ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Níels A. Ársælsson

Níels A. Ársælsson

Vestfirðingar hafa verið beittir harðræði af ýmsu tagi, þurfa að þola niðurlæjandi fátækt og njóta ekki fullra félags- og stjórnmálalegra réttinda. Mannréttindi hafa verið brotin á Vestfirðingum vegna deilna um nýtingu fiskimiðanna úti fyrir ströndum Vestfjarða. Frá því að kvótakerfi var sett á fiskveiðar hafa Þúsundir Vestfirðinga flosnað upp frá átthögum sínum og hrakist á vergang eignalausir án atvinnu. Allt það ofbeldi sem Vestfirðingar hafa mátt þola hefur viðgengist með vitund og vilja stjórnvalda.

Dæmdur fyrir kjafthátt upp á kóngsins síðu

14:43 › 3. febrúar 2012
Jón Hreggviðsson fremstur á myndinni

Bóndinn Jón Hreggviðsson þá búsettur á Efri-Reyni á Akranesi komst enn og aftur í kast við lögin er hann var til saka sóttur á Öxarárþingi í júlí 1693.


Var Jóni í það sinnið gefið að sök að hafa í ölæði látið falla smánarorð upp á kóngsins síðu en ekki þótti samt fullsannað að hann hafi beint þeim illyrðum "til vors æðsta yfirvalds á jörðinni" eins og stendur í dómnum.


En fyrir þær sakir að dólgurinn "var áður þekktur fyrir illmannlega tilburði og atvik, og ekki síður að strákslegum og óráðvöndum orðatiltækjum, fólki til æsingar og ófriðar", þá var honum dæmd stórkostleg húðlátsrefsing.


Auk þess var jón látinn slá sig í þrígang á munnsöfnuðinn, sjálfum sér og öðrum til áminningar vegna sinnar lygatungu og fyrirlitningar.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?