22. ágúst 2012 › 02:19
Skondin bréfaskipti á milli forseta og forsætisráðuneytis. Forseti segir vinnuframlag handhafa forsetavalds svo lítið að fylgd til Keflavíkur og móttaka í Leifsstöð sé eina réttlætingin fyrir 280 þúsunda greiðslu á mánuði. Ekki dettur stjórnsýslunni í hug að einfalda þetta valdaafsal og nota fjármunina í