Símon.is

Símon.is

Tækniblogg um snjallsíma og allt sem þá snertir.

  • HTC á MWC2012

    13. mars 2012

    HTC átti Mobile World Congress 2012 með HTC One línunni.


    Þrír símar munu koma út í þeirri línu og sá stærsti var kosinn sími ráðstefnunnar: HTC One X. Sá sími verður með 4,7″ Super IPS LCD2 háskerpuskjá (720p), fjórkjarna 1,5 GHz örgjörva (Tegra 3), 1GB vinnsluminni, 32G geymslupláss, 8MP “double shutter” myndavél með F2.0 ljósopi og Android 4.0 stýrikerfinu. Einnig verður ytra byrðið bakað eins og keramik sem gerir það extra sterkt og þunnt (8,9 mm). Double shutter eiginleikinn gerir myndavélinni kleyft að taka myndir á meðan tekið er upp myndband. Einnig fylgja með Beats Audio tónlistarstillingar (e. glorified equaliser).



    HTC One S fylgir þessum á eftir og er aðeins minni með 4,3″ S-AMOLED skjá með qHD upplausn, tvíkjarna 1,5 GHz örgjörva (Krait), 1GB vinnsluminni, 16GB geymslupláss, 8MP “double shutter” myndavél og Android 4.0 stýrikerfinu. Þessi sími er enn þá þynnri en One X og er 7,8mm! Sjálfur er ég mjög hrifinn af þessum, en eina sem vantar er 720p háskerpuupplausn á skjáinn og microSD rauf (þá væri hann fullkominn).



    Að lokum er það HTC One V sem er sá ódýrasti. Hann verður með 3,7″ skjá, 1 GHz örgjörva, 512 MB vinnsluminni, 4GB geymslupláss, 5MP myndavél og Android 4.0. One V verður með höku eins og HTC Legend sem var talinn vera fyrsti fallegi Android síminn á sínum tíma. Þessi er stendur aðeins út úr þessari ætt og á varla heima með bræðrum sínum. Furðalega er að þetta er eini síminn í ættinni með microSD rauf.



    HTC One V



    Þetta eru allt ótrúlega flottir Android símar og það besta er að HTC hefur lofað því að setja HTC Sense skinnið sitt í megrun. Það er orðið alltof þungt og fyrirferða mikið (jafnvel þó það hafi marga góða eiginleika). Þeir hafa einnig tekið á einum af tveimur stærstu hönnunargöllunum sínum: þeir hafa fækkað snertitökkunum úr fjórum í þrjá (back, home og menu) og takkinn fyrir leit er horfinn! Skjálæsingartakkinn er því miður enn þá ofan á símanum og nær ómögulegt að ýta á hann einhentur nema maður hafi hendur á við körfuboltaleikmann. Sumir hlusta á eitthvað af því sem viðskiptavinir sínir hafa að segja.


     


    Simon.is á fleiri miðlum



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Hugmyndakeppni Jónsson & Le’macks

    13. mars 2012

    Auglýsingastofan Jónsson & Le’mack efnir til hugmyndakeppni þann 24.mars með svokölluðu Hackathon sniði.


    Einstaklingar eða teymi mega koma með hugmynd að appi eða vefsíðu eða bara einhverju sniðugu. Hugmyndin er send á J&L fyrir 24. mars og þær fimm bestu valdar áfram. Hver hugmynd er svo pöruð grafískan hönnuð og reynt að útfæra hana þann 24.mars klukkan 10:00 innan 24 klukkustunda. Í boði verða kaffi og pönnukökur! Om nom.


    Hver hugmynd fær .com lén og hýsingu ef þess þarf (sem og aðstoð við að koma síðunni upp). Á svæðinu verður starfsfólk J&L sem vinnur við að gagnrýna, endurbæta og framkvæma hugmyndir af öllum toga.


