-
Windows Phone 8 verður tilkynnt í dag
29. október 2012
Microsoft mun kynna Windows Phone 8 í dag klukkan 17:00 (á íslenskum tíma) í San Francisco. Hægt er að fylgjast með með kynningunni í gegnum vefvarp hjá Microsoft News Center og mun Simon.is gera samantekt seinna í kvöld fyrir ykkur.
Microsoft hefur verið mjög þögult fram að þessu en mikið hefur lekið út og mörg símtæki tilkynnt. Stýrikerfið mun nú styðja við öflugri örgjörva (tví og fjórkjarna), hærri upplausn (háskerpuupplausn), microSD raufir og NFC. Það mun einnig bjóða upp á áhugaverðan hugbúnað eins og Internet Explorer 10, Wallet (síminn sem greiðslukort), Datasmart (gagnamagnsteljari), BitLocker (gagnaöryggi) og margt fleira. Einnig þá mun Windows 8 og Windows Phone 8 virka mun betur saman en fyrri kerfi.

HTC hefur tilkynnt tvo síma: 8X og 8S. Símarnir eru litríkir rétt eins og Lumia símarnir. 8X er stærri síminn með 4,3″ háskerpuskjá, tvíkjarna örgjörva og 16GB plássi. 8S er aðeins minni með 4″ skjá með WVGA upplausn, tvíkjarna örgjörva og 4GB plássi en kemur þó með microSD rauf (ólíkt 8X). HTC hefur ekki gengið vel undanfarið og verður spennandi að sjá hvort þeir nái árangri með þessari línu.
Nokia hefur einnig tilkynnt tvo síma eins og við höfum fjallað um áður: Lumia 920 og 820. Báðir hafa fengið talsverða athygli og þá helst 920 síminn sem er hlaðinn fídusum eins og þráðlausu hleðslutæki, snertiskjár sem virkar þegar þú ert í hönskum og fljótandi linsu sem býður upp á aukin stöðugleika við myndbandsupptöku.

Samsung stal á sínum tíma senunni og var undan Nokia að tilkynna Windows Phone 8 síma: Samsung Ativ S. Síminn minnir óneitanlega mikið á Galaxy S3 og mun verða með 4,8″ S-AMOLED hákserpuskjá, tvíkjarna örgjörva, 16/32GB plássi og microSD rauf.
LG hefur ekki tilkynnt síma og virðist vera fylgja eftir stefnu sinni að hætta að framleiða Windows Phone síma.
Simon er spenntur fyrir því að prófa fyrstu tækin og þá sérstaklega til þess að sjá hvernig Windows 8 og Windows Phone 8 virka saman.
Upprunaleg færsla á Símon.isSkrifa athugasemd
-
Ekki bara Apple starfsmenn sem eru gleymnir – Nexus 4 gleymist á bar
29. október 2012
Það muna eflaust flestir eftir því þegar að Apple starfsmaður gleymdi iPhone prótótýpu á bar 2010 og svo aftur 2011, en svo virðist sem að fleiri en bara Apple starfsmenn geti týnt óútkomnum prótótýpum af símum á djamminu. Það var barþjónninn Jamin Barton á 500 Club í San Francisco sem fann símann á vakt. Í hverri viku gleymast um 20 símar á barnum og flestir þeir sem týna símanum sækja hann á innan við korteri. Það var þó ekki gert í þetta skiptið og barþjóninum fannst einnig eitthvað sérstakt vera við hann. Það var ekkert sim-kort í símanum, hann var læstur og merktur „ekki til sölu“ og með stórt Google merki á bakhliðinni.
Barton, sem er ekki vel að sér í tæknimálum, sýndi vini sínum símann og sá áttaði sig strax á því hvaða sími þetta var; nýi Nexus síminn, LG Nexus 4. Þeir félagarnir höfðu strax samband við Google, sem sendu mann til þeirra að ná í símann. Þá hófst það sem er best er lýst sem algjörum farsa, þar sem starfsmaður Google, Brian Katz, vildi ekki staðfesta við Barton að hann ynni hjá tæknirisanum. Við tók löng og stórfurðuleg atburaðarrás þar sem að barþjónninn og vinurinn enduðu á að flýja Katz.
Að lokum fékk Google þó símann aftur og buðu þeir Barton glænýjan síma gegn því að hann mundi ekki dreifa myndum og myndbandi sem hann tók af símanum. Barþjónninn þáði ekki það tilboð og hefur nú selt myndirnar til vefsíðunnar Wired.com fyrir umtalsvert hærri upphæð en virði símans sem Google bauð honum.
Hvort að símamissirinn hafi verið skipulagður af Google til þess að vekja athygli á símanum er erfitt að segja, en eitt er víst, þetta vakti mikla athygli víðsvegar um netið. Síminn verður tilkynntur formlega á árlegum Android viðburði sem átti að halda á 29. október, en var frestað vegna fellibylsins Sandy.
Það má lesa lengri og ítarlegri grein um týnda Nexus símann á Wired.com.
Upprunaleg færsla á Símon.isSkrifa athugasemd
-
Google Android viðburðinum frestað vegna fellibyls
28. október 2012
Google Android viðburðinum sem átti að halda mánudaginn 29. október hefur verið frestað vegna fellibylsins Sandy. Viðburðurinn átti að vera við höfnina New York, en þar sem að lýst hefur verið yfir neyðarástandi í borginni sá Google sig knúið til þess að fresta viðburðinum. Google neyddist einnig til þess að fresta viðburði síðasta árs vegna dauða Steve Jobs.
Orðrómar um hvað Google ætla að kynna hafa gengið eins og eldur um sinu á netinu og er orðið nokkuð ljóst að þetta verður það sem Google mun kynna:
- Android 4.2, Jelly Bean+
- Nýja útgáfu af Nexus 7 spjaldtölvunni með 32 GB plássi
- Nexus 10, sem er 10″ spjaldtölva gerð af Samsung
- Nexus 4, nýjasti flaggskip sími Android sem er gerður af LGVið verðum því að bíða aðeins lengur eftir að fá tilkynningar um þessi nýju tæki og við hjá Simon iðum í skinninu eftir að fylgjast með viðburðinum.
Upprunaleg færsla á Símon.isSkrifa athugasemd
-
He-Man er mættur á iOS
28. október 2012
Ef þú vaknaðir fyrir klukkan 9 á laugardagsmorgnum fyrir um það bil 20 árum síðan til að horfa á teiknimyndir þá ættirðu að muna eftir Garpi eða He-Man eins og hann kallaðist á frummálinu. Kappinn er mættur aftur til leiks og í þetta skiptið á iOS!

„I have the power!“
Leikurinn er með dæmigerðu „hack n slash“ sniði þar sem spilaranum er gefið færi á að uppfæra vopn og hæfileika He-Man eftir hvert borð. Þeir sem hafa ekki þolinmæði til að safna fyrir uppfærslum með því að spila leikinn geta tekið upp greiðslukortið og borgað með Bandaríkjadölum fyrir betri vopn og eiginleika.
Leikurinn er ágætlega ávanabindandi, spilunin er mjög vönduð og grafíkin afbragð. Það er því óhætt að mæla með endurkomu He-Man því leikurinn kostar aðeins $0.99 í App Store.
Sækja He-Man: The Most Powerful Game in the Universe í iTunes ($0.99)
Upprunaleg færsla á Símon.isSkrifa athugasemd
-
Iceland Airwaves 2012 appið – Ef þú ert að fara þá verður þú að hafa það!
26. október 2012
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves er íslenskt tónlistarhátíð sem er haldin árlega hvert haust í Reykjavík. Hátíðin hefst í næstu viku og dregur að sér þúsundir erlendra gesta. Hátíðinni er dreift á nokkra tónlistarstaði í miðbænum og er dagskráin mjög metnaðarfull. Nú annað árið í röð hefur Síminn og Airwaves gefið út app svo gestir hátíðarinnar geti skipulagt sig almennilega. Simon skoðaði appið í ár og bar saman við appið frá í fyrra.
Hvað gerir þetta app?
Þetta app sýnir dagskrá eftir dögum, tónlistarstöðum, landakorti og tekur saman off-venue dagskrána. Hægt er að búa til sína eigin dagskrá með því að plúsa ákveðin atburð og kalla hana þá fram undir My Lineup. Það er einnig hægt að kalla upp mynd af röðum skemmtistaða áður til að takmarka alla bið (eða sjá inn í sumarbústað starfsmanns Símans eins og var í boði eftir hátíðina í fyrra). Appið er með mjög ítarlegar upplýsingar um alla listamennina og hljómsveitir sem spila á hátíðinni og er hægt sjá lista yfir alla tónleika sem þeir halda ásamt staðsetningu. Það eru tenglar á YouTube myndbönd við alla flytjendur og því auðvelt að kynnast nýjum flytjendum eða endurnýja kynnin við gamla.
Mesta virði appsins er klárlega í dagskránni, en maður verður eiginlega að púsla saman sína eigin dagskrá þegar svo margir flytjendur eru á hátíðinni. Það er líka auðvelt að sjá hvenær flytjendur eru að spila aftur og gefur manni því enn betra tækifæri á því að sjá sem flesta.
Appið er líka með aukahluti eins og möguleikann að deila sinni eigin dagskrá, skoða viðtöl við tónlistafólkið af hátíðinni og finna sér eitthvað að gera (aðallega að borða og drekka) í gegnum Activities sem virðist einna helst vera miðað að ferðamönnum.
Hvað finnst okkur?
Við elskum Airwaves. Við elskum þetta app. Must have ef þú ert að fara á hátíðina. Það er augljóst að Síminn hefur tekið appið frá því í fyrra alveg í gegn, bæði útlistlega og efnislega. Þeir hafa mögulega fengið einhverjar hugmyndir frá Werchter appinu eða öðrum tónleika öppum, en það er allt annað að sjá appið fyrir hátíðina í ár. Það eina sem hefði mátt bæta inn í það er betri samfélagstenging, til dæmis að geta séð dagskrá annara Facebook vina sinna eða gefa leyfi á að sjá hvar vinir sínir eru staddir í bænum (eins og er í Werchter appinu). Við tökum að ofan fyrir Símanum og hrósum þeim fyrir virkilega vel unnið app.
