Skáksveit Laugalækjarskóla milli umferða.
Spennan var mikil fyrir síðustu umferðina á Reykjavíkurmóti grunnskólasveita sem fram fór í kvöld og spenntasti maðurinn á svæðinu án efa Svavar Viktorsson liðsstjóri Laugalæks. Fór svo að drengirnir hans stóðust pressuna og gerðu 2-2 jafntefli gegna Rimaskólasveitinni og tryggðu sér þannig Reykjavíkurmeistaratitilinn.
Sannarlega glæsilegt hjá Laugalækjarstrákunum sem eru flestir nemendur í Skákskóla Íslands og njóta jafnframt góðs af því mikla skákstarfi sem unnið er í sínum grunnskóla. Þar eiga mestan heiður Jón Páll Haraldsson aðstoðarskólastjóri og áður nefndur Svavar sem er kennari við skólann.
Sveit Reykjavíkurmeistaranna skipa; Rafnar Friðriksson, Jóhannes Kári Sólmundarson, Garðar Sigurðarson og Arnar Ingi Njarðarson.
Allt um mótið má sjá á www.skak.is á morgun.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
