-
Nokia kynnir Lumia 820 og 920
6. september 2012
Í gær héldu Nokia og Microsoft sameiginlega kynningu á Windows Phone 8. Nokia kynnti þar tvo nýja síma; Lumia 820 og 920. Lumia 920 er nýjasta flaggskip Nokia. Síminn kemur með 1.5 GHz tvíkjarnaörgjörva, 1GB í minni. Skjárinn er „pure motion HD“ 4,5″ sem á að vera mjög góður í sól. Síminn lýtur að mestu eins út og Lumia 900 og kemur í 5 litum; gulum, rauðum, svörtum, hvítum og gráum.
Eins og Lumia 800/900 (og N9) þá er síminn úr gegnheilu hágæðaplasti sem er litað í gegn og ætti því að halda lit þrátt fyrir nokkrar rispur. Myndavélin er 8.7 MP „PureView“ sem á samt fátt skilt við PureView símann með sinni 41MP myndavél annað en nafnið. Engu að síður lofar myndavélin góðu og er með innbyggðri hristivörn. Myndavélin tekur upp hreyfimyndir í fullri háskerpu (1080p). Síminn kemur einnig með þráðlausri hleðslustöð sem Nokia kallar Qi. Nokia ræddi hvorki verð né tíma en Simon.is mun án efa fjalla meira um Lumia 900 þegar hann kemur loks í sölu.
Hinn síminn sem Nokia kynnti var Lumia 820. Þrátt fyrir nafnið er erfitt að segja að hann sé arftaki Lumia 800. Síminn er bæði miklu stærri og hönnunin er allt öðruvísi. Síminn kemur með útskiptanlegu „hulstri“ sem hylur bak og hliðar símans. Örgjörvinn er sá sami en á Lumia 920 er skjárinn aðeins minni eða 4.3″. Upplausnin er hinsvegar vonbrigði, WXGA í stað HD á 920 (og flestum nýjum símum með 4.3″ skjá). Síminn styður einnig Qi þráðlausu hleðslustöðina.Hér má svo sjá tvær nýjar Lumia auglýsingar Nokia:
Upprunaleg færsla á Símon.isSkrifa athugasemd
-
Íslensk auglýsing tekin upp með Galaxy SIII
30. ágúst 2012
Ný auglýsing Símans hefur vakið mikla athygli síðan hún fór í almenna sýningu í síðustu viku. Auglýsingin er samstarfsverkefni Símans og Haralds Haraldssonar myndlistamanns. Auglýsingin er öll tekinn upp á Samsung Galaxy SIII síma og fóru upptökur fram í í húsakynnum tæknifræðideildar Keilis á Suðurnesjum. Fyrirsætan Anna Jia er í aðalhlutverki ásamt tveimur róbotum sem tæknifræðideildin notar við kennslu. Tónlistin var svo í höndum íslenska raftónlistarmannsins Prince Valium. Það er ekki hægt að segja annað en að útkomann sé áhugaverð og magnað að sjá myndgæðin sem hægt er að ná fram með nýjustu snjallsímunum. Hér fyrir neðan er hægt að sjá auglýsinguna og svo annað myndband sem sýnir vinnuna á bakvið tjöldin.
Skrifa athugasemd
-
HTC One S umfjöllun
27. ágúst 2012
HTC One S kom út fyrir sumarið og er miðjubarnið í One fjölskyldunni frá HTC. Simon er nú þegar búinn að fjalla um One X sem er flaggskipið og One V sem er ódýrari valkosturinn, sem fengu góða dóma hjá okkur. One S er frekar furðulega verðlagður og er of nálægt One X í verði. Hann hefur því ekki komið almennilega í sölu hérlendis og er einungis í boði hjá Hátækni sem flytur HTC inn til landsins.

Innvols
Síminn er með tvíkjarna 1,5 GHz S4 örgjörva og 1GB vinnslu minni, sem er alveg hreint ótrúlegt hraðvirkt. Þetta er einn sá hraðasti sem þú getur fengið og kemur hann betur út í flestum prófunum en fjórkjarna símar eins og One X og S3 (S3 slær reyndar alla út í vöfrun). Innbyggt í símanum er 16GB geymslupláss og hægt er að nota rétt yfir 12GB (4GB tekin frá fyrir stýrikerfið) og ekki er boðið upp á MicroSD rauf. Þrátt fyrir það þá lenti ég aldrei í vandræðum með pláss, en þeir sem horfa á á myndbönd á ferðinni gætu lent í vandræðum með það. Síminn réð við allt sem gerði á honum og þá mjög hratt.
