Símon.is

Símon.is

Tækniblogg um snjallsíma og allt sem þá snertir.

  • Búðu til hringitóna fyrir iPhone – leiðbeiningar

    23. nóvember 2012

    iPhone eigendur þekkja það flestir að hafa lítið úrval af hringitónum í símanum. Þetta eru sömu 4-5 hringitónarnir sem „allir“ nota. Persónulega finnst mér pirrandi þegar ég heyri iPhone hjá einhverjum hringja, sem er með hringitóninn sem ég nota sem vekjara. Þekkja þetta ekki flestir iPhone eigendur? Auk þess eru eru jólin á næsta leyti og sumir eru ólmir í að setja jóla-hringitón í símann.


    Almenna leiðin við að ná sér í hringitóna er að kaupa þá í gegnum iTunes Store, öfugt við það sem var áður fyrr þegar maður keypti hringitóna á vefsíðum símafyrirtækjanna. Gallinn við þetta er sá að iTunes Store er ekki í boði fyrir Íslendinga. Okkur er því ómögulegt að kaupa hringitóna, nema með krókaleiðum og með því að fara á svig við reglur Apple og iTunes.


    Þess vegna setti ég saman einfaldar leiðbeiningar hvernig nota má iTunes til að búa til hringitón fyrir iPhone, úr lagi sem er þegar í tölvunni. Auðvitað mælist ég til þess að fólk noti eingöngu tónlist sem það hefur greitt fyrir.


    Leiðbeiningarnar eiga að gagnast öllum, óháð því hvort notandi sé með Windows XP og upp úr eða Mac OS. Athugið þó að það getur verið smá breytileiki á milli stýrikerfa og hvaða útgáfu iTunes notandi hefur. Munurinn er þó það lítill að allir ættu að átta sig á réttu leiðinni. Þegar þið gerið þetta í fyrsta skiptið tekur þetta nokkrar mínútur og jafnvel að þið þurfið að byrja upp á nýtt. Í annað skiptið tekur þetta mun styttri tíma. Eftir það er þetta ótrúlega einfalt og fljótlegt.


     


    Fyrst er að opna iTunes og lagið sem maður vill nota bút úr sem hringitón. Hringitóninn má vera allt að 30 sekúndur að lengd. Ég valdi mér byrjunina á laginu Gleipnir með heitustu hljómsveit Íslands í dag, Skálmöld. Gríðarlega öflugt lag með mjög hringitónavæna byrjun. Velja þarf lagið í iTunes, hægri smella á það og velja Get Info og opnast þá gluggi. (Þegar þetta er gert þarf að vera búið að ákveða hvaða bút úr laginu maður ætlar að nota sem hringitón og skrifa niður eða muna á hvaða tíma þetta byrjar og endar. Í þessu lagi nota ég introið en oft vill maður nota viðlagið sem er þá eðlilega inní miðju lagi.)



     


    Næst veljum við Options flipann. Þar má sjá Start Time og Stop Time dálka sem þarf að haka í og velja tímann sem maður vill „klippa“ úr laginu, að hámarki 30 sekúndur. Á myndinni hef ég valið fyrstu 21 sekúndu lagsins. Næst veljum við OK og þá lokast glugginn. Það sem nú er búið að gera er að skilgreina lagið þannig að einungis spilist fyrsta 21 sekúndan í því og svo spilast næsta lag venjulega ef ekkert hefur verið átt við það. (ATH þegar þið eruð búin að gera hringitóninn þurfið þið að fara aftur sömu leið inn í lagið og taka hökin tvö úr Start og Stop til að lagið spilist áfram venjulega í iTunes)



    Nú hægri smellum við aftur á lagið og veljum í þetta skiptið Create AAC Version (í sumum iTunes heitir þetta Convert Selection to AAC). Nú er iTunes búið að búa til nýja útgáfu af laginu, sem er búturinn sem við skilgreindum með tímanum í lið 1. (Ef þið fáið ekki möguleikann að breyta í AAC heldur bara í MP3 þarf að fara Preferences og velja þar import settings og breyta í AAC).



    4 Nú eru komnar tvær útgáfur af laginu. Við hægri smellum á stuttu útgáfuna og veljum Show in Windows Explorer (eða Show in Finder). Opnast þá gluggi þar sem lagið er geymt.



