Bestu skákkonur Íslands.
Milli 60 og 70 stúlkur taka þátt í Íslandsmóti grunnskólasveita, stúlknaflokki, sem fram fer í Rimaskóla laugardaginn 4. febrúar og hefst klukkan 13. Nú eru fimmtán sveitir skráðar til leiks, mun fleiri en á síðasta ári. Heiðursgestur í Rimaskóla verður Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltrúi, sem mun flytja setningarávarp og leika fyrsta leikinn á Íslandsmótinu.
Rimaskóli er ríkjandi Íslandsmeistari grunnskólasveita í stúlknaflokki og teflir fram mjög öflugri A-sveit, sem ætlar sér að verja titilinn á heimavelli. Engjaskóli sendir þrjár skáksveitir til leiks og er það til marks um kraftmikið skákstarf á þeim bæ.
Margar af stúlkunum taka nú þátt í sínu fyrsta skákmóti, sem er vitnisburður um öflugt starf Skákakademíu Reykjavíkur, sem annast framkvæmd mótsins í samvinnu við Skáksamband Íslands.
Landsliðskonur í skák munu koma í heimsókn á mótsstað og tefla sýningarskákir, og starf Skákfélags fjölskyldunnar verður kynnt. Það var stofnað á Skákdegi Íslands, 26. janúar, og er m.a. ætlað að miðla upplýsingum til fjölskyldna skákbarna.
Á Íslandsmótinu verða tefldar 7 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma og stendur mótið frá 13 til 16. Allir eru velkomnir á Íslandsmótið í Rimaskóla að fylgjast með meisturum framtíðarinnar.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
