Í heimskreppunni miklu 1929–1934 nagaði samviskan marga og ekki var óalgengt að menn hentu sér út um glugga á háhýsum eða stútuðu sér með öðrum aðferðum.
Nú virðast vera aðrir og bjartari tímar hjá einstaklingum sem rústað hafa fyrirtækjum, bönkum, sparisjóðum og lífeyrissjóðum, enda hlaupa margir hlægjandi á braut með hundruðir milljóna og miljarða í vasanum.
"Þrúgur reiðinnar" eftir John Steinbeck sem kom út árið 1939. Hún segir frá flutningi landbúnaðarverkamanna frá Oklahoma til fyrirheitna landsins í vestri, Kaliforníu, þar sem þeir telja að betra líf og atvinna bíði þeirra.
Tugir þúsunda annarra öreiga eru hins vegar á sömu leið í sams konar erindagjörðum og því er ekki mikla vinnu að fá þegar til Vesturstrandarinnar er komið. Aðkomufólksins bíður eymd, atvinnuleysi og niðurlæging.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