    Hér má finna finna meira um atburðinn: http://www.jl.is/breakfast/


    Simon.is hvetur alla lesendur að taka þátt og senda inn hugmynd að appi ;)



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Apple auglýsir nýja iPad – Myndband

    12. mars 2012

    Nýi iPad kemur í verslanir á föstudaginn í Bandaríkjunum og nokkrum löndum. Viku síðar, á föstudaginn 23.mars, kemur hann í verslanir mjög víða, m.a. á Íslandi. Apple er nú þegar byrjað að auglýsa iPadinn í sjónvarpi. Augljóst er að fyrirtækið leggur mikla áherslu á gæði skjásins og ýmsa möguleika á myndvinnslu í þessu nýja tæki. Sjáið meðfylgjandi auglýsingu.



    Einnig má sjá nokkuð ítarlegt ríflega fimm mínútna myndband frá Apple þar sem fjallað er um allt það helsta sem nýi iPad hefur upp á bjóða.



     



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Frítt 50GB geymslupláss á netinu sem virkar einnig í síma/spjaldtölvu!

    9. mars 2012

    Box.com er þjónusta sem er afar svipuð og Dropbox. Þú geymir skjölin þín í skýinu þeirra og getur nálgast í síma, spjaldtölvu eða tölvu hvar sem er í heiminum. Þeir eru með sérstakt tilboð til 23. mars þar sem að allir sem skrá sig með Android appinu geta fengið frítt 50GB geymslupláss til æviloka!



    Box.com virkar þó ekki eingöngu á Android, heldur eru þeir einnig með iOS app og vefþjónustu sem er hægt að nýta sér. Ég ákvað að skella mér á þetta tilboð og get ég ekki sagt annað en að ég sé mög ánægður, svo ánægður að ég fékk mér þrjá reikninga hjá þeim og er nú með 3x50GB pláss! Ég get geymt skjöl, myndir og öryggisafrit og það er mjög auðvelt að setja þau inn. Box býður líka upp á ýmsar viðbætur, eins og til dæmis að tengja Box beint inn á Gmail aðganginn manns, deila möppum með öðrum Box notendum og að deila skrám beint af boxinu til annara.


    Ég er í ofboðslega gjafmildu stuði. Ef þið eruð svo óheppin að eiga ekki Android tæki þá getið þið sent mér netfangið ykkar á axel [hjá] simon.is og ég skal skrá ykkur þannig að þið fáið 50GB pláss! Ekki láta þetta tilboð framhjá ykkur fara, það gildir til 23. mars.


    Box appið má finna á Google Play og App Store 



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Settu upp HÍ póstinn í iPhone – Leiðbeiningar

    9. mars 2012

    Við fengum fyrirspurn hvort við gætum aðstoðað við að setja upp Háskóla Íslands póstfang í iPhone. Úr varð að setja saman leiðbeiningar sem allir ættu að geta notað til að setja upp HÍ póstfang í símann. Leiðbeiningarnar miðast við uppsetningu í iOS 5 og gildir því jafnt um iPhone, iPad og iPod Touch. Uppsetning í eldri stýrikerfum er eins að mestu leyti. Því ættu þessar leiðbeiningar að koma að gagni.


    Farið í Settings  og veljið Mail, Contacts, Calendars og Add Account…



    Veljið neðsta möguleikann Other



     


    Veljið efsta möguleikann Add Mail Account



     


    Fyllið í reitina nafnið ykkar, netfang og lykilorðið fyrir Ugluna og veljið next



    Nú þarf að setja inn nokkrar stillingar. Uppi ætti IMAP að vera valið (blátt). Undir Incoming Mail Server setjið inn imap.hi.is, notandanafn og lykilorð (sama og í Uglu og vefpóst). Neðar undir Outgoing Mail Server þarf að setja inn smtp.hi.is og aftur notendanafn og lykilorð. Að þessu loknu skal ýta á save hnappinn sem er uppi í hægra horninu (myndirnar sýna sömu valmyndina, bara efri hlutann og þann neðri).



     


    Ef allar upplýsingar eru réttar kemur þessi skjár þar sem Mail er sjálfvalið. Þarna skal velja Save uppi í hægra horninu og þá hefur pósturinn verið settur upp.



    Ef þú vilt setja upp HÍ póstinn í Android tæki þá höfum við gert leiðbeiningar sem eru hér.



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd