-
ER NUBO HAUSTBLÓM?
18. júlí 2012
Sú fyrirætlan að leigja kínverzkum fjársýslumanni Grímsstaði er langt komin. Meginbreytingin frá fyrri plönum sú að ekki er verið að selja landið heldur leigja til langs tíma. Sumir segja tímann reyndar svo langan að jafnist við ígildi eignaréttar. Það kemur í ljós en vert er að hafa eftirfarandi í huga: Innihald samningsins við Huang Nubo er ekki einkamál viðkomandi sveitastjórnarmanna og jarðeigenda. Alla þjóðina varðar um skipti af þessari stærðargráðu. Í samanburði þjóðanna eru kínverjar Sólin og við Plútó. Því læðist að manni hrollur þegar sveitastjórnarmenn setja samasemmerki á milli hótels tengt smáhýsum og byggingu 100 lúxusíbúða handa kínverzkum auðmönnum. Eitt er að leigja sér hótelherbergi, annað að kaupa sér hús. Enginn er auðmaður í Kína nema vera flokksbundinn kommúnisti og enginn ferðast í trássi við stjórnvöld. Það er því hægur vandi fyrir ráðamenn í Kína að beina straumnum til Grímsstaða ef vill. Auk þess eru kínverjar 4000 fyrir hvern íslending og búa yfir vinnuafli sem er miklu ódýrara þannig að barnaskapur væri að útiloka að kínverzkt þorp á Grímsstöðum gæti breyst í kínverzka borg. Þennan möguleika verður að ræða og ákvarðanatakan síðan að vera í höndum þjóðarinnar allrar. Minni á máltæki sem segir að bros í byrjun er eins og blóm að hausti.
Skrifa athugasemd
-
ÓHEILINDAKJÖR
10. júlí 2012
Fáheyrð ókurteisi! Aðdróttanir! Illmælgi! Gersamlega úr lausu lofti gripið! Atlaga að mannorði! Álíka upphrópanir eru gjarnan viðhafðar vogi einhver sér að efast um heilindi áhrifamanna í samfélaginu. Skilaboðin þau að þeir skuli hafnir yfir grun. Öðru gegnir þegar eftirlaun þessa aðila eru ákveðin. Þá eru launafríðindi langt umfram aðra þjóðfélagsþegna réttlætt með mútuþægni sem annars gæti orðið. Embættismenn njóta sem sagt sérkjara vegna gruns sem þeir eru hafnir yfir. Ég elska þetta land.
Skrifa athugasemd
-
HÆSTIRÉTTUR Í VANDA
4. júlí 2012
Boltinn sem hæstiréttur gaf upp með ógildingu kosninga til stjórnlagaþings rúllar nú áfram í kæru öryrkjabandalagsins vegna nýafstaðinna forsetakosninga. Vankantar á leynilegri kosningu og ójafnræði öryrkja blasa við, fordæmið frá í fyrra blasir við og nú sjá kannski fleiri hversu vitlaust var að ógilda stjórnlagaþingskosningarnar. Erfitt verður fyrir hæstarétt að draga kosningar í dilka eftir umfjöllunarefni þeirra en verði það engu að síður gert fróðlegt að sjá rökstuðninginn. Í tilfelli stjórnlagaþingsins sem og forsetakosninganna er augljóst að ógilding þjónar hvorki lýðræðinu né þjóðinni. Lýðræði sem æ hangir undir fallöxi lagatæknilegra atriða er dautt. Fólk verður að geta gengið að úrslitum vísum þrátt fyrir ágalla sem kunna að koma í ljós nema þeir breyti útkomunni. Í ljósi fáheyrðar framgöngu hæstaréttar varðandi stjórnlagaþingið er kæra öryrkjabandalagsins nú bæði eðlileg og skiljanleg. Fyrir þjóðina er þessi rúlletta hinsvegar sorgleg og enn ein rýringin á stoðum samfélagsins. Hæstiréttur má svo sannarlega skammast sín og staða hans rétt mátuleg.
Skrifa athugasemd
-
VALDHEIMILDIR OG FORSETINN
3. júlí 2012
Þó nokkrir hafa lýst yfir áhyggjum sínum vegna orða margendurkjörins forseta vors í dag. Þar kvað hann samþykkt nýrrar stjórnarskrár óvitlega í andrúmslofti ágreinings og sundrungar. Rétt er að ný stjórnarskrá hefur fetað sinn feril undir mikilli orrahríð. Hún á rót sína að rekja til þeirra afla samfélagsins sem hræðast aukna aðkomu þjóðarinnar að eigin málum. Landsmenn sjálfir hafa hinsvegar fagnað nýrri stjórnarskrá, frægur er þjóðfundurinn 2010 þar sem framtíðargrunngildi voru metin, gríðarleg vinna stjórnlaganefndar, skipuð færustu spekingum landsins á sínu sviði og loks smiðshöggið sem rekið var af þjóð- og þingkjörnu stjórnlagaráði. Þessi þrá þjóðarinnar eftir nýjum samfélagssáttmála gerði að verkum að verkið kláraðist. Samkvæmt eigin túlkun forsetans á nýafstöðnum kosningum á hann einmitt samleið með þessu sama fólki. Því hlýtur hann að vera að beina orðum sínum að stjórnsýslunni sjálfri, þ.e. Alþingi. Þar sé ágreiningurinn svo bullandi að ekki sé önnur leið fær en að þjóðin segi hug sinn til nýrrar stjórnarskrár í haust. Það hlýtur að vera forsetanum kappsmál sem þjóðarsætti að fá þar skýrt svar. Fyrir þjóðina skiptir þó öllu máli að gera sér grein fyrir að valdheimildir á hún hvorki að sækja til forseta né þings, því skal öfugt farið.
Skrifa athugasemd
-
SKAMMLÍFT VEIÐIGJALD
21. júní 2012
Samfylkingin vegsamar veiðigjald á sama tíma og sjálfstæðisflokkur boðar skaman líftíma þess komist flokkurinn til valda. Fyrir örfáum mánuðum básúnaði forsætisráðherra þann heilaga sannleik að ekki mætti glutra sögulegu tækifæri til að breyta stjórn fiskveiða. Nú liggur fyrir að tækifærinu var glutrað. Nýtt frumvarp um stjórn fiskveiða er tilgangslaust úr þessu, pappírtætarinn í Valhöll mun sjá til þess. Nema þessi vankaða þjóð vakni til vitundar um önnur mál en skemmtanagildið eitt. Kvótakerfi, stjórnarskrá, rammaáætlun og verðtrygging eru kannski ekkert sérstaklega aðlaðandi orð en ráðandi um þann veruleika sem við búum í. Sofandaháttur nú mun færa afmörkuðum hópi tögl og hagldir samfélagsuns um ókomna tíð. Ísland er gagnstætt flestum evrópuríkjum framtíðarland en ekki fortíðarland, safinn er enn ókreistur og því skiptir öllu að sú stefna sem nú verður mörkuð verði stefna allra en ekki örfárra. Það sem fjórflokkurinn býður upp á er skrípaleikur og ljóst að hann þarf hjálp í formi nýrra, utanaðkomandi þingmanna, því fleiri því betra.
Skrifa athugasemd
