Símon.is

Símon.is

Tækniblogg um snjallsíma og allt sem þá snertir.

  • Mogginn og Appið

    11. maí 2012

    Í gær kynnti Morgunblaðið með miklum látum nýtt app fyrir iPad. Á sama tíma kynntu þeir einnig tilboð þar sem iPad fylgir sérstökum iPad áskriftum ef gerður er 30 mánaða raðgreiðslusamningur. Þetta er í takt við það sem mörg dagblöð víða um heim hafa gert á síðustu árum til að bregðast við hruni í áskriftarsölu og lestri. Vandamál dagblaða um allan heim eru augljóst: gríðarlegt framboð af vönduðu efni frítt á netinu. Íslensku blöðin eru engin undantekning frá þessu. Morgunblaðið horfir auk þess upp á það að stærsti samkeppnisaðilinn ber sitt blað frítt inn á flest heimili. Morgunblaðið vill augljóslega breyta þessari þróun og ná til lesenda sem hafa engan áhuga á því að fá dauð tré inn um bréfalúguna reglulega. Nálgun morgunblaðsins er hinsvegar mikil vonbrigði. Fyrir þá sem vilja geta lesið Moggann eins og hann er í iPad þá gerir appið það reyndar þokkalega. Appið er frekar einfalt: Ein valmynd þar sem blöð dagsins sjást og blöð síðustu daga og með einum hnappi er þeim halað niður. Blöðin eru svo sótt sem PDF skrár. Eitt pirraði mig þó við appið, þegar nokkrum síðum er flett í einu þá birtast síðurnar úr fókus fyrstu sekúndunar á meðan forritið hleður. Fyrir þá sem eru vanir að skima hratt yfir blaðið er þetta mjög leiðingjarnt og óþægilegt.


    En stóru vonbrigðin við appið er einmitt það að þetta er sama Morgunblaðið og hefur verið hægt að sækja af mbl.is. Dautt PDF skjal án allrar gagnvirkni. Ekkert er gert til þess að nýta frábæra skjáinn sem iPad kemur með, engin myndbönd, engar hreyfimyndir heldur aðeins dauð ljósmynd af hverri síðu. Til dæmis er upplifunin að fara á mbl.is margfalt betri, þar eru vel unnin myndbönd sem bæta við texta fréttanna, áhugaverðir netþættir og myndaalbúm við greinar. Þetta er efnið sem Morgunblaðið á að pakka í vandaðar umbúðir og bæta við ítarlegum fréttaskýringum ásamt vönduðum viðtölum sem birtast einungis í prentuðu útgáfu blaðsins.


    Þarna er kjarni málsins. Öll sú athygli sem appið hefur fengið sýnir okkur það að fólk hefur ennþá áhuga á gömlu dagblöðunum. Hvort það skili sér í aukinni sölu er erfitt að segja til um. Fyrir flestum er tilboð Moggans í raun raðgreiðslusamningur á nýjum iPad, vaxtalaust. Það að Mogginn fylgi frítt með er í raun aukaatriði, sérstaklega þegar hann er jafn óaðlaðandi og raun ber vitni. Það hlýtur að vera tilgangur þessa verkefnis að eftir þessa 30 mánuði hafi upplifunin af Morgunblaðinu verið það góð að áskriftin sé endurnýjuð. Ég er sjálfur áskrifandi af nokkrum blöðum í gegnum Appstore og myndi vel hugsa það að kaupa iPad áskrift af Morgunblaðinu. En til þess að risinn í Hádegismóum fái minn pening þá þarf hann að gera betur, miklu betur.


    Simon.is á fleiri miðlum


     



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Hart stríð um einkaleyfi

    10. maí 2012

    Jú, það virðist sem að helvíti hafi frosið í seinustu viku. Suður-Kóreski raftækjaframleiðandinn Samsung fékkst til að fækka  einkaleyfismálsóknum sínum úr 75 málum niður í 15 mál og á móti fékkst Apple til að fækka sínum málum niður í  8 mál sem eru enn óleyst. Þetta þykir athyglisverður punktur í sögunni endalausu um einkaleyfin en baráttu er á engann hátt lokið og fara kærurnar fyrir dómara í Norður-Kaliforníu 30.júlí næstkomandi.


    Kærur Apple

    Kærur Samsung


    Nýjasti Samsung Galaxy síminn, Galaxy SIII, er einmitt talinn vera sérstaklega hannaður til að brjóta engin einkaleyfi frá Apple. Samsung og Apple eru einmitt nátengd þar sem Samsung framleiðir stóran hluta af innvolsinu í vörum Apple eins og iPhone og iPad.


    Heimild:


    http://www.engadget.com/2012/05/08/apple-and-samsung-finally-agree-to-drop-a-plethora-of-claims-fr/


    http://www.androidpolice.com/2012/05/04/the-samsung-galaxy-s-iii-the-first-smartphone-designed-entirely-by-lawyers/


     


    Simon.is á fleiri miðlum




    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Einn gamall og góður: Uppvakningar í fortíð, framtíð og nútíð! – Age of Zombies

    8. maí 2012


    Brjálaður prófessor hefur sent uppvakninga til ýmissa tímabila í sögunni til þess að eyða heiminum. Ein hetja verður að bjarga öllu frá eyðileggingu og fellur það hlutverk á ofurnaglan Barry Steakfries í leiknum Age of Zombies. Markmið leiksins er einfalt: ferðast í gegnum tímann og drepa uppvakninga áður en þeir drepa þig.


