Símon.is

Símon.is

Tækniblogg um snjallsíma og allt sem þá snertir.

  • Google Maps fyrir iOS

    14. desember 2012

    Nú er ekki lengur ástæða til að benda á að notkun á kortalausn frá Apple sé mínus í kladdann fyrir notendur iPhone. Google kemur til bjargar Maps lausn sinni fyrir alla þá sem notast við iOS. Mikið hefur verið rætt og bent á að sú kortalausn sem Apple setti upp til að taka við af Google Maps, sem áður var notað af iOS kerfinu sjálfu, sé ófullkominn.


    Núna nýlega varaði lögregla í Ástralíu iOS notendur við að notast við kortakerfið, en nokkur dæmi höfðu komið upp þar sem fólk hafði lent í hremmingum þar í landi með að reyða sig á kortalausnina frá Apple.


    Samsung hefur ýtt af stað markaðsetningu þar sem gert er grín að þessum tilvikum þar í landi.



    Þar er ekki skotið beint á Apple, en þar er augljóslega verið að gefa í skyn uppákomu, þar sem sex manns sem voru að ferðast um Ástralíu lentu í erfiðleikum og þurftu aðstoð lögreglu. 


    Við mælum með að allir sem hafa uppfært iPhone síma sína upp í iOS 6 að kíkja í App Store og sækja Google Maps.


    Google Maps í App Store.




    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Facebook fyrir Android loks nothæft?

    14. desember 2012

    Margir notendur Facebook hafa vitað það að notkun á appinu á Android hefur aldrei verið annað en ein stór bið eftir að fá upp fréttalínuna og hvað þá myndir. Nú geta Android notendur glaðst því Facebook var að setja út uppfærslu á Android appið sem gjörbreytir upplifun notenda. Uppfærslan er gríðarlega mikilvæg og færir útgáfuna yfir í 2.0. Facebook hefur lengi vitað af þessum galla í þjónustu við Android notendur, enda höfðu fregnir borist að sérstakt tækniborð hafi verið stofnað innanhúss hjá þeim til að hjálpa starfsmönnum þeirra í að skipta úr iOS yfir í Android síma. Einnig höfðu sögur borist að forriturum fyrirtækisins hafði verið skipað að nota Android síma til að þeir fyndu fyrir á eigin skinni hvað notendur væru að fara í gegnum.


    Afraksturinn af þeirri vinnu hóf að skila sér í dag en nýja útgáfan hefur verið skrifað aftur upp frá grunni til að betrumbæta appið.


    Það fyrsta sem notendur munu taka eftir er að fréttaveitan er margfalt sneggri að hlaðast inn.



    Að opna myndir er einnig margfalt viðbragssneggra.



    Einnig er mikill munur á hraða við að opna þína eigin tímalínu.



    Við mælum með að allir uppfæri sem fyrst til að gera upplifunina á Android enn betri. Hægt er að stilla að app sem þessi uppfæri sig sjálfkrafa en hægt er að opna Play og athuga hvort uppfærslan sé fyrir hendi þar.


    Facebook fyrir Android



     


     



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Samsung Galaxy Beam umfjöllun

    11. desember 2012


    Samsung Galaxy Beam er áhugavert tæki en jafnframt sími sem stendur sig vel ágætlega í samanburði við önnur símtæki. En innbyggði skjávarpinn er auðvitað það sem stendur alveg sér á báti á þessum síma. Samsung kann að búa til góðan síma en nú er spurninginn hvort svona aukahlutur eins og skjávarpi stendur sig.


    Hönnun og Innvols


    Það er erfitt að sjá á hönnun símans að það sé heill skjávarpi innbyggður í hann. Fyrir vikið er síminn stærri en það sem þekkist á sambærilegum tækjum en þó ekki of. Við sættum okkur hér áður fyrr við síma á borð við Nokia 5110 sem daglegan síma og þessi sími er ekki jafn stór hann. Það er sportleg rönd allan hringinn á símanum sem lítur ágætlega út. Takkarnir á hliðum símans eru ekkert merkilegir, ef eitthvað þá er frekar eins og þeim var bætt við eftir á og ekki mikið meira spáð í þá, ég greip oft í on/off takkan þegar ég ætlaði að fara í að kveikja á varpanum, vont en það venst.

    Það er þægilegt að halda á símanum, en hann kemur með einhverskonar gúmmí bak og þykktin virkar ágætlega í hendi. Örgjörvinn sem keyrir símann er ST-Ericsson U8500, sem er tvíkjarna og keyrir á 1000 MHz. Í símanum er einnig 768 MB vinnsluminni og ARM Mali-400 skjáhraðall. Síminn var fínn í daglega hluti og ekki var að sjá neitt hik á vinnslu með þessa samsetningu. Endingin á batterí var til fyrirmyndar, en síminn gekk í meira en einn og hálfan dag með hefðbundinni notkun án þess að komast í hleðslu en í símanum er 2000 mAh rafhlaða. Ending á skjávarpa með fulla hleðslu var á að vera þrír tímar, en það virkaði nærri lægi því síminn átti um 25% eftir þegar rúmlega tveggja tíma mynd hafði spilast.


    Skjár og Myndavél


    Myndavélin er 5 megapixla og fín í að taka þessar hefðbundnu tækifærismyndir, en ekki mikið meira en það. 1.3 MP myndavél er að framan sem er fín til að nota fyrir myndsímtöl. Skjárinn er 4 tommur að stærð og keyrir í upplausninni 480×800. Litirnir virka hinsvegar daufir á skjánum og er það líklegast vegna þess að baklýsingin er örlítið sterkari en vanalega á þessum skjá í sambærilegum síma.


    Aðalmálið í þessum síma er hinsvegar skjávarpinn! Við prófuðum að keyra bíómyndir í gegnum símann og það virkaði merkilega vel. Samsung segir að hægt sé að stækka skjáinn í allt að 50 tommur. Við prufun hjá okkur var eins og upplausnin gaf undan þegar hún stillt svo há, en það slapp ef þú þarft ekki að vera mjög nálægt myndfletinum. Að hafa símann í fjarlægð frá vegg þannig að skjárinn er cirka 40 tommur leit margfalt betur út og upplausnin vann með skjávarpanum í gæðum. Það er merkilegt afrek að koma heilum skjávarpa fyrir í símann og verð ég að segja að eitt og sér var það virkilega flott að sjá. Hinsvegar þá verður að minnast á að varpinn er einungis með styrk upp á 15 lumens. Til að hafa samanburð þá eru venjulegir skjávarpar með minnst 800 lumens styrkleika í dag. Slíkt gerir það að síminn er eingöngu nothæfur sem varpi í nánast algeru myrkri. Það að vera í herbergi með sólargluggatjöld nægði ekki til að fá nægilegt myrkur til að varpinn skilaði sínu besta. Þetta verður líklega mjög nothæft innandyra sem utan á Íslenskum vetri, en nánast ónothæft að sumri til vegna birtu sem smýgur inn í herbergin sem þú myndir vilja nota þetta í.


    Stýrikerfi og hugbúnaður


    Síminn kemur með Android 2.3.6 sem er orðin frekar gömul útgáfa og þú missir af þeim viðbótum sem nú eru orðnar staðlaðar í nýrri útgáfum, sem er miður því síminn getur alveg ráðið við nýrri útgáfu af Android miðað við innvols. Einnig eru engar upplýsingar fáanlegar um uppfærslu á kerfinu sem stendur. Annars virkar stýrikerfið vel í notkun og allir leikir og upplifun á notkun símans er til fyrirmyndar.


    Niðurstaða


    Síminn virkar ágætlega miðað við daglega notkun og skjávarpinn er skemmtileg viðbót. Verð á símanum hefur ekki verið gefið út og mun það líklega vera í hærri kantinum. Spurningin er hvort síminn sé þess virði að kaupa bara fyrir skjávarpann. Ég get ímyndað mér að það séu aðstæður sem það gæti verið gott að hafa slíkann síma við hendina. Til dæmis sölukynning hvar sem þú ert eða bara að sýna félögunum eitthvað myndbrot sem er skemmtilegt. En styrkur varpans er það lítill að ég efa að þú fáir alla með þér inn í kompu eitthver staðar bara til að kíkja á smá myndbrot eða kynningu.


    Það verður samt sem áður áhugavert að fylgjast með næstu útgáfum af þessum síma með sterkari varpa og jafnvel búið að minnka umgjörð og stærð símanns enn frekar.


    Kostir



    • Innbyggður skjávarpi með allt að 50 tommu að stærð

    • Góð batterísending


    Gallar



    • Eldri útgáfa af Android

    • Verð ekki komið en líkast til í hærri kantinum


    Simon.is gefur Samsung Galaxy Beam 7.2 af 10 mögulegum í einkunn.



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • Apple tekur til í starfsmannamálum

    7. desember 2012

    Allir yfirmenn sem komu að gerð Apple Maps hafa nú verið reknir eða sagt af sér.

    Samkvæmt frétt Bloomberg hefur Apple rekið Richard Williamson sem sá um hönnunina á Apple maps. Stutt er  síðan að Scott Forstall, yfirmaður innan stýrikerfisþróunnar hjá Apple, sagði af sér, en hann sá um kortagerðina fyrir apple.


    Eins og margir vita varð gagnrýnin það slæm á Apple Maps að forstjóri Apple, Tim Cook, varð að biðjast afsökunar á því hversu slæmt það væri og benda fólki á að notfæra  sér  kortaforrit frá öðrum á meðan unnið væri að lagfæringu á Apple Maps.


    Í júni 2012 kom tilkynning frá Apple að þeir myndu hætta að notast við Google Maps með IOS 6 uppfærslunni til að upphefja sitt eigið kortakerfi.


    Nýr hópur af fólki er þó kominn í að lagfæra kortin ekki leið meira en vika áður en fyrstu lagfæringarnar voru komnar inn.


     





     



     



    Myndir teknar af:


    Slaterrowe 


    Blogs.law.harvard.edu


    i.i.com.com


    cdn.theatlanticwire.com


    Studentsnewsdaily.com


    cdn2.sbnation.com


    t2.gstatic.com


     


     


     


     



    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd

  • iPhone 5 – Á hann heima í hulstri?

    7. desember 2012

    iPhone 5 er að margra mati einn fallegasti snjallsíminn á markaðnum í dag. Það verður eflaust til þess að einhverjir láta verða af því að kaupa hann fyrir hátíðirnar sem gjöf til síns eða annara.


    Eins og kom fram í ítarlegri grein um iPhone 5 hér á Símon er hönnun á símanum með öðru sniði í þetta skiptið. Helstu breytingarnar eru að finna á bakhlið símans og búið er að skipta út glerinu fyrir ál.


    Þegar útlið gæti verið eitt af ástæðum fyrir kaupum á iPhone 5 og bakhliðin sem nýtur sín vel getur verið erfitt að hugsa sér að vilja setja símann í hulstur.


    Vegna þess hve fallegur hann er þá getur það hindrað notandann í að nota hulstur fyrir símann.


    Hér að neðan koma nokkrar myndir af samanburði af tveimur iPhone 5 sem eru tveggja mánaða gamlir. Annar hefur fengið að vera í hulstri frá degi 1 en hinn hefur verið ber. Sá fyrri lítur út eins og hann sé nýkominn úr kassanum en hinn síminn er aðeins persónulegri í útliti.


    Vangavelturnar eru því hvort nokkrar rispur skipti máli eða að þegar þú kaupir svona dýran síma þá viltu vera með hann í hulstri.


    Hér er mynd af iPhone 5 sem hefur fengið að vera í hulstri frá degi eitt.




    Hér sést samanburður á iPhone 5. Hafa verið í notkun í 2 mánuði, annar hefur verið í hulstri frá degi eitt en hinn hefur fengið að njóta sín.



     



    Byrjað að sjást á málingunni á öllum hornunum símans.



    Síminn hefur fengið örlítið högg á sig.





     


    Heimild: Gizmodo





    Upprunaleg færsla á Símon.is

    Skrifa athugasemd