Rafhlaða
Rafhlaðan er með 1650 mAh hleðslu sem telst vera eðlilegt í dag en er minna en á símum eins og One X (1800 mAh), S3 (2050 mAh) og 4XHD (2150 mAh). Þrátt fyrir það þá er þetta besta ending sem ég hef séð á snjallsíma. Hugbúnaðurinn og innvolsið er það vel fínstillt að síminn nær að nýta rafhlöðuna til lengri tíma. Síminn fær klárlega hæstu einkunn fyrir endingu.
Mynd og hljóð
Síminn er með sömu myndavél að aftan og One X er með, sem kom einmitt mjög vel út hjá okkur. Þetta er 8MP myndavél sem tekur myndir hratt og býður upp á burst mode, BSI (backside illumation) og F/2,0 ljósop. Einnig er hægt að taka 1080p myndbönd eins og ekkert sé. Það er aðeins lakari myndavél að framan fyrir myndsímtöl með VGA upplausn sem ætti að sleppa. Myndavélarappið sem fylgir með er mjög skemmtilegt og er það með filtera og fleiri skemmtilegar viðbætur. Eitt sem ég tók eftir var að myndavélin að framan var mjög dugleg að safna ryki enda með mjög skörpum köntum.

Skjárinn er stór, en ekki of stór eða 4,3″ með 540×960 upplausn. Þetta er einmitt stærðin þar sem flestir geta enn notað símann einhentir, sem mér er persónulega mjög annt um að geta. Þetta er Super AMOLED pentile skjár og er mjög svipaður því sem við höfum séð á Motorola Razr. Skjárinn sýnir góða svarta liti en ýkir flesta aðra liti og sérstaklega bláan. Þessi skjár á ekkert skylt við skjáinn á One X, sem er besti skjárinn sem þú færð á síma í dag, en er þó nothæfur.
Hátalarinn er aftan á símanum en það heyrist vel í honum. Það heyrist mjög vel í heyrnatækinu fyrir símtöl og enginn kvartaði yfir að heyra illa í mér. Síminn kemur með Beats hljóðblandara (e. equalizer) sem bætir hljómgæðin fyrir heyrnatól. Heyrnatólin sem fylgja með eru ekki frá Beats (sem ég átti von á) og voru þau vonbrigði.
Hönnun
Síminn er mjög flottur og vel hannaður. Hann er mjög þunnur (7,8 mm!) og nettur. Mun nettari en One X (8,9 mm) og S3 (8,6 mm) og fellur mjög vel að hendi. Ytri byrðin er búin til úr möttu áli sem reyndar frekar sleipt. Síminn ætti samt að þola mikla refsingu með þessum álramma, sem fær í gegnum sig 10.000 volt af rafmagni við framleiðslu bara til að herða hann.

Síminn kemur í tveimur litum: silfri og dökkum brúnleitum lit (sem er kallaður svartur?) sem eru báðir mjög flottir. Ég fíla sérstaklega rauða litinn í kringum myndavélina á dökka símanum. Það eru bara tveir takkar á símanum: ræsitakki efast á símanum og hljóðstyrkstakki á hægri hlið. Ræsitakkinn er mjög illa staðsettur og þyrfti helst að vera á hægri hlið símans. Ég myndi segja að það væri stærsti galli þessa síma og hann gerði það að verkum að það var mjög leiðinlegt að kveikja á símanum. Vonandi laga þeir það á næsta síma. Neðst á skjánum eru þrír snertitakkar: til baka (sem er alveg til vinstri), heim (í miðjunni) og fjölverkatakki. Eftir að hafa notað slatta af Samsung símum, þá finnst mér mun þægilegra að hafa til baka hægra megin (fyrir rétthenta). Einnig þá finnst mér fjölverkatakkar óþarfir á símum, en sniðugir á spjaldtölvum. HTC leysti það vandamál nýlega og er nú hægt að breyta fjölverkatakkanum í gamla góða valmyndartakkann (heldur niðri fyrir opin forrit). HTC fær fullt af stigum fyrir það.
Ég lenti í vandræðum með prufu eintakið mitt. Málningin á það til að flagna efst þar sem ræsitakkinn er. Þegar símkort er sett í, þá þarf að taka af plastlokið sem er efst á símanum.Við það brotnar málninginn og skilur eftir lítil sár þar sem glittir í álið undir því. Þetta er mjög ljótt og kemur óvart því þessi 10.000 volt áttu víst að koma í veg fyrir slíkt. HTC hefur viðurkennt gallann og er hann mjög sjaldgæfur. Ef þetta gerist, þá skipta þeir símanum út. Sjá frétt frá Engadget.
One S notar sama viðmót og One X sem er kallað HTC Sense 4.0 (sem fékk reyndar nýlega uppfærslu). Það er fallegt og nothæft, en mjög þungt viðmót. Aflæsingarskjárinn býður upp á að aflæsa beint í fjögur forrit að eigin vali, sem er þægilegt. Ég ætla ekki að skrifa mikið um viðmótið, annað en að segja að það er nothæft en ég er almennt hrifnari af venjulegu viðmóti Android. Síminn kemur með Android 4.0 (Ice Cream Sandwich) en HTC hefur staðfest uppfærslu upp í 4.1 (Jelly Bean)
Niðurstaða
Frábær sími! Verst að hann er illa verðlagður og ekki seldur hér heima hjá fjarskiptafélögunum og öðrum smásölum. Það sem hefði gert þennan síma fullkominn hefði verið betur staðsettur ræsitakki, 800×1280 upplausn og sama skjátækni og One X. Skoðum nú kosti og galla:
Kostir
- Hraður
- Vel hannaður
- Rétt stærð (4,3″)
- Skemmtileg myndavél
- Góð ending rafhlöðu
Gallar
- Furðulega verðlagður
- Venjulegur skjár
- Lélegur og illa staðsettur ræsitakki
Simon.is gefur HTC One S 8,6 af 10 mögulegum í einkunn.
Upprunaleg færsla á Símon.isSkrifa athugasemd
-
Optimus 4XHD, ódýrari flaggskip
25. ágúst 2012
LG hefur ekki átt marga sigra undanfarið í farsímageiranum og símanir þeirra ekki að koma vel út í samanburði við Apple og Samsung. LG er þó enn í fimmta sæti yfir vinsælustu farsímaframleiðendur í dag og hefur tekið fram úr gamla risanum Nokia (vegna falls þeirra).
LG gefa út Optimus Android farsímalínuna og hefur hún aldrei boðið upp á velheppnaðar dýrari týpur. Ég notaði sjálfur tvær af þeim: Optimus 3d og Optimus 2X, sem eru líklega tveir verstu Android símar á 100 þúsund krónur sem ég hef notað. LG hefur nú gefið út arftaka Optimus 2X, sem heitir auðvitað því skemmtilega nafni Optimus 4XHD. LG hefur greinilega lagt mikið á sig við hönnun þessa síma og hlustað á notendur sína. Þetta er 100 þúsund króna síma með hágæða innvolsi sem gæti komið skemmtilega á óvart.Innvols
Þetta er þriðji síminn á íslenskum markaði með fjórkjarna 1,5GHz örgjörva og í þetta skiptið er þetta Tegra 3 sem er einnig í HTC One X. Tegra 3 stendur sig afskaplega vel og sérstaklega þegar það fylgir með 1GB af vinnsluminni. Síminn er mjög hraður og snöggur og nýtir sér örgjörvann vel við allar hreyfimyndir í viðmóti símans. Síminn skilar fínum afköstum í Quadrant 2 og nær þar 3740 í einkunn. Það er þó langt frá One X (4890) og Galaxy S3 (5899). Vöfrum var einnig ekkert sérstaklega hröð í samanburði við aðra fjórkjarna síma og einnig var hann frekar lengi að hoppa á milli forrita. Það er greinilegt að viðbætur og breytingar LG leiða að því að draga niður afköst þessa örgjörva. Síminn kemur með 16GB geymslupláss (12,26GB aðgengileg) og microSD til að bæta við meira plássi. Þetta er fínt innvols miðað við verð.
Rafhlaða
4XHD er með eina stærstu rafhlöðu sem ég hef séð: 2150 mAh. Það er stærra en á Galaxy S3 og One X. Síminn nær illa að nýta sér það og er að endast mér svipað langt og One X (sem er með 1800 mAh rafhlöðu). Það gæti samt verið því að kenna að skjárinn er mjög bjartur og sjálfvirkarbirtustillingar ekki að virka vel. Ég notaði því flýtitakka efst í tilkynningargardínunni til að hoppa á milli birtustiga og það sem var í boði var: engin birta, 50% birta og 100% birta. Ég endaði oftast á 50% og hoppaði upp í 100% í mikilli sól. Það hefur örugglega áhrif á endingu rafhlöðunni (bæði of háar tölur) þar sem ég get auðveldlega notað 30-40% birtu í vinnunni og 80% þegar ég er í sól á öðrum símum. Þetta er auðveldlega hægt að leysa með appi, en er þó frekar óþægilegt. Endingin er þó ekki slæm, en ég bjóst við meira.
Mynd og hljóð
Síminn er með glæsilegan 4,7″ TrueHD IPS LCD skjá. Þrátt fyrir hrikalegt nafn, þá er skjárinn er skarpur og sýnir flotta liti. Myndbönd og myndir koma ótrúlega vel út. Skjárinn er þó ekki nógu nálægt ysta lagi símans (rispuvörninni) og kemur því ekki nógu vel út í sól (sem er ekki stórt vandamál á Íslandi).
Síminn er með tvær myndavélar: 8MP að aftan með flassi og 1,3MP að framan fyrir myndsímtöl. Síminn tekur skýrar myndir og flassið er sterkt. Hann er oftast snöggur að ná fókus, en átti til með að taka mynd áður en hann náði fókus (sem gæti hafa verið mín eigin óþolinmæði). Myndavélarappið sjálft er mjög lengi að opnast. Ef notuð er flýtivísun í myndavélina frá aflæsingarskjánum þá er appið sérstaklega lengi að opnast. Þetta var óneitanlega óþægilegt og maður missti oft af augnablikinu. Síminn er sérstaklega góður að ná skotum alveg upp við myndefnið (ég tek slatta af myndum af raðnúmerum, ekki spyrja). Myndavélin styður HDR sem ég notaði slatta og kom oft skemmtilega út. Þessi myndavél er góð og ég get mælt með henni, en hún kemst ekki nálægt Galaxy S3 og One X í gæðum og getu.
Hátalari símans er staðsettur aftan á símanum og heyrist ágætlega í honum. Hringitónarnir sem fylgja með eru reyndar frekar leiðinlegir, en eru líklega hannaðir til að það heyrist alltaf vel í þeim (sem það gerir). Það heyrist vel í þeim hringja, en ég tók eftir því að það var smá seinkunn á því að ég svari símtali og það heyrist í mér. Það er vont, en það venst auðveldlega. Það fylgja með mjög fín heyrnatól sem fara alveg inn í eyrun og eru þau með hljóðnema og takka til að svara eða skipta um lag.
Hönnun
Maður sér strax að mikið hefur verið lagt í hönnun Optimus 4XHD. Hann minnir mig þó óþægilega mikið á Samsung Galaxy SII. 4XHD fær lánað kassalega útlit Galaxy SII en bætir við tveimur krómröndum sem umkringja símann á öllum hliðum. Á milli þeirra er „prism“ rönd til að krydda upp á krómið. Ég er ekki mikill krómaðdáandi en þetta rétt sleppur. Bakhlið símans er með skálaga gúmmíáferð sem kemur í veg fyrir að síminn sé sleipur, sem svínvirkar. Síminn helst stöðugur á hallandi flötum og helst vel í hendi.
Á símanum er mjög fáir takkar: ræs og aflæsingartakki að ofan hægri megin, hljóðstyrkstakki á vinstri hlið og þrír snertitakkar fyrir neðan skjáinn (til baka, heim og valmynd). Ég er ánægður með valmyndartakkann og hef sjálfur ekki komist upp á lagið með að nota takkann til að hoppa á milli forrita sem er á Galaxy Nexus (sem mér finnst virka fyrir spjaldtölvur). Ég er hinsvegar ekki ánægður með til baka takkann (fyrir rétthenta). Ef það er haldið á símanum með vinstri hönd þá er mjög erfitt að smella á til baka, þar sem síminn er það breiður að það erfitt að ná á þann takka og lenti í því að ýta oft á heim-takkann. Það er næstum dauðasynd að setja ræsitakkann efst á svona stóran síma, sem gerir það mjög erfitt fyrir mann að kveikja á skjánum einhentur. Takkinn stendur samt vel út og þetta er vont en það venst merkilega vel.