    Nú þarf að breyta endingu skjalsins úr .m4a í .m4r. Einfaldlega að breyta síðasta stafnum úr a í r. (Ef þið sjáið ekki .m4a endinguna í Windows þurfið þið að fara í Tools -> Folder Options -> View (Organize -> Folder and Search Options í Vista), og taka hakið úr Hide extensions for known file types. Veljið svo OK. – Ef þið hafið ekki Tools möguleikann uppi þá þarf að ýta á alt-takkann og þá birtist stikan með Tools möguleikanum). ATH það fer eftir því hvaða forrit eru í tölvunni og hvernig þau eru stillt, hvort maður sjái appelsínugula keilu eða bláan eða svartan tón o.s.frv. Ekki láta það trufla ykkur.



    Nú þarf að eyða laginu úr iTunes. Hægra smellt á lagið í iTunes og valið Delete. Þá kemur upp gluggi og biður þig að staðfesta sem þú gerir. Þarna þarf að passa að velja Keep file ef iTunes spyr þig hvort þú viljir eyða laginu úr tölvunni, henda því í ruslatunnuna.


     


    7 Að lokum förum við til baka í möppuna og tvísmellum á lagið. Þá opnast það í iTunes og af því við erum búin að skilgreina það sem hringitón opnar iTunes það undir Tones hlutanum sem er uppi vinstra megin undir Library hlutanum. (Ef þið sjáið ekki Tones þarf að fara í Preferences og haka þar í Tones í Sources hlutanum).



    Nú eruð þið komin með iPhone hringitón í iTunes. Síðasta skrefið er að samstilla/synca símann við iTunes. Það ættu allir iPhone eigendur að þekkja hvernig það fer fram. Það eina sem þarf að passa er að hakað sé í Sync Tones í Tones flipanum í Devices.



     


    Ef þið lendið í einhverjum vandræðum er ykkur óhætt að spyrja annað hvort hér að neðan eða á Facebook síðu Simon.is og ég reyni að svara um hæl.


    Að lokum læt ég fylgja með iPhone hringitón með flottasta og vinsælasta stuðningsmannalagi Íslands fyrr og síðar – Allir í gallana stuðningsmannalag Völsungs (hægri smellið og veljið save as og fylgið svo leiðbeiningunum frá skrefi 7). Einnig getið þið náð í Simon.is stefið okkar flotta.



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Nokia Here götukortin komin í iPhone

    20. nóvember 2012

    Við sögðum frá því í síðustu viku að Nokia hyggðist á næstunni gefa út app fyrir iPhone og önnur iOS tæki með Nokia götukortum. Appið er nú komið í AppStore.


    Okkur hefur ekki gefist tími til að prufa appið en við munum segja ykkur nánar frá því síðar. Eins er ykkur velkomið að segja okkur hvernig ykkar fyrsta upplifun er.


     


    Appið má nálgast hér í AppStore.



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Nýtt íslenskt app fyrir iPad opnað formlega af menntamálaráðherra á degi íslenskrar tungu

    16. nóvember 2012

    Föstudaginn 16. nóvember, á degi íslenskrar tungu, mun sprotafyrirtækið Ís-leikir ehf. gefa út nýtt íslenskt smáforrit fyrir iPad sem kallast Segulljóð og verður það til sölu í App-búðum um allan heim.


    Í hádeginu mun Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra opna forritið með því að semja ljóð í gegnum það og senda inn á Segulljod.is.


    Um er að ræða skemmtilegt  forrit sem virkjar sköpunargáfur notandans og kveikir áhuga á tungumálinu.  Segulljóð er hugsað til ljóðasköpunar og leiks með tungumálið. Notandi fær orð sem eru valin eftir slembivali til að raða saman og skapa ljóð. Forritið hentar vel til að útbúa stutt ljóð og örsögur en má einnig nota það til að semja tækifæriskveðjur til ástvina eða sem kveikjur að stærri verkefnum. Forritið er því í senn frábært verkfæri við skapandi nám og skrif og frumlegt afþreyingartæki.


    Segulljóð verður á sérstöku kynningarverði á degi íslenskrar tungu og helgina þar á eftir. Verðið er um 253 íslenskar krónur + vsk ($1,99 + vsk.).


    Nánar um Segulljóð


    Í forritinu eru átta mismunandi orðaþemu með samtals yfir 13 þúsund orðum sem öll orð hafa allar mögulegar birtinga- og beygingamyndir. Nafnorð eru bæði með og án greinis og lýsingarorð og sagnorð geta haft tugi orðmynda. Þegar hafist er handa við nýtt verkefni stillir notandinn úr hvaða orðaþemum hann vill fá orð. Einnig er hægt að stilla fjölda orða úr hverjum orðflokki. Forritið velur með slembivali orð úr viðeigandi pökkum til að nota við ljóðagerðina. Þegar ljóðavinnan er hafin er hægt að bæta við orðum úr öllum orðflokkum. Einnig geta þeir sem vita hvað þeir vilja bætt við eigin orðum til þess að ná að fullkomna ljóðið sitt. Útlit ljóðanna er hægt að breyta að vild, letur, litir og bakgrunnur er meðal þess sem hægt er að stilla nánast að vild og ná þannig fram réttu stemmingunni fyrir ljóðið þitt.  Þegar ljóð er tilbúið er hægt að gefa það út á segulljod.is eða deila því með vinum á Facebook, Twitter og með tölvupósti.


    Höfundar og hönnuðir forritsins eru Guðný Þorsteinsdóttir og Friðrik Magnússon og gerð þess var styrkt af þróunarsjóði námsgagna.


    Screen Shot 2012-11-16 at 9.46.56 AM

    skjaskot_augl1

    skjaskot_augl2

    skjaskot_augl3

    skjaskot_augl4

    skjaskot_augl6


    Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Segulljóða: http://www.segulljod.is/ og á Facebook: https://www.facebook.com/Segulljod


    Appið má finna á App Store og kostar það 318 krónur. 



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Nýjungar í Google maps – Skoðaðu inn í hús nágrannans!

    16. nóvember 2012

    Það þekkja allir Google maps. Við notum það til þess að rata í óbyggðum Grafarholtsins, til þess að finna hótelið í útlöndum og til þess að gægjast um götur stórborga. Google hafa alltaf reynt að gefa okkur meira af því sem við viljum. Google maps byrjuðu á því að vera kort, fóru svo í það að verða gervnihattamyndir og þar næst yfir í ljósmyndir frá götunum. Google fóru með Street View neðansjávar og inn í geimstöðvar. Núna kynnir Google til leiks, Google House View!


    Þú þarft ekki lengur að stoppa fyrir utan húsið í Street View, heldur geturðu farið beint inn í það. Þú getur kíkt beint inn á sætu stelpuna sem býr við hliðiná þér, athugað hvað klikkaði karlinn fyrir neðan sé í rauninni að gera eða hvað sé í gangi í Kringlunni. En afhverju að stoppa þar? Möguleikarnir eru óendanlegir! Þættir eins og MTV Cribs verða algjörlega óþarfir, nú getur þú kíkt beint inn í stofu hjá Leoncie eða Ásdísi Rán án þess að þurfa að kveikja á MTV. Þú getur skoðað bankann í þaula áður en þú rænir hann eða jafnvel fylgst með innbrotsþjófum á Arnarnesinu.


    Google lætur ekki deigan síga og eru alltaf einu skrefi á undan. Hvað verður það næst? Google Microscope View?





    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Nokia götukort í iPhone

    14. nóvember 2012

    Á næstu vikum kemur á markað götukort frá Nokia fyrir iPhone og önnur iOS tæki.


    Here eða „hérna“ er nýtt nafn á kortaþjónustu Nokia. Þetta tilkynnti Nokia í gær og kynnti jafnframt áform sín um aukna útbreiðslu og notkun á kortagrunni fyrirtækisins. Eins og mörgum er kunnugt stendur Nokia framarlega þegar kemur að götukortum og vegaleiðsögn. Götukortin í Nokia símunum eru býsna góð og virka sérlega vel á Íslandi. Ekki skemmir fyrir að maður hleður hverju korti fyrir sig í símann og er því ekki háður því að vera í netsambandi við notkun kortsins, eins og raunin er í iPhone.


    Nokia hyggst leggja áherslu á aukna útbreiðslu og notkun á kortagrunni sínum eins og áður kom fram. Ein leiðin til þess er að bjóða upp á kortin í fleiri stýrikerfum en nú er gert og fjölga þannig notendum. Það gengur ekkert sérlega vel að fjölga notendum Nokia síma svo fyrirtækið hefur þurft að skoða aðrar leiðir og þetta er niðurstaðan. Fyrsta skrefið er Here app sem kemur út á næstu vikum. Þá hyggst Nokia jafnframt gefa út sambærilegt app fyrir Andriod tæki. Mun það koma út snemma á næsta ári, 2013.




    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd