Lýður Árnason

Lýður Árnason

Lýður Árnason, læknir og kvikmyndagerðarmaður. Bý í borg, sæki í sveit, barnmargur.

  • LÍFIÐ ER STJÓRNARSKRÁ

    31. ágúst 2012

    Mikið líf er að færast í stjórnarskrárumræðuna.  Tveir stjórnskipunarspekingar sem sátu í stjórnlaganefnd hafa sett saman sína eigin stjórnarskrá sem innlegg í umræðuna og einnig er von á stjórnarskrá sjálfstæðisflokksins.  Það virðist því töluverður einhugur um breytingar þó fólk vilji mislangt ganga.  Ný stjórnarskrá fer í þjóðaratkvæði í næsta mánuði en meginmið hennar er að svara ákalli þjóðfundar um aukna aðkomu almennings að samfélagsmálum.  Hún spornar þannig við samþjöppun valds og spillingu.  Í henni mun lýðræðið ekki bara njóta sín á kjördegi heldur vera aðhald og leiðbeining fyrir þingheim þess á milli.  Róttækar breytingar vissulega en verði ný stjórnarskrá stjórnlagaráðs og þjóðfundar gildandi getur Alþingi ekki haldið áfram þeirri óvissuferð sem er í gangi nema með samþykki þjóðarinnar.   Svo mikið er víst.

    Skrifa athugasemd

  • TVÆR ÞJÓÐIR

    22. ágúst 2012

    Skondin bréfaskipti á milli forseta og forsætisráðuneytis.  Forseti segir vinnuframlag handhafa forsetavalds svo lítið að fylgd til Keflavíkur og móttaka í Leifsstöð sé eina réttlætingin fyrir 280 þúsunda greiðslu á mánuði.   Ekki dettur stjórnsýslunni í hug að einfalda þetta valdaafsal og nota fjármunina í annað.  Æ augljósara er að í þessu landi búa tvær þjóðir.

    Skrifa athugasemd

  • AFNEMUM BANKALEYND

    21. ágúst 2012

    Gunnar Andersen, fyrrum forstjóri FME, er ákærður fyrir að ganga gegn bankaleynd og leka upplýsingum sem þó eru ekkert leyndarmál að sögn þess er varðar.  Vel má vera að þetta sé lögbrot en HVÍ Í ÓSKÖPUNUM AFNEMUR ALÞINGI EKKI LÖG UM BANKALEYND?  Öllum er ljóst að þau eru misnotuð til að hylja yfir fjármálagjörninga sem ekki þola dagsins ljós. Upplýsingaleynd þjónar ekki hagsmunum heildarinnar, hún er ígildi starfsleyfis þeim til handa sem einhverra hluta vegna þola ekki frjálsa og opna samkeppni.  Gildir það bæði um peninga og fólk.

    Skrifa athugasemd

  • FLOKKSRÆÐI EÐA LÝÐRÆÐI

    21. ágúst 2012

    Svanur Kristjánsson hélt erindi í gær á stofnfundi SANS, áhugafólks um nýja stjórnarskrá.  Þar sagði Svanur þjóðina í raun búa við ólýðræði en ekki lýðræði.  Benti hann á að hvorki gjafakvótakerfið né sala ríkisbankanna hefðu náð fram að ganga hefði þjóðin verið spurð.  Þessu hafi verið ýtt inn á borð almennings eins og vondum matseðli.  Fólk getur auðveldlega fundið fleiri dæmi um álíka stjórnarhætti, nefni áætlanagerðir, embættismannaveitingar og fylgispekt stjórnvalda við banka og hagsmunaaðila.  Í raun búum við við ólýðræði því kjörnir fulltrúar eru ekki val fólksins í landinu heldur matseðill flokkanna, take it or leave it.  Ný stjórnarskrá breytir þessu, hún færir fólkinu þau vopn, þau lýðréttindi sem þarf til að sporna gegn villuráfandi valdi, þ.e. valdi sem ekki gengur erinda heildarinnar.  Þann 20. október verður kosið um það hvort við viljum áframhaldandi flokksræði á Íslandi eða raunverulegt lýðræði.  Því er mikilvægt að fólk sitji ekki heima þann 20. október heldur taki afstöðu og nýti atkvæðisrétt sinn.  

    Skrifa athugasemd

  • Assange sekur eða heimsmyndin?

    19. ágúst 2012

    Skyldi Julian Assenge vera sekur um kynferðisbrot í Svíþjóð eða gjörningurinn uppdiktaður til að koma á hann höggi og framsali til Bandaríkjanna?   Hermaðurinn Manning sætir harðræði í varðhaldi sínu og talinn ógna þjóðaröryggi.  Pönksveit í Rússlandi hlaut þungan dóm fyrir ögrandi framkomu og mótmæli gegn Pútín.  Peningaöflin halda uppi vestrænni stjórnsýslu sem á móti viðheldur  viðskiptaumhverfi án ábyrgðar.  Birtingarmynd þessa er ágangur á eigin borgurum sem og auðlindum vanþróaðra ríkja.  Þessu hefur Wikileaks ráðist gegn með opinberun gagna sem afhjúpa mál sem valdamenn vilja í þagnargildi.  Því má ljóst vera að margir vilja þagga niður í Assange. 

    Skrifa athugasemd