Lýður Árnason

Lýður Árnason

Lýður Árnason, læknir og kvikmyndagerðarmaður. Bý í borg, sæki í sveit, barnmargur.

  • HUGSUM STÓRT, X-L

    23. mars 2013


    Lýðræðisvaktin er farin að blása til sóknar.  Málsmetandi fólk úr þjóðlífinu hefur tekið að sér að standa vaktina og fleiri munu bætast í hópinn á næstu dögum.  Kjósendur ættu að vita fyrir hvað þetta fólk stendur en framundan eru verkefni sem lengi hafa legið fyrir.   Einna stærst er glíman við hagsmunaaðila en tangarhald þeirra á lánastarfsemi, lífeyrissjóðum, fiskiauðlindinni, fjölmiðlum og alþingi sjálfu hefur eitrað samfélagið svo mjög að vart er hér búandi.  Til að létta þessu oki af þjóðinni og færa okkur öll að sama borði þarf styrk og stefnufestu, hér duga engar liðleskjur.  Glugginn til breytinga verður opinn þann 27. apríl.  Þann dag getum við brotið af okkur klakaböndin, hugsum stórt, X-L.

    Skrifa athugasemd

  • LAGAGERÐIN

    18. mars 2013


    Þing er verksmiðja til lagagerðar.  Lögin eiga að streyma út, vel snyrt, innpökkuð og tilbúin til notkunar.   En færiband þingsins er fast.  Þaðan koma engin lög.  Meira að segja málsmeðferðir eru þingmönnum ofviða.  Svo heldur þetta fólk að ekki sé hægt að samþykkja nýja stjórnarskrá nema með breiðri samstöðu þingsins.  Yfir mér dauðum. 

    Skrifa athugasemd

  • ORÐLAUS VIGDÍS

    15. mars 2013

    Þrjátíu og tveir þingmenn hafa lýst sig meðfylgjandi nýrri stjórnarskrá í samræmi við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar í haust.  Sem þýðir að þinginu ætti að vera í lófa lagið að klára málið ef ekki væri vegna málþófsvopnsins, flöskuhálsinn sem fyrr, stjórnarandstaðan.  Því suðu stjórnarflokkarnir upp málamiðlunartillögu ásamt Björtuframtíðarþingmönnunum svo hægt væri að viðhalda glóðinni í nýju stjórnarskránni fram á næsta þing.  Óvænt útspil Margrétar Tryggvadóttur i formi breytingatillögu gefur hinsvegar stjórnarflokkunum og öðrum tækifæri til þess að greiða atkvæði fyrir þinglok um stjórnarskrána í heild sinni.   Uppnám dagsins hlýtur því að stafa af þeirri óvæntu ánægju þingmanna að fá loks að standa við sannfæringu sína.  Orðleysi Vigdísar skemmir svo ekki fyrir, sérlega standi það fram yfir atkvæðagreiðsluna. 

    Skrifa athugasemd

  • ÉG MYNDI SEGJA JÁ

    8. mars 2013

    Staða stjórnarskrármálsins á alþingi endurspeglar vel brýna þörf hennar.  Ný stjórnarskrá kæmi í veg fyrir gjafabréf á auðlindanýtingu til tiltekinna hópa.   Hún myndi veita almenningi andsvar við ofríki stjórnvalda, upplýsingar um stjórnunarhætti og kjósendum gæfist kostur á að velja sína þingfulltrúa sjálfir.   Klári þingið ekki málið liggja ræturnar ekki í tímaskorti né minnihluta heldur einfaldlega vegna þess að þingmenn vilja ekki breytingar.   En auðvitað er þægilegra að koma fram og segja:  Ég myndi segja já.

    Skrifa athugasemd

  • GRÍMULAUS FRAMSÓKN

    7. mars 2013

           Framsóknarflokkur lagði til sáttatilögu um auðlindaákvæði á alþingi í dag.  Byggir það á auðlindaákvæði auðlindanefndar frá árinu 2000 sem hljómar svo:  


    Náttúruauðlindir og landsréttindi í þjóðareign má ekki selja eða láta varanlega af hendi til einstaklinga eða lögaðila. Þó má veita þeim heimild til afnota eða hagnýtingar á þessum auðlindum og réttindum gegn gjaldi, að því tilskildu að hún sé tímabundin eða henni megi breyta með hæfilegum fyrirvara eftir því sem nánar er ákveðið í lögum. Slík heimild nýtur verndar sem óbein eignarréttindi. 


    M.ö.o. vill framsóknarflokkurinn stjórnarskrávarinn eignarétt einkaaðila á nýtingu auðlinda í þjóðareign.  Sem þýðir á mannamáli að færa núverandi kvótahöfum arðinn af fiskiauðlindinni til eilífðar.  Hendum þessari sérhagsmunagrúppu á haugana í komandi kosningum, hún hefur ekkert með stjórnmál að gera og alls ekkert með almannahag.  


     




       

    Skrifa athugasemd