    Leikurinn er nokkuð einfaldur í spilun, tveir stýripinnar birtast vinstra og hægra megin á skjánum þar sem þú ýtir þumlunum niður. Vinstri stýripinninn stjórnar hreyfingum Barry og sá hægri stjórnar í hvaða átt hann skýtur. Uppvakningar birtast víðsvegar um borðið og stefna allir í áttinna að spilaranum í þeim tilgangi að éta hann lifandi. Það eina sem þarf að gera er að skjóta þá og hreyfa sig áður en þeim tekst að rífa úr þér heilann.


    Barry ferðast í gegnum 5 tímabil í mannkynssögunni: Fornöld, Egyptaland til forna, Japan á Shogun tímanum, árið 1930 og óskilgreinda framtíð. Mismunandi óvinir birtast á þessum tímabilum og má meðal annars nefna hellisbúa og T-Rex risaeðlu sem hafa orðið að uppvakningum. Ýmis vopn eru í boði í leiknum og má þá helst nefna haglabyssu, handsprengju, eldvörpu og vélbyssu.


    Hönnuðir leiksins, Halfbrick, eru ekki neinir nýgræðingar þegar kemur að því að búa til frumlega og skemmtilega leiki (þeir gerðu til dæmis Fruit Ninja). Hérna hafa þeir tekið klassískt snið og gert virkilega skemmtilegan leik úr því. Húmorinn í leiknum er góður og fær mann oft til að hlæja með snilldar línum Barry Steakfries. Leikurinn tekur sig ekki of alvarlega og er hann fínasta skemmtun.


    Leikurinn er í boði á Android og iOs og kostar ekki nema $0,99 eða um 123 krónur.


     



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Draw Something uppfærsla – Nú getur forritið sent sms úr símanum

    4. maí 2012

    Draw Something, eitt vinsælasta appið í dag á Android og iPhone, var nýverið keypt af samfélagsleikjafyritækinu Zynga sem hefur fært okkur Facebookleiki eins og Farmville, Cityville, Mafiwars sem og keypt leiki á borð við Word with friends sem við fjölluðum um í ágúst í fyrra.


    Zynga keypti Draw something af OMGPOP á 180 milljónir bandaríkjadollara. Allt gott með það að segja fyrir utan nýjustu uppfærslu Zynga á leiknum.


    Aðgangsheimildum leiksins í Android tækjum hefur verið breytt þannig að appið hefur nú heimild til að senda sms úr símanum án þess að þú vitir af því. Ekkert er hægt að gera til að koma í veg fyrir þetta nema að eyða leiknum úr símanum, sem margir hafa gert til að mótmæla þessari uppfærslu.


    Um aðgangsheimildir appsins segir á play.google.com:


    SERVICES THAT COST YOU MONEY

    SEND SMS MESSAGES

    Allows the app to send SMS messages. Malicious apps may cost you money by sending messages without your confirmation.


    Allavega virðist fólk mjög ósátt með þessa uppfærslu og mun og hefur látið Zynga vita hvað því finnst. Hvað finnst þér um þetta?


     


    Simon.is á fleiri miðlum




    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Nær BlackBerry að snúa við blaðinu með nýju stýrikerfi?

    4. maí 2012

    Framleiðendur BlackBerry, Research In Motion (RIM), hafa á undanförnum misserum þurft að horfa á eftir ansi mörgum notendum sem hafa tekið ástfóstri við Android, WP7 og iOS. Þeir sáu fram á að þeir yrðu að gera eitthvað róttækt í sínum málum og stimpla sig hressilega inn á snjallsímamarkaðinn að nýju. RIM héldu því nýverið kynningu á nýju stýrikerfi fyrir komandi BlackBerry-símtæki, sem þeir hafa verið að þróa um nokkurt skeið.


    Stýrikerfið kallast BlackBerry 10 og er í grunninn byggt á QNX-stýrikerfinu, en það er stýrikerfi sem meðal annars hefur verið notað í nýlegum bílum með innbyggðum snertiskjám. BlackBerry 10 er töluvert frábrugðið þeim stýrikerfum sem BlackBerry notendur hafa vanist til þessa, enda er  mikil áhersla lögð á öpp, tilkynningar og þægilega framsetningu skjala (Word, PDF, Excel o.fl.).


    Lyklaborðið er mjög stórt atriði í BlackBerry 10, enda hefur BlackBerry yfirleitt státað af framúrskarandi QWERTY-lyklaborðum á sínum símtækjum. Þegar slegið er inn á lyklaborðið þá koma upp tillögur að næstu orðum sem geta sparað ansi drjúgan tíma í innslætti og síminn lærir með tímanum hvernig orðalagi notandans er háttað.

    BlackBerry10__keyboard_gallery_post

    BlackBerry10_glance1_gallery_post

    BlackBerry10


    Myndavélin í Blackberry 10 er einnig með ansi magnaðan fídus, sem lýsir sér þannig að ef tekin er mynd af einhverjum sem er með lokuð augun þegar smellt var af, þá er einfaldlega hægt að velja andlit viðkomandi á myndinni og spóla aftur/fram á þann tíma þar sem augun voru opin og ná þannig fram bestu mögulegu myndinni. Sjá nánar hér.


    Það er alveg ljóst að BlackBerry á ennþá möguleika miðað við þetta,  það verður fróðlegt að sjá hvort að BlackBerry 10 muni færa RIM sína gömlu kúnna á ný og jafnvel laða að nýja notendur. Það verður líka áhugavert að sjá hvort að BlackBerry takist að fara í harða samkeppni við hina risana með þessu nýjasta útspili sínu.


    Endilega horfið á myndbandið hér fyrir neðan og sjáið hvort BlackBerry 10 sé eitthvað sem þið gætuð hugsað ykkur að nota:



    Heimild:

    The Verge


     


    Simon.is á fleiri miðlum




    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd