ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Skáklandið

Skáklandið

Stefán Bergsson er framkvæmdastjóri Skákakademíu Reykjavíkur sem stendur fyrir skákkennslu í grunnskólum Reykjavíkur.
Sjá nánar á skakakademia.is/um-felagid/starfsmenn/

SKÁK Í ALLA SKÓLA Í EVRÓPU - LESTU!

09:50 › 18. febrúar 2012

Rakst á frétt á netinu sem hljóðar einhvern veginn svona:


"Evrópuþingið vill að skák verði kennd við alla grunnskóla í Evrópusambandinu. Ganga á til atkvæðagreiðslu um málið í næsta mánuði og það yrði þá sent framkvæmdanefnd sambandsins til afgreiðslu í framhaldinu.


Þingið telur að skákiðkun skólabarna hafi ýmislegt jákvætt í för með sér. Hún skerpi m.a. á athyglisgáfu, sköpunargleði og einbeitingu barnanna.


Tveir af dönsku fulltrúunum á þinginu eru þó æfir yfir þessum áformum og segja þau grófa íhlutun í menntastefnu Danmerkur."


STÓRT LIKE Á ÞETTA!!


Skák er svakalega góð fyrir krakka, það þurfa sko alls ekkert allir að verða einhverjir afreksmenn. Skákin þroskar einfaldlega alls kyns þætti hjá krökkum; minni, rökhugsun, ákvarðanatöku, sköpun, einbetingu, reiknigetu, hugsa fram í tímann og fleira.


Og menn læra að taka tapi og bera virðingu fyrir andstæðingnum og viðfangsefninu; takast í hendur fyrir og eftir skák.


Ég er t.d. með ótrúlegt minni varðandi símanúmer og nöfn, pottþétt mín skákiðkun sem barn sem stuðlaði að því, ásamt auðvitað fleiru. Það er margt sem þroskar huga krakka eins og t.d. klassískt tónlistarnám - og skákin er líka svakalega gott tæki til þess.


Það er svo eitt stórmerkilegt við skákina; hún hefur reynst nemendum með ýmis vandamál mjög vel. Nemendur sem finna sig ekki í hefðbundni skólastofu, brjóta allt og bramla og rífa sig við hvern sem er geta sest niður rólegir við skákborð og teflt. Þetta hef ég eftir skólastjórnendum og fleirum sem sinna börnum og unglingum sem hafa ekki fundið sig í hinu hefðbundna skólakerfi.


Það er ef till vill frelsið og sköpunargleðin við taflborðið  sem þessi hæfileikaríku ungmenni njóta; í skák er ekkert blað, engin blýantur, engin fyrirmæli, engin ng- og nk regla, þú bara sest og teflir og lætur reyna á leyndardóma taflborðsins eins og þú sjálfur vilt.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?