-
Amerískar pönnukökur
22. apríl 2012
Ég elska rólyndis sunnudagsmorgna með amerískum bláberjapönnukökum með smjöri og sýrópi. Nema hvað að á þessu heimili er náttúrulega aldrei rólegt alltaf nóg af krökkum með læti en það gerir þetta bara enn betra því þá er nóg af munnum til að fæða. Svo læt ég spólu í tækið og læðist burt með kaffi latte, pönnukökur og blaðið eða góða matreiðslubók og kaupi mér frið í nokkrar mínútur til að njóta. Lífið gerist ekki betra!
Ég ætla að deila með ykkur uppskrift sem ég fékk hjá foreldrum mínum fyrir mörgum árum síðan og er alveg geggjuð. Krakkarnir biðja mig þó alltaf til að setja bláber útí deigið sem ég geri og þá verða þær enn betri!
Einföld uppskrift er rétt fyrir fjóra svo að ég geri alltaf tvöfalda þar sem krakkarnir hakka þetta í sig eins og ég veit ekki hvað!
Amerískar pönnukökur með bláberjum
1 egg
200 ml nýmjólk(hér má svo sem vera hvaða mjólk sem er, betra er þó ef hún er þykk eins og möndlumjólk)
130 gr hveiti(má líka vera hvítt spelt)
4 msk bráðið smjör
2 msk hrásykur
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt(sjávarsalt)
100 ml bláber
Aðferð:
Hrærið saman mjók og egg með písk eða í hrærivél, bætið svo hveitinu, lyftidufti, sykri og salti saman við og síðast smjörinu. Þegar allt er vel blandað saman þá er bláberjunum blandað varlega saman við til að þau fari ekki í mauk.
Þetta er svo bakað eins og pönnukökur á pönnukökupönnu í nokkrar mínútur á hvorri hlið. Passið að það sjáist bublur í deiginu áður en kökunni er snúið við.
Berið fram með smjöri og sýrópi eða súkkulaði(gæti verið Nutella eða kökukrem), eða jafnvel flórsykri.
Skrifa athugasemd
-
Deep pan pizza
23. mars 2012
Ég geri alltaf þunnbotna ítalska pizzu með leyniuppskrift vinkonu minnar sem kemur frá ekki frægari stað en Napólí á Ítalíu en í þetta skiptið bað dóttir mín mig um að gera eitthvað öðruvísi og ég ákvað að gera þykkbotna pizzu og fara með þetta alla leið og setja ost inn í endana líka og krökkunum fannst þetta algjört æði, enda var hún svakalega góð.
Ég gerði bara venjulegt pizzudeig en flatti það út þykkara en venjulega og setti það í stórt bökuform sem ég á en það er 30 sm í þvermál og smurði það með ólífuolíu og dreifði grófu speltmjöli yfir botninn. Síðan setti ég það sem við venjulega setjum á pizzuna nema bara aðeins meiri lúxus, t.d. ekki venjulegt pepperóní heldur ungverska spægipylsu frá Kjöthóli og svo setti ég vel þroskaðan Öðling líka og ferska tómata yfir. Ég skar langar ræmur af venjulegum brauðosti og setti á endana af deiginu og velti svo deigi yfir þannig að endarnir urðu þykkir og góðir og fylltir með osti.
Pizzudeig
250 gr hveiti(eða hvítt spelt)
250 gr gróft spelt
14 gr þurrger
1 1/2 tsk salt(maldon eða sjávarsalt)
2 msk ólífuolía
volgt vatn(ég set vatnið útí á meðan vélin hrærir og byrja á einu glasi(ca 200 ml) og bæti svo í eftir smekk)
Pizzasósa
1/4 laukur, saxaður
1 dós hreinir tómatar, saxaðir(hreinir þá meina ég ekki með neinum kryddum, salti eða aukaefnum, það er auðvelt að finna í Krónunni, Hagkaupum, Nóatúni og að sjálfsögðu í heilsubúðunum)
4 msk extra virgin ólífuolía
salt og pipar og smá kjötkraftur(ég nota lífrænan og saltlítinn, fæst í heilsubúðunum, Krónunni og betri búðum)
Stundum set ég smávegis óreganó, sérstaklega ef ég á það ferskt en það er ekki nauðsynlegt.
Setjið olíuna í lítinn pott og hitið lítillega, bætið lauknum saman við og steikið þar til hann mýkist, bætið þá tómötunum saman við, salti og pipar og krafti ef vill.
Fyrir deigið þá er öllu hrært saman og hrært í 5 mínútur látið svo hefast á þurrum og hlýjum stað(ofan á ofni eða inni í 30-40°C heitum ofni(ég kveiki oft á ofninum í 50°C og slekk svo á honum og set deigið inn og læt hefast í ca klukkutíma).
Látið hefast þar til það hefur tvöfaldast að stærð eða ca 1-2 klst.
Skiptið deiginu í tvennt og fletjið hvorn helming í ca 1 cm þykkan hring sem er aðeins stærri en formið sjálft þar sem þið ætlið að fylla endana. Setjið ofan í smurða formið og fyllið endana og setjið á pizzuna það sem ykkur þykir gott. Bakið í forhituðum ofni við 220°C þar til osturinn er fallega brúnn á nokkrum stöðum og deigið fallega gullinbrúnt á endunum.
Skrifa athugasemd
-
Calzone Pugliese með graskersfyllingu
19. mars 2012
Ég fór í mikið ítalíustuð um daginn og gerði nokkra rétti í röð þar sem ég nýtti mér frábæru matarhefðir Ítalanna og fór í gegnum allar bækurnar mínar um ítalska matargerð og ferðabækur sem ég sankaði að mér á meðan ég bjó þar í þrjú ár. Þetta var yndislegt ferðalag, bæði í huganum og hið raunverulega. Ég ákvað því, mjög inspíreruð af öllum bókunum mínum að gera nokkurs konar calzone pizzu nema í anda Pugliebúa en hún er þó nokkuð mikið öðruvísi en hin eiginlega calzone sem við höfum fengið að kynnast. Brauðið í þessari er meira líkt bökudeigi en pizzudeigi og verður því örlítið þurrt sem gefur okkur bara afsökun til að vera með einhverja safaríka sósu með. Ég bar fram basilíkupestó með þessari og fannst öllum það rosalega gott. En það gæti líka passað að vera með heimatilbúna tómatsósu, eða jafnvel jógúrtsósu með myntu og hunangi.
Deig:
400 gr hveiti
100 ml ólífuolía
1 egg, slegið
100 ml hvítvín(þurrt)
salt(ca 1 tsk maldon salt)
Fylling:
1/2 rauðlaukur, saxaður
1 lítill laukur, saxaður
1/2 lítið grasker
1 grein rósmarín, lauf tekin af og söxuð smátt
4 greinar timían, lauf tekin af og söxuð smátt
1 grein mynta, lauf tekin af og söxuð smátt
6 hvítlauksrif, skorin í sneiðar
160 gr kotasæla
4 egg(athugið að geyma smá af þessu til að smyrja deigið með í lokin)
1 lárviðarlauf
1/2 fennel, saxaður
1/2 sellerístöngull, saxaður
50 ml mjólk
Aðferð við deigið:
Setjið hveitið í skál og búið til holu í miðjunni. Bætið þar í olíunni, egginu og hvítvíninu og hægt og rólega blandið öllu saman, bætið vatni í ef ykkur þykir þess þurfa og smá salti. Þegar deigið er tilbúið(sleppir hendi) er það vafið í plastfilmu og sett í kæli í 30 mínútur áður en því er rúllað út. Hitið ofninn á meðan í 200°C og búið til fyllinguna
Aðferð við fyllingu:
Steikið á pönnu laukana, grasker, fennel og sellerí og þegar það byrjar að mýkjast er kryddjurtunum bætt saman við ásamt hvítlauknum. Þetta er steikt við meðal háan hita þar til allt tekur á sig lit og er orðið fallega gullinbrúnt á litinn. Saltið og piprið eftir smekk
Kælið örlítið. Hrærið saman eggjunum, kotasælunni og mjólkinni og saltið og piprið eftir smekk. Bætið þá grænmetinu saman við og setjið til hliðar
Sett saman. Þá er deiginu rúllað út í 3 mm þykkan hring og setjið á olíusmurða ofnplötu. Setjið fyllinguna á miðju hringsins og fellið deigið yfir hana og myndið þannig hálfhring. Pressið brúnirnar saman til að loka fyllinguna inni og smyrjið með eggi sem hefur verið þeytt örlítið með smá vatni. Bakið við 200°C í 25-35 mínútur eða þar til deigið hefur tekið á sig fallegan gullinbrúnan lit.
Berið fram með fersku salati með perum, spínati, ristuðum cashew hnetum, tómötum og dressingu úr balsamik ediki, smá Dijon sinnepi og olíu og svo basilíkupestó eða sósu að eigin vali.
Skrifa athugasemd
-
Tacoskeljar
19. mars 2012
Ég er komin í aðald í mat að því leytinu til að ég er ekki í megrun heldur í eins konar fjárhagsmegrun. Ég þarf að halda mig við 10.000-15.000 kall í mat á viku(fyrir fjögurra manna fjölskyldu) og ekki krónu meir og eina ráðið til þess er að fara einu sinni í viku í búð, vera búin að búa til matseðil fyrir vikuna og hafa innkaupalista við höndina, ég passa líka að fara ekki svöng í búðina því annars ratar alltaf eitthvað í körfuna sem ég hef engin not fyrir. Ég fór því fyrir viku síðan og keypti í matinn með allt þetta við höndina og náði að halda reikningnum í 12.000 kalli. Í gær kom það svo í ljós að mjólkin var búin og morgunkorn krakkanna, brauðið var líka búið og ég ætlaði að vera með mexíkanskt taco( þar sem krakkarnir vilja ekki tortillur, þeim finnast þær einfaldlega vondar) þá sá ég að ég hafði keypt tortillur en ekki taco(var greinilega búin að gleyma því að krökkunum þykja þær vondar). Jæja þá voru góð ráð dýr en maður deyr ekki ráðalaus og ekki gat ég farið út í búð til að redda málunum. Ég tók mig til og bakaði tvær tegundir af brauðum eitt sem tók enga stund og heitir Sódabrauð(írskt) og annað gerbrauð og tók góðan tíma í að hefa sig þar sem ég var með svo gróft hveiti í því. Ég reddaði mjólkinni með hrísgrjónamjólk sem ég átti inni í skáp, en hún endist mun lengur en venjuleg mjólk, nema hvað að hún er mun dýrari en ég get reddað mér á henni þegar allt þrýtur. En þá var komið að tacoskeljunum. Ég tók mig til henti grænmetisolíu á pönnu og hitaði í 160°C og steikti tortillakökurnar í olíunni, með hjálp tangnanna minna að sjálfsögðu. Þetta kom svo vel út að ég held ég muni bara gera þetta í framtíðinni og þetta er mun hollara þar sem ég nota alltaf heilhveiti tortillur, en ég er að spá í næst að búa til mínar eigin tortillur og fara þannig með þetta alla leið. Ég bjó líka til salsasósuna þar sem hún var ekki til heldur og hún kostar líka annan handlegginn miðað við magnið sem maður fær, ég var liggur við fljótari að búa hana til en að opna krukku. Ég tók engar myndir að þessu sinni þar sem þetta lítur aldrei neitt sérstaklega vel út, mexíkanskur matur er ekkert sérlega fótógenískur en ég held að næst muni ég búa eitthvað annað til til að setja inní skeljarnar, krökkunum fannst þetta algjört æði og borðuðu alveg heilmikið og ég átti svo afgang til að setja í nesti handa stelpunni minni daginn eftir.
