Símon.is

Símon.is

Tækniblogg um snjallsíma og allt sem þá snertir.

  • Búðu til þitt eigið tímarit með Flipboard 2.0 – myndband

    27. mars 2013

    Ný útgáfa af Flipboard kom út í dag fyrir iOS. Stærsta breytingin er sú að nú geta notendur sett sig í spor ritstjóra og búið til sín eigin tímarit. Með því að smella á plús við hverja grein, myndband, hljóðbút, tweet eða Facebook status er hægt að bæta við efni í tímaritið sitt og velja svo hvort það sé opið (public) eða til einkanota (private). Aðrir Flipboard notendur geta svo gerst áskrifendur að Flipboard tímaritum sem búið er að safna saman þeim að kostnaðarlausu.


    Flipboard gáfu út myndband sem útskýrir helstu breytingarnar:



    Þessi nýja útgáfa af Flipboard er aðeins fáanleg fyrir iPhone, iPad og iPod touch eins og er en Android útgáfa er væntanleg.


    Sækja Flipboard 2.0 (iOS)

    Sækja Flipboard fyrir Android


    Heimild:

    Flipboard.com



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Sony Xperia Z settur í súpu – Myndband

    22. mars 2013

    Nýjasta flaggskip Sony, Xperia Z, hefur vakið mikla athygli fyrir það að vera vatnsheldur. Við höfum séð ýmis myndbönd af honum í vatni, en þessi kínverski Sony aðdáandi ákvað að taka það skrefinu lengra og skella honum í súpu. Við mælum með að fylgjast með frá 1:00.



    Uppskrift: Sony Xperia Z grænmetissúpa


    3 gulrætur

    2 kartöflur

    1 sæt kartafla

    1 rófa

    1 blaðlaukur

    1/2 laukur

    2 hvítlauksgeirar

    1 Sony Xperia Z

    Salt og pipar eftir smekk


    Léttsteikið laukinn í olíunni, bætið út í hvítlauk og loks restinni af hinu grænmetinu. Kryddið og bætið við vatni svo það rétt fljóti yfir. Látið sjóða í 30-40 mín. Bætið út í Sony Xperia Z og sjóðið í 1 mínútu. Berið fram með nýbökuðu brauði eða salati.



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Google Keep – Minnismiðar og glósur í skýinu

    20. mars 2013

    Orðrómar um að Google hafi ætlað að setja í loftið minnismiða- eða glósuapp hafa lengi verið á kreiki. Nýlega birtist þjónusta sem kallast Google Keep í stutta stund á Google Drive, en henni var kippt út nánast samstundis. Google kynnti nú fyrir stuttu þessa nýju þjónustu með bloggfærslu og myndbandi.



    Google Keep er mjög einfalt. Þar er hægt að sjá alla þá minnismiða sem maður er með virka, bæta inn nýjum og henda þeim sem maður þarf ekki lengur. Tvær tegundir eru af minnismiðum; textamiðar og tékklistamiðar. Hægt er að skrifa texta á miðana, taka mynd eða nota raddgreiningu Google til þess að skrifa á miðann fyrir sig. Eins og stendur virkar bara bandarísk enska, en þar sem íslenska er studd af Google raddlyklaborðinu mun stuðningur fyrir hana eflaust bætast við fljótlega. Það er hægt að velja milli 8 lita fyrir minnismiðana og því hægt að koma upp kerfi. Appið syncar svo við Google Drive og er hægt að nálgast minnismiðana á drive.google.com/keep.


    simon-google-keep-app1

    Hægt er að lita minnismiðana í 8 mismunandi litum og nota raddgreini til þess að láta appið skrifa.



    Fyrir þá sem eru með Android 4.2 er hægt að bæta Google Keep beint á læsiskjáinn með skjátæki (e. lock screen widget) og gera nýja minnismiða án þess að aflæsa símanum.


    simon-google-keep-app2

    Það er hægt að merkja við í listunum og setja appið sem skjátæki (e. widget) á læsiskjáinn.



    Það er tími tilkominn að Google gefi út almennilegt minnismiðaapp og eru þeir greinilega að fara í beina samkeppni við aðrar þjónustur eins og Evernote. Samkvæmt myndbandinu á að vera hægt að deila minnismiðum með öðrum og vinna saman í þeim, en við gerð þessarar greinar er þjónustan búin að vera í loftinu í um 30 mínútur og því virkar ekki allt sem skyldi, eins og til dæmis að deila greinum eða vinna með þær á Google Drive.


    Eins og stendur er Google Keep eingöngu komið út á Android og sem viðbót við Google Drive.


    simon-google-keep-desktop2

    Google Keep er viðbót við Google Drive.



    Nálgast má Google Keep á Play Store og á Google Drive.



