Í dag eru forsetakosningar og allt á öðrum endanum í fjölmiðlum vegna þess, skiljanlega. Hinvegar er þetta ekki það eina sem er að gerast á landinu því í fyrradag voru þrjár litlar stelpur teknar grátandi frá móður sinni, sem var haldið niðri á meðan af lögreglumönnum. Fjölmiðlar hafa fjallað lítillega um þetta en málið hefur verið áberandi á Facebook þar sem allir furða sig á því hvernig svona getur eiginlega gerst.
Í kjölfarið hefur verið stofnuð síða á Facebook og undirskriftasöfnun hefur farið í gang, sem miðar að því að leysa málið. Fá stelpurnar aftur til mömmu sinnar, þar sem sýnt hefur verið fram á að faðir stúlknanna, sem er með forræði yfir þeim, sé ofbeldismaður. Að auki hafa börnin ekki sýnt neinn áhuga á því að vera hjá honum.
Ofbeldismaður eða ekki - daninn styður sína
Eftir því sem mér skilst er danska kerfið skrúfað þannig saman að ef dani á barn með útlendingi þá stendur danska ríkið alltaf með dananum. Sama hvernig hann er skrúfaður saman, ofbeldismaður eða ekki.
Hér stendur þetta einfaldlega svart á hvítu í grein frá danska blaðinu MetroExpress - Þar stendur m.a.
"Den ene forælder er udlænding, den anden er dansk, men udøver for eksempel vold mod barnet. I forældremyndighedssager, hvor det er tilfældet, sker det, at den fulde forældremyndighed bliver tildelt den danske statsborger – uanset hvad der er bedst for barnet. "
Þó að væri ekki nema aðeins vegna þessa þá finnst mér þetta mál mikil frétt sem hægt væri að skoða frá ýmsum hliðum. Það væri einnig gott að vekja athygli danskra fjölmiðla á málinu því ég held að samkennd okkar geti varla beinst að þessum manni sem fékk forræðið, þrátt fyrir að hafa sýnilega beitt börnin miklu ofbeldi svo það sér á þeim. (þú getur skoðað myndir af þessu inn á stuðningssíðunni á Facebook)
Er þetta kærleikur í verki?
Þá væri kannski áhugavert að heyra hvað þessi barnsfaðir hefur um málið að segja. Honum hlýtur að vera fúlasta alvara fyrst hann er sáttur við að fjöldi lögreglubíla keyri að heimili barna hans, og að móður þeirra sé haldið niðri af lögreglumanni, meðan þau hágrátandi eru fjarlægð frá konu sem er, svk því sem ég best fæ séð, ósköp venjuleg, íslensk mamma. Þetta skilgreinir maður ekki sem kærleika.
Í sannleika sagt þá held ég að þetta sé bara nákvæmlega eins og það lítur út.
Ég held að þetta sé vondur maður og misheppnað kerfi sem er að klikka mjög illa. Og ég held að það breytist ekki nema það sé beitt þrýstingi frá þeim sem vilja styðja við þessa konu og börnin hennar í þessari sorglegu baráttu.
Við, sem manneskjur, eigum að sjá sóma okkar í því að vernda börn og passa að þau séu ekki beitt ofbeldi. Hvort sem þetta ofbeldi er kynferðislegt eða ekki. Og það gildir einu hvort þessi börn tilheyra okkar fjölskyldu eða annara. Börn eru börn og þau geta ekki varið sig sjálf. Við verðum að styðja við þau, vernda þau, hvort sem óvinurinn er siðlaus maður sem leggur hendur á þau eða disfúnksjónalt og lélegt kerfi sem gerir þeim meira slæmt en gott.
Þessi stuðningur verður að koma frá mér og þér - okkur fullorðna fólkinu - en einnig bæði dönskum og íslenskum fjölmiðlum - af fullum krafti!!
Hér er aftur stuðningssíðan á Facebook og hér er undirskriftasöfnunin:
http://www.ipetitions.com/petition/krefjumst-rettar-fyrir-bornin
