Hvað er svona hollt og gott við berin?
þau eru auðug af vítamínum, steinefnum, trefjaefnum og öðrum hollustuefnum.
Sérstaklega eru þau rík af C-vítamíni og talsvert er af E-vítamíni í aðalbláberjum og bláberjum.
Bæði þessi vítamín eru andoxunarefni en þau hindra myndun skaðlegra sindurefna í frumum líkamans. Þessi sindurefni eru talin tengjast hrörnun og því að ákveðnir sjúkdómar þróast í líkamanum, s.s. krabbamein, æðakölkun og ský á auga.
Rannsóknir hafa sýnt að bláber hafa sérstaklega mikla andoxunarvirkni en auk áðurnefndra vítamína er litarefnið anthocyanin, sem gerir þau blá, virkt andoxunarefni en það er talin vera ástæðan fyrir þessari sérstöðu bláberjanna.
Töluvert er af járni í krækiberjum en rannsóknir sýna að mörg börn og konur á Íslandi fá ekki nægjanlegt magn járns úr fæðunni.
Krækiber og aðalbláber eru einnig trefjarík en trefjaefni eru nauðsynleg fyrir eðlilega meltingu.
Margir eru að huga að þyngdinni og þeir geta glaðst yfir því að óhætt er að borða töluvert af berjum því í 100 g, sem er um einn og hálfur desilítri, eru ekki nema á bilinu 27-60 hitaeiningar, minnst í krækiberjum en mest í bláberjum.
Sama magn af bláberjum veitir 38 mg af C-vítamíni sem eru tæplega 2/3 hlutar af ráðlögðum dagskammti og fimmta part af ráðlögðum dagskammti fyrir E-vítamín.
Heimild: Hólmfríður Þorgeirsdóttir hjá Lýðheilsustöð.