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Windows Phone – Líftími og uppfærslur

    19. mars 2013

    Allar vörur eiga sinn líftíma hjá framleiðendum og er Microsoft engin undanteknir þar á. Nýlega fundu menn upplýsingar um líftíma Windows Phone á heimasíðu Microsoft, en þar kemur fram kemur að Microsoft styður að fullu WP7/WP8 í 18 mánuði eftir að líftími kerfisins hefst.


    Þetta hefur vakið mikla athygli síðustu daga þó svo Microsoft hafi sagt frá þessu við nokkur tækifæri allar götur síðan Windows Phone 7 kom á markað.


     


    Hvað þýðir þetta fyrir notendur


     


    Windows Phone 7



    • Kom út í nóvember 2010 sem segir okkur að lífhringi kerfisins hefði átt að ljúka í maí 2012.

    • Uppfærslan (Mango) kom út í lok árs 2011 og þar með byrjaði nýr 18 mánaða hringur

    • Um mitt ár 2012 kom önnur minniháttar uppfærsla sem bar nafnið Tango

    • Í byrjun febrúar 2013 kom 7.8 uppfærslan sem bætti öðrum 18 mánuðum við líftíma kerfisins


    Það var mikil óænægja með að ekki væri hægt að uppfæra Windows Phone 7 í Windows Phone 8 og er sú óánægja nokkuð skiljanleg. Windows Phone 7.8 er engu að síður nokkuð stór uppfærsla sem er að fullu stutt þangað til í september 2014, af því gefnu að það komi ekki önnur stór uppfærsla fyrir Windows Phone 7


    Það er því orðið ljóst að Windows Phone 7 er með fullan uppfærslu- og öryggisstuðning frá Microsoft í hið minnsta tæplega 4 árum eftir að kerfið kemur á markað.


     


    Windows Phone 8



    • Kom út í desember 2012 og þannig lýkur opinber stuðningur við Windows Phone 8 í júlí 2014.


     


    Telja má mjög líklegt að Microsoft komi með uppfærslu sem endurnýjar líftíma Windows Phone 8 stýrikerfisins en talað hefur verið um Windows Phone 8.5/9 eða jafnvel Windows Phone Blue seinna á þessu ári.


     



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Candy Crush – Sykursýki í símanum

    19. mars 2013

    Candy crush er klassískur púslu leikur. Mismunandi takmörk eru í hverju borði, hvort sem það er að hreinsa ákveðna reiti, koma einhverjum hlutum út af borðinu eða safna eins mörgum stigum og mögulegt er á ákveðnum tíma. Notandinn nær því í gegn með því að raða saman þremur eða fleiri skærlituðum nammibitum. Leikurinn kom út fyrir um það bil ári á Facebook og iOS og er arftaki hásætisins um mest spilaða farsímaleik heims, Draw Something. Það hafði haldið harðri hendi lengi eða þar til Zynga gerði í brók með óvinsælum ákvörðunum.


    unnamed (2)Leikurinn inniheldur 245 sykurfylltborð sem ætti að halda notenandum óviðræðuhæfum í einhverja stund, eða þar til hann klárar lífin sín 5 og þarf að bíða í einhvern tíma eftir að þau endurhlaðist. Notandinn getur líka keypt sér nokkur auka líf fyrir alvöru peninga.


    Með því að ná þremur nammibitum í röð hverfa þær, með því að ná fjórum í röð verður til ofurnammi eða einskonar plast innpakkað nammi sem springur.                                                                                                             Ef þér tekst hinsvegar að ná fimm saman verður til ofurnammi sem getur eytt út ákveðinni sort af nammi.


     



    Leikurinn er ekta fríleikur þar sem hægt er að kaupa ýmislegt fyrir alvöru pening til þess að auka við leikinn.


    Hægt er að versla hina og þessa krafta sem hjálpa notandanum að ná fram einhverjum af takmörkum leiksins og allar eru lausnirnar smekkfullar og  sykurhúðaðar af skammvinnum lausnum til að ná hærri stigum en vinir þínir. Þú getur keppst við vinin þína sem eru að spila á Facebook, Android eða iOS. Það er einnig hægt að spila leikinn í friði án Facebook tengingar, en það gerir biðina milli lífa lengri, en hentar þó vel fyrir salernisferðir eða á sjaldförnum göngutúrum um götum bæjarins.


     


    Þessi leikur er hin fínasta tímaeyðsla,


    unnamed (1)


    notandinn þarf bara að vera viss um að litlar hendur séu ekki að komast í leikinn og að versla sér aðstoð við að komast áfram í leiknum. Þolinmæði þrautir vinnur allar, passið ykkur bara að vera ekki pirrandi á Facebook að biðja um aukalíf.


    Android útgáfan


    iPhone/iPad útgáfan



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd