Símon.is

Símon.is

Tækniblogg um snjallsíma og allt sem þá snertir.

Nexus 7 spjaldtölvan tekin úr kassanum – Myndband

18. ágúst 2012 › 14:45

Simon.is er loksins komin með Nexus 7 spjadtölvuna og opnaði hana í gærkvöldi!
Spjaldtölvan er gefin út af Google og framleidd af Asus. Hún er með 7 tommu skjá, 4-kjarna örgjörva og 1GB í minni. Tölvan kemur í tveimur útgáfum með 8 eða 16 GB plássi. Það besta við tölvuna er ekki innvolsið, heldur stýrikerfið. Tölvan kemur með nýjasta Android stýrikerfinu, Jelly Bean (4.1) og er það vægast sagt búið að breyta Android til hins betra. Þar sem að tölvan er gefin út af Google fær hún allar uppfærslur um leið og þær koma.


Tölvan er fáanleg í Play Store í Bandaríkjunum og Bretlandi og kostar $199 / £179 (8GB) og $249 /£199 (16GB).


Fylgist með hér á Simon.is þar sem við munum fjalla ítarlega um Nexus 7 spjaldtölvuna.


Hér má svo sjá samanklipp myndband af öðrum sem lentu í miklu veseni við að opna kassann:



Upprunaleg færsla á Símon.is



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.