Viðmótið er bara nokkuð nothæft og gott. Það er kannski ekki eins flott og venjulegt Android, en ekki ljótt. LG ákveður að bæta lítið við og heldur sig við nær óbreytt Android. Þeir bæta við nokkrum hlutum sem ég var sérstaklega ánægður að sjá eins og: mismunandi hreyfingar þegar farið er milli skjáa, fimm raðir af öppum í yfirliti forrita, fallegur aflæsingaskjár sem sýnir glitta í það sem er í gangi áður skjánum er aflæst og mjög stillanlegan aflæsingaskjár með flottum klukkum. Flest tákn eru því miður ljót og asnalegt. Öll eru þau með kassalega ramma utan um sig í fáranlega björtum litum.
Niðurstaða
LG hefur verið aðeins of mikið að elta Samsung og mér finnst það hættulegur leikur fyrir þá. Þeir koma illa út við samanburð og þurfa nú að lækka verðin á öllum sínum tækjum til að geta klórað sig fram úr í samanburði. Þessi sími er einmitt á mjög góðu verði í samanburði Galaxy S3 (130-135 þúsund) og One X (115-120 þúsund) og er að kosta 99 þúsund krónur á flestum stöðum (ódýrast hjá Elko á 98.995 kr.). Það er talsverður munur og miðað við getu þá er erfitt að mæla ekki með Optimus 4XHD. Munurinn sést samt augljóslega á hugbúnaði þessa síma. HTC Sense og Samsung TouchWiz er mun lengra komið og bjóða þau viðmót upp á mun fleiri eiginleika (og svo er spurning hvort maður noti þá). Góður skjár, hraður örgjörvi, nóg af geymsluplássi og flott hönnun. Í heildina litið þá kemur 4XHD mjög vel út.Kostir
- Stór og góður skjár
- Ódýrasti fjórkjarna síminn
- Þunnur og léttur (miðað við stærð)
- Nothæft Android viðmót
Gallar
- Erfitt að nota einhent/ur
- Hægari en aðrir símar í sínum flokki
- Einfaldur hugbúnaður (less is more?)
- Ending rafhlöðu ætti að vera betri
Simon.is gefur Optimus 4XHD 8,0 af 10 mögulegum í einkunn.
Heimildir:
http://www.engadget.com/2012/08/08/npd-q2-2012/
Upprunaleg færsla á Símon.isSkrifa athugasemd
-
Uppfærsla sem allir hafa beðið eftir. Facebook appið uppfært í iPhone og iPad
23. ágúst 2012
Allir sem eiga iPad eða iPhone vita að Facebook appið hefur hingað til verið nánast ónothæft í tækjunum. Appið hefur verið gagnrýnt mikið fyrir hversu hægt það hefur verið. Nú er staðan breytt því loksins hafa Zuckerberg og félagar hjá Facebook uppfært appið.Appið á að vera tvöfalt hraðara og við fyrstu prufun verð ég að segja að það lítur út fyrir að svo sé. Appið er miklu hraðara en það var.
Skelllið ykkur í App Store í símanum eða pöddunni og sækið uppfærsluna. Þetta er kannski ekki fullkomið og enn vantar ýmsa fídusa sem við viljum fá í appið. Þetta er allavega skref í rétta átt.
