Ungu mennirnir Jón Kristinn Þorgeirsson frá Akureyri og Vignir Vatnar Stefánsson ásamt fulltrúa Skáklandsins.
NM hefst eftir nokkra tíma. Mikil eftirvænting ríkir í hópnum enda eitt skemmtilegasta mót hvers árs að hefjast. Keyrslan er mikil og tefldar verða tvær umferðir næstu þrjá daga. Þá munar um að aðstæður séu góðar sem þær eru svo sannarlega í þetta skiptið.
Hér er sauna, pottur og fín sundlaug að hætti Finnanna. Hótelherbergin og maturinn eru svo í fínum málum.
Keppnissalurinn er virkilega flottur og verða sýndar 17 skákir beint í hverri umferð.
1. umferð hefst 11:00 að íslenskum tíma og verður þá um helmingur íslensku keppendanna í beinni útsendingu.
Bein útsending og allt um mótið má nálgast á www.skak.is




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
