ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.7° 8m/s SE
Ef það sé ekki lekkert...

Ef það sé ekki lekkert...

Margrét Hugrún hefur starfað við fjölmiðla frá tvítugu, útvarp og sjónvarp en aðallega blöð og tímarit. Hún hefur skrifað fyrir Mannlíf, S&H, Hús og Híbýli, Fréttablaðið, Moggann og Undirtóna svo fátt eitt sé nefnt og séð um textagerð fyrir auglýsingar og tekið að sér ritstjórn. Margrét er aukinheldur lærður ljósmyndari. Hún er hönnuður og yfirlesari Pjattrófanna sem hafa nú aðsetur hjá DV.

  • Áfram íslenskt!

    28. mars 2012

    Þessar stóðu að ATMO


    Neyðin kennir naktri konu að spinna. Eða svo er sagt. Á síðustu fjórum árum hefur þetta sannast svo um munar því aldrei hafa jafn margir íslenskir hönnuðir verið áberandi og um þessar mundir og eru flestar þeirra konur. Þetta er bæði gott og skemmtilegt og enn skemmtilegra að finna meðbyrinn. 


    Um síðustu helgi stóð Hönnunarmarsinn yfir og um næstu helgi byrjar RFF eða Reykjavík Fashion Festival. Ég hef fylgst náið með þessu öllu hjá Pjattrófunum en hönnunartæknirinn Vala Árnadóttir hefur tekið viðtöl við alla sem taka þátt í RFF og munu fleiri viðtöl birtast í dag og á morgun. 


    Guðný Hrönn 'pjattrófa' skrapp líka í ATMO húsið um síðustu helgi en þar má segja að hafi verið opnað risastórt 'moll' sem seldi aðeins íslenska hönnun. Af myndunum að dæma var einstaklega vel staðið að þessu og það var mál manna að slíkan markað þyrfti að halda aftur að ári, já ef ekki oftar. 


    Smelltu HÉR til að skoða myndir úr ATMO húsinu og fylgdust svo með RFF hjá Pjattrófunum næstu daga. Við munum blogga og birta myndir jafnóðum  ;) 

    Skrifa athugasemd

  • Ekki eiga góðan dag - Njóttu hans frekar!

    9. febrúar 2012

    Ein er sú setning sem maður heyrir æ oftar í daglegu tali. Hún er ‘eigðu góðan dag’.


    Ég fæ alltaf pirringshroll þegar ég heyri þetta. Setningin er því miður bjöguð og kjánaleg þó meininigin sé auðvitað bæði góð og falleg. Setning þessi er augljóslega beinþýdd upp úr ensku og hefur skotið hér rótum en því miður hefur þetta orðasamband á ensku ekki sömu ’tilfinningu’ á íslensku.


    „Have a nice day“ hljómar nefninlega mun betur þar sem orðið „have“ er með aðra merkingu á ensku.


    Þannig myndi t.d. setning á borð við: „Ég á tilfinningu að það verði gott veður“ hljóma afar furðulega meðan „I have a feeling the weather will be good “ hljómar mun betur. Hinsvegar er alveg hægt að segja að maður „Hafi eitthvað á tilfinningunni“.


    En ekki er öll von úti! Það er jú til miklu fallegri og betri leið til að óska fólki góðrar stemmningar yfir daginn. Hún er:


    Njóttu dagsins!


    Þessi er ekki bara rétt og góð heldur eru skilaboðin mun skýrari en þegar einhver óskar manni þess að „eiga góðan dag“. Svo má auðvitað bara segja "Hafðu það gott í dag" sem hljómar líka vel.


    Núna óska ég þér þess hinsvegar að þú – njótir kvöldsins! (í stað þess að eiga það gott) ;)

    Skrifa athugasemd

  • Afskipti löggjafarvalds

    19. október 2011

    ... ein spurning:
    Þegar Helgi Hjörvar stendur í ræðustól og skiptir sér af ráðningu Páls Magnússonar - Flokkast það ekki sem afskipti löggjafarvalds af framkvæmdavaldi?

    Sagði ekki hann Vilmundur Gylfason okkar að það það þyrfti að aðgreina þetta? 

    Hugsanlega er heldur mikil hræsni og hentistefna í tísku um þessar mundir?

    Skrifa athugasemd

  • Feminismi

    1. júlí 2011






    Skrifa athugasemd

  • Íslendingar borga minna

    29. júní 2011

    Ekki botna ég neitt í þessari kjánalegu og "PC" umræðu um að við sem hér búum og borgum skatta fáum að greiða lægra verð fyrir afþreyingu sem annars er stíluð inn á túrista. 
    Þetta er mjög algengt, hvert sem maður kemur í Evrópu eða BNA. Til dæmis fá íbúar Flórídafylkis að borga minna inn í Disney World en aðrir og þetta gildir almennt um flesta skemmtigarða sem ég hef komið í, hvar sem er í heiminum. 

    Þegar ég fór til hinnar dásamlegu borgar Sevilla í apríl var ætlast til að við túristarnir greiddum aðgangseyri meðan borgarbúar fengu að fara frítt inn í dómkirkjuna þar sem herra Kristófer Kólumbus liggur grafinn. 

    Fólk á bara að vera ánægt með þetta í stað þessa að röfla og tuða. 

    Hinsvegar er ég sammála því að það var kjánalegt að láta einn krakka draga upp budduna þegar það var frítt í sund fyrir íslendinga en ekki aðra og einn úr hópnum var erlendur. Auðvitað átti krakkinn bara að fá að hoppa útí. Það er ekki eins og krakkar borgi skatta. 

    Reynum svo að vera soldið kát.

    Skrifa athugasemd

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?