upphaf að líflegu starfi á útitaflinu í sumar. Skákakademían mun verða með fjöltefli og útiskákmót á föstudögum.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.