Einbeittur Íslandsmeistari.
Maður uppsker eins og maður sáir. Svandís Rós Ríkharðsdóttir hefur lagt afar hart að sér síðustu árin; fáir jafnaldrar hennar hafa iðkað skákina jafnvel eins og hún. Sumarnámskeið Skákakademíunnar, skáknámskeið Skákskóla Íslands og skákæfingar í Rimaskóla hjá skólanum sjálfum og skákdeild Fjölnis. Svandís hefur verið virk í öllu þessu.
Og þá eru ótalin hin fjölmörgu mót sem hún hefur teflt á síðustu árin. Helga Ólafssyni skólastjóra Skákskólans hefur verið tíðrætt um mikilvægi þess að á bakvið unga skákkrakka sé stuðningur fjölskyldunnar. Sannast það í tilfelli Svandísar en foreldrar hennar eru óþreytandi í að fylgja henni á skákmót og eiga sinn þátt í sigri Svandísar um helgina.
Sigurinn tryggði Svandís sér í lokaumferðinni þegar hún lagði skólasystur sína úr Rimaskóla hana Nansý Davíðsdóttur að velli.
Nálægt 30 keppendur tóku þátt á Íslandsmótinu sem fram fór í Sjóminjasafninu Víkinni við glæsilegar aðstæður.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
