Sema Erla

Sema Erla

Sema Erla er stjórnmálafræðingur sem útskrifaðist með meistaragráðu í Evrópufræðum (e. European Union Politics and Law) frá Edinborgarháskóla árið 2011. Hún starfar nú sem verkefnastjóri hjá Já Ísland. Evrópumálin eru því allt í senn menntunin, atvinnan og áhugamálið og því mun flest allt hér fjalla um málefni Evrópusambandsins og Íslands. Hafðu samband: semaerla@gmail.com

"Hello Democracy - Goodbye ACTA"

4. júlí 2012 › 13:21
(Mynd: European Parliament)

Í dag berast þau stórtíðindi frá Evrópuþinginu að hinn svokallaði  ACTA-samningur (Anti-Counterfeiting Trade Agreement)* hefur verið kolfelldur. Meðan 487 þingmenn kusu gegn samningnum kusu einungis 39 með. 165 þingmenn sátu hjá.


Stuttu áður hafði flokkur miðju- og hægrimanna (European People´s Party), stærsti flokkur Evrópuþingsins og helstu stuðningsmenn ACTA-samningsins, óskað eftir því að atkvæðagreiðslunni yrðir frestað þar sem ACTA er til skoðunar hjá Evrópudómstólnum. Það gekk hins vegar ekki eftir og var samningurinn eins og áður sagði kolfelldur og þurftu miðju- og hægrimenn þingsins að játa sig sigraða.


*ACTA-samningurinn, sem er alþjóðlegur samningur um verndun á höfundarétti, meðal annars á efni á netinu, hefur verið harðlega gagnrýndur og er hann talinn skerða tjáningarfrelsi og beinlínis koma á ritskoðun á netnotkun almennings. Þúsundir borgara Evrópusambandsins hafa því mótmælt fyrirkomulaginu undanfarið, meðal annars með mótmælagöngum, auk þess sem Evrópuþinginu var afhent undirskrifasöfnun með 2.8 milljón undirskriftum, frá fólki alls staðar úr heiminum.


Áður höfðu 22 aðildarríki Evrópusambandsins skrifað undir þennan alþjóðlega samning, auk Bandaríkjanna, Ástralíu, Kanada, Japan og fleiri ríkja, en þar sem Evrópuþingið hefur nú hafnað samningnum mun hann ekki verða að lögum innan Evrópusambandsins. Er þetta í fyrsta skipti, frá því að Lissabon-sáttmálinn tók gildi, sem Evrópuþingið notar þau völd sem það öðlaðist með sáttmálanum, það er að segja, þann rétt að hafna alþjóðaviðskiptasamningi.


Telja margir að í dag hafi lýðræðið og einstaklingsfrelsið sigrað og því mátti sjá þingmenn Evrópuþingsins með skilti sem á stóð: "Hello Democracy - Goodbye ACTA" (sjá mynd að ofan).


Ég tek undir þau skilaboð og fagna því að ACTA mun ekki verða að lögum innan ESB á sama tíma og ég fagna því að Evrópuþingið standi vörð um lýðræðið.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.