Upprunaleg færsla á Símon.isSkrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334
- 335
- 336
- 337
- 338
- 339
- 340
- 341
- 342
- 343
- 344
- 345
- 346
- 347
- 348
- 349
- 350
- 351
- 352
- 353
- 354
- 355
- 356
- 357
- 358
- 359
- 360
- 361
- 362
- 363
- 364
- 365
- 366
- 367
- 368
- 369
- 370
- 371
- 372
- 373
- 374
- 375
- 376
- 377
- 378
- 379
- 380
- 381
- 382
- 383
- 384
- 385
- 386
- 387
- 388
- 389
- 390
- 391
- 392
- 393
- 394
- 395
- 396
- 397
- 398
- 399
- 400
- 401
- 402
- 403
- 404
- 405
- 406
- 407
- 408
- 409
- 410
- 411
- 412
- 413
- 414
- 415
- 416
- 417
- 418
- 419
- 420
- 421
- 422
- 423
- 424
- 425
- 426
- 427
- 428
- 429
- 430
- 431
- 432
- 433
- 434
- 435
- 436
- 437
- 438
- 439
- 440
- 441
- 442
- 443
- 444
- 445
- 446
- 447
- 448
- 449
- 450
- 451
- 452
- 453
- 454
- 455
- 456
- 457
- 458
- 459
- 460
- 461
- 462
- 463
- 464
- 465
- 466
- 467
- 468
- 469
- 470
- 471
- 472
- 473
- 474
- 475
- 476
- 477
- 478
- 479
- 480
- 481
- 482
- 483
- 484
- 485
- 486
- 487
- 488
- 489
- 490
- 491
- 492
- 493
- 494
- 495
- 496
- 497
- 498
- 499
- 500
- 501
- 502
- 503
- 504
- 505
- 506
- 507
- 508
- 509
- 510
- 511
- 512
- 513
- 514
- 515
- 516
- 517
- 518
- 519
- 520
- 521
- 522
- 523
- 524
- 525
- 526
- 527
- 528
- 529
- 530
- 531
- 532
- 533
- 534
- 535
- 536
- 537
- 538
- 539
- 540
- 541
- 542
- 543
- 544
- 545
- 546
- 547
- 548
- 549
- 550
- 551
- 552
- 553
- 554
- 555
- 556
- 557
- 558
- 559
- 560
- 561
- 562
- 563
- 564
- 565
- 566
- 567
- 568
- 569
- 570
- 571
- 572
- 573
- 574
- 575
- 576
- 577
- 578
- 579
- 580
- 581
- 582
- 583
- 584
- 585
- 586
- 587
- 588
- 589
- 590
- 591
- 592
- 593
- 594
- 595
- 596
- 597
- 598
- 599
- 600
- 601
- 602
- 603
- 604
- 605
- 606
- 607
- 608
- 609
- 610
- 611
- 612
- 613
- 614
- 615
- 616
- 617
- 618
- 619
- 620
- 621
- 622
- 623
- 624
- 625
- 626
- 627
- 628
- 629
- 630
- 631
- 632
- 633
- 634
- 635
- 636
- 637
- 638
- 639
- 640
- 641
- 642
- 643
- 644
- 645
- 646
- 647
- 648
- 649
- 650
- 651
- 652
- 653
- 654
- 655
- 656
- 657
- 658
- 659
- 660
- 661
- 662
- 663
- 664
- 665
- 666
- 667
- 668
- 669
- 670
- 671
- 672
- 673
- 674
- 675
- 676
- 677
- 678
- 679
- 680
- 681
- 682
- 683
- 684
- 685
- 686
- 687
- 688
- 689
- 690
- 691
- 692
- 693
- 694
- 695
- 696
- 697
- 698
- 699
- 700
- 701
- 702
- 703
- 704
- 705
- 706
- 707
- 708
- 709
- 710
- 711
- 712
- 713
- 714
- 715
- 716
- 717
- 718
- 719
- 720
- 721
- 722
- 723
- 724
- 725
- 726
- 727
- 728
- 729
- 730
- 731
- 732
- 733
- 734
- 735
- 736
- 737
- 738
- 739
- 740
- 741
- 742
- 743
- 744
- 745
- 746
- 747
- 748
- 749
- 750
- 751
- 752
- 753
- 754
- 755
- 756
- 757
- 758
- 759
- 760
- 761
- 762
- 763
- 764
- 765
- 766
- 767
- 768
- 769
- 770
- 771
- 772
- 773
- 774
- 775
- 776
- 777
- 778
- 779
- 780
- 781
- 782
- 783
- 784
- 785
- 786
- 787
- 788
- 789
- 790
- 791
- 792
- 793
- 794
- 795
- 796
- 797
- 798
- 799
- 800
- 801
- 802
- 803
- 804
- 805
- 806
- 807
- 808
- 809
- 810
- 811
- Næsta »


