Upprunaleg færsla á Símon.isSkrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334
- 335
- 336
- 337
- 338
- 339
- 340
- 341
- 342
- 343
- 344
- 345
- 346
- 347
- 348
- 349
- 350
- 351
- 352
- 353
- 354
- 355
- 356
- 357
- 358
- 359
- 360
- 361
- 362
- 363
- 364
- 365
- 366
- 367
- 368
- 369
- 370
- 371
- 372
- 373
- 374
- 375
- 376
- 377
- 378
- 379
- 380
- 381
- 382
- 383
- 384
- 385
- 386
- 387
- 388
- 389
- 390
- 391
- 392
- 393
- 394
- 395
- 396
- 397
- 398
- 399
- 400
- 401
- 402
- 403
- 404
- 405
- 406
- 407
- 408
- 409
- 410
- 411
- 412
- 413
- 414
- 415
- 416
- 417
- 418
- 419
- 420
- 421
- 422
- 423
- 424
- 425
- 426
- 427
- 428
- 429
- 430
- 431
- 432
- 433
- 434
- 435
- 436
- 437
- 438
- 439
- 440
- 441
- 442
- 443
- 444
- 445
- 446
- 447
- 448
- 449
- 450
- 451
- 452
- 453
- 454
- 455
- 456
- 457
- 458
- 459
- 460
- 461
- 462
- 463
- 464
- 465
- 466
- 467
- 468
- 469
- 470
- 471
- 472
- 473
- 474
- 475
- 476
- 477
- 478
- 479
- 480
- 481
- 482
- 483
- 484
- 485
- 486
- 487
- 488
- 489
- 490
- 491
- 492
- 493
- 494
- 495
- 496
- 497
- 498
- 499
- 500
- 501
- 502
- 503
- 504
- 505
- 506
- 507
- 508
- 509
- 510
- 511
- 512
- 513
- 514
- 515
- 516
- 517
- 518
- 519
- 520
- 521
- 522
- 523
- 524
- 525
- 526
- 527
- 528
- 529
- 530
- 531
- 532
- 533
- 534
- 535
- 536
- 537
- 538
- 539
- 540
- 541
- 542
- 543
- 544
- 545
- 546
- 547
- 548
- 549
- 550
- 551
- 552
- 553
- 554
- 555
- 556
- 557
- 558
- 559
- 560
- 561
- 562
- 563
- 564
- 565
- 566
- 567
- 568
- 569
- 570
- 571
- 572
- 573
- 574
- 575
- 576
- 577
- 578
- 579
- 580
- 581
- 582
- 583
- 584
- 585
- 586
- 587
- 588
- 589
- 590
- 591
- 592
- 593
- 594
- 595
- 596
- 597
- 598
- 599
- 600
- 601
- 602
- 603
- 604
- 605
- 606
- 607
- 608
- 609
- 610
- 611
- 612
- 613
- 614
- 615
- 616
- 617
- 618
- 619
- 620
- 621
- 622
- 623
- 624
- 625
- 626
- 627
- 628
- 629
- 630
- 631
- 632
- 633
- 634
- 635
- 636
- 637
- 638
- 639
- 640
- 641
- 642
- 643
- 644
- 645
- 646
- 647
- 648
- 649
- 650
- 651
- 652
- 653
- 654
- 655
- 656
- 657
- 658
- 659
- 660
- 661
- 662
- 663
- 664
- 665
- 666
- 667
- 668
- 669
- 670
- 671
- 672
- 673
- 674
- 675
- 676
- 677
- 678
- 679
- 680
- 681
- 682
- 683
- 684
- 685
- 686
- 687
- 688
- 689
- 690
- 691
- 692
- 693
- 694
- 695
- 696
- 697
- 698
- 699
- 700
- 701
- 702
- 703
- 704
- 705
- 706
- 707
- 708
- 709
- 710
- 711
- 712
- 713
- 714
- 715
- 716
- 717
- 718
- 719
- 720
- 721
- 722
- 723
- 724
- 725
- 726
- 727
- 728
- 729
- 730
- 731
- 732
- 733
- 734
- 735
- 736
- 737
- 738
- 739
- 740
- 741
- 742
- 743
- 744
- 745
- 746
- 747
- 748
- 749
- 750
- 751
- 752
- 753
- 754
- 755
- 756
- 757
- 758
- 759
- 760
- 761
- 762
- 763
- 764
- 765
- 766
- 767
- 768
- 769
- 770
- 771
- 772
- 773
- 774
- 775
- 776
- 777
- 778
- 779
- 780
- 781
- 782
- 783
- 784
- 785
- 786
- 787
- 788
- 789
- 790
- 791
- 792
- 793
- 794
- 795
- 796
- 797
- 798
- 799
- 800
- 801
- 802
- 803
- 804
- 805
- 806
- 807
- 808
- 809
- 810
- 811
- Næsta »