Skejlarnar stekti ég á hvorri hlið í heitri olíunni í ca 15-20 sekúndur og sveigði kökuna með töngum þannig að hún myndaði vasa og hélt því þannig á meðan á steikingunni stóð og sneri kökunni því næst við og steikti á þeirri hlið í 15-20 sek. Þegar hver skel var tilbúin þá setti ég þær á bökunarpappír og saltaði örlítið með maldonsalti.
Inn í skeljarnar var ég mjög hefðbundin og steikti lauk og kjöt með kryddum, hafði síðan iceberg, tómata, sýrðan rjóma, ost og salsa sósu sem hver og einn setti inn í sína köku.
Skrifa athugasemd
-
Tagliatelle með salsiccia og sveppum
29. febrúar 2012
Þegar ég geri pasta eða spaghetti þá reyni ég alltaf að hafa það með léttum sósum og helst engar unnar kjötvörur en í þetta skiptið átti ég afganga af rjóma eftir bolludaginn inni í ísskáp og afganga af salsiccia frá pizzakvöldi þannig að ég ákvað að láta undan þrýstingi fjölskyldunnar og búa til sósu með tagliatelle sem er sko full af rjóma og mjög bragðmikil. Ég geri rjómasósu ca. einu sinni á ári en þessi sló alveg í gegn hjá krökkunum og að sjálfsögðu eiginmanninum. Rosalega góð.
Rjómasósa með salsiccia og sveppum
4 hvítlauksrif, skorin í sneiðar
50 gr salsiccia(eða spægipylsa)
1/2 bakki sveppir(má líka bæta við villisveppum ef vill)
1 laukur(meðal stór)
1/2 grein ferskt rósmarín, blöðin tekin af og saxað
1 grein ferskt timían, blöðin tekin af og saxað
100 ml hvítvín
250 ml rjómi
4 msk tómat passata(ég gerði mína eigin úr tómötum, lauk, ólífuolíu, rósmarín, timían og hvítlauk og smá krafti, salti og pipar og sauð niður þar til hún þykknaði og maukaði svo með töfrasprota)
ólífuolía til steikingar
20-30 gr Öðlingur(fæ ekki nóg af þeim osti, algjör snilld)
300 gr tagliatelle(þyngdin er gefin upp í ósoðnu tagliatelle)
Aðferð:
1. Saxið kryddin, laukinn, hvítlaukinn og sveppina. Setjið 3 msk af ólífuolíu á stóra pönnu, hitið við meðaháan hita. Þegar pannan er orðin heit er grænmetið sett á pönnuna og steikt við meðal háan hita í ca.10 mínútur eða þar til laukurinn er vel mjúkur og sætur og sveppirnir eru einnig vel steiktir.
2. Hellið þá hvítvíninu saman við og sjóðið örlítið niður, bætið þá tómat passata saman við og hrærið vel saman. Bætið þá rjómanum saman við og síðast salsiccia og ostinum. Sjóðið vel saman og passið að sósan verður vel sölt af spægipylsunni og smakkið því áður en þið ákveðið að salta og pipra. Ég þurfti ekki að salta og pipra þar sem saliccian sem ég notaði var mjög bragðmikil. Ég notaði pylsu frá Kjötpól en þeir nota engin rotvarnarefni í sínar kjötvörur.
3. Sjóðið tagliatelle eftir leiðbeiningum á pakka.
Berið fram í sitthvoru lagi þar sem sósan er mjög bragðmikil og það er misjafnt hvað fólk vill fá mikla sósu á diskinn sinn. En þá er gott að hella ólífuolíu yfir heitt tagliatelle rétt eftir að þið hafið sigtað vatnið frá því.
Mjög gott að bera fram með hvítlauks crostini.
Skrifa athugasemd




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
