Í blaðinu Unga Evrópa, sem Ungir Evrópusinnar gáfu út fyrir stuttu, má finna hinn svokallaða ESB-tékklista, en með honum er hægt að finna út hversu mikill Evrópusinni maður er, með því að taka saman hversu margar af neðangreindum staðreyndum á við mann.
Taktu prófið og sjáðu hversu mikill Evrópusinni þú ert! :)
1) Ég vil borga minna fyrir hluti sem ég panta mér á netinu frá löndum innan ESB!
2) Ég vil borga minna fyrir mat!
3) Ég vil borga lægri vexti á húsnæðislánum!
4) Ég vil borga lægri skólagjöld í ýmsum evrópskum háskólum, til dæmis í Bretlandi.
5) Ég vil aukna atvinnumöguleika!
6) Ég vil meira vöruúrval í búðum!
7) Ég vil að Ísland verði alltaf sjálfstætt ríki!
8) Ég vil ekki þurfa að ganga í her!
9) Ég vil fleiri tækifæri!
10) Ég vil betra líf á Íslandi!
Niðurstaða:
0 stig: Allt í lagi, þú ert ekki Evrópusinni, skilaboð móttekin.
1-5 stig: Það virðist leynast lúmskur Evrópusinni í þér.
6 - 9 stig: Þú ert greinilega Evrópusinni og veist að framtíðin okkar er innan Evrópusambandsins.
10 stig: Þetta var aldrei spurning. Sjáumst í Evrópusambandinu.
PS. Svo mæli ég með því að þú lesir blaðið :)
