-
53 sjómenn fórust á 5 fiskiskútum
19. maí 2012
Hinn 1. mai 1897 brast á ofsabylur með hörkufrosti, norðanstórviðri og fannkomu. Einkum var veðrið óskaplegt úti fyrir Vestfjörðum, en á þeim slóðum var nær allur vestfizki og norðlenzki flotinn.
Telja margir gamlir menn vestra, að 1. maí-garðurinn sé hið versta áhlaup, sem þeir hafa nokkru sinni lent í. Það voru heldur engin smáræðis skörð, sem höggvin voru í skipastólinn í veðri þessu. Fimm þilskip fórust með allri áhöfn, og verður þeirra nú getið.
Draupnir 20 tonna hákarlaskip frá Akureyri, eign Gránufélagið. Með Draupni fórust átta menn, þar á meðal skipstjórinn, ungur maður og bráðefnilegur, Jón Jónsson frá Pétursborg í Kræklingahlíð, ásamt þremur yngri bræðrum sínum. Móðir bræðranna fjögra var fátæk ekkja sem fáum árum fyrr hafði misst mann sinn í sjóinn, tvo bræður og tvo móðurbræður. Aleiga hennar voru synirnir fjórir, sem á Draupni silgdu.
Stormur 22 tonna hákarlaskip frá Eyjafirði, eign nokkura einstaklinga. Með stormi fórust tólf menn.
Gestur 20 tonna hákarlaskip frá Eyjafirði, eign Jóns Antonssonar bónda í Arnarnesi. Með Gesti fórust tíu menn.
Vigga frá Patreksfirði, eign Markúsar Snæbjörnssonar kaupmanns. Vigga var fremur lítil skúta, einsilgd, nokkuð gömul og ekki sterkbyggð. Vigga var gerð út handfæraveiðar þegar hún fórst og með henni tólf menn.
Þráinn lítil skúta frá Ísafirði, eign manna frá Skutulfirði. Þráinn var gerður út á handfæraveiðar þegar hann fórst að talið er undan Látrabjargi og með honum ellefu menn. Skipstjóri á Þránni var Bjarni Bjarnason frá Laugabóli í Arnarfirði.
(Bjarni Bjarnason skipstjóri frá Laugarbóli var langa-langafi minn)
Skrifa athugasemd
-
Verkun á skreið
18. maí 2012
Það hefur verið svo frá fornöld, eins og Íslendingasögurnar sýna, að allt fram að aldamótum 1900 að sérhver bóndi hefur kappkostað að afla sér nægrar skreiðar til heimilsneyslu.
Raunar vissu menn þá ekkert um efnafræði- og vísindalegan hátt um gildi ósoðins matar eða um nein bætiefni.
Ekki mun mönnum heldur hafa verið ljóst, hversu góð áhrif harðfisksátið hafði á tennurnar og þar af leiðandi á meltinguna og allt heilsufarið, en hitt fundu þeir af sjálfum sér, að skreiðin var ómissandi fæða.
Hún var drjúgur matur, næringarmikill, saðsamur, þurfi litla matreiðslu og geymdist vel, enda var engin matvara eins eftirsótt og í öðru eins uppáhaldi og skreiðin.
Það sýna – auk þess kostnaðar ferðir og öll fyrirhöfnin, sem lagt var í til að afla hennar – ýmsar þjóðsagnir og þjóðtrú.
Það var t.d. trú sumra manna, að ef ávallt væri til á heimilinu hertur ufsi, þá yrði aldrei fisklaust.
Skrifa athugasemd
-
Fólksflóttinn frá Vestfjörðum
17. maí 2012
Fækkun íbúa á Vestfjörðum er stærsta ógnin við framtíðarrekstur Orkubús Vestfjarða. Þetta sagði Kristján Haraldsson orkubússtjóri í aðalfundi fyrirtækisins.
Á Reykhólavefnum er fjallað um þessa fækkun, og að með áframhaldandi þróun í þessa átt verði enginn íbúi eftir á Vestfjörðum að 50 árum liðnum.
Kristján segir að stjórnvöld verði tafarlaust að grípa til aðgerða til að hindra frekari eyðingu byggðar, og nefnir þar fyrst bættar samgöngur og jöfnun búsetukostnaðar.Skrifa athugasemd
-
Hið markaðsdrifna kvótakerfi Íslendinga
16. maí 2012
Kapítalismi og auðvaldsskipulag við fiskveiðar Íslendinga lýsa sér ágætlega í þessari mynd.
Skrifa athugasemd
-
Dætur Íslands
14. maí 2012
Dætur Íslands vilja svör.
Skrifa athugasemd




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
