Skáklandið

Skáklandið

Stefán Bergsson er framkvæmdastjóri Skákakademíu Reykjavíkur sem stendur fyrir skákkennslu í grunnskólum Reykjavíkur.
Sjá nánar á skakakademia.is/um-felagid/starfsmenn/

ÞRÖSTUR ÍSLANDSMEISTARI!

31. maí 2012 › 23:14

Nýr Íslandsmeistari


„YYYYYEEEESSS"  æpti hinn nýbakaði Íslandsmeistari í skák Þröstur Þórhallsson þegar andstæðingur hans Bragi Þorfinnsson hafði gefist upp í bráðabanaskák einvígis þeirra. Þeir félagar tefldu alls tólf skákir; gerðu jafntefli í sjálfum Landsliðsflokknum, 2-2 fóru leikar í fyrra úrslitaeinvígi þeirra og sjö skákir þurfti til í seinni úrslitaeinvíginu.


Fimm spennuþrungnir klukkutímar af skák, fjölmargir áhorfendur, eilífar sviptingar á borðinu; það var boðið upp á sýningu í Stúkunni í Kópavogi þann merkisdag 30. maí 2012. Þann dag varð sumsé stórmeistarinn Þröstur Þórhallsson Íslandsmeistari í skák í fyrsta sinn, og það á sínu 25. móti og 43 aldursári. Aðeins Ingvar heitinn Ásmundsson var eldri þegar hann varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn.


Miklar tilfinningar brutust út meðal keppenda eftir þessa fimm tíma setu. Fyrir afreksskákmann er það einfaldlega lífið sjálft í allri sinni dýrð að vinna skák eða sigra á móti, en tap getur leitt af sér bölvanlegt svartnætti, alveg bölvanlegt. Hvað sagði Fischer? „Chess is my life" og svo,  „Chess is better", þegar hann var spurður um samskipti sín við hitt kynið.


Nýi Íslandsmeistarinn er hokinn af reynslu við skákborðið. Hefur teflt á fjölda móta fyrir Íslands hönd og ávallt tilbúinn til allra þeirra verka er hann hefur sinnt fyrir íslenskt skáklíf. Tryggðin við þátttöku á Skákþingi Íslands, 25 skipti og sennilega um 250-300 skákir, segir sína sögu.


Með sigrinum tryggði Þröstur sér sæti í Ólympíuliði Íslands í skák. Það verður gaman að fylgjast með kappanum í Istanbúl. Þar mun þekkt barátta hans og seigla fá að njóta sín, og vonandi að hann slípi byrjanir sínar vel fyrir baráttuna, en sá þáttur taflsins hefur oft verið hans sísti.


Og svo er það sumarið, með skáksett út um allt.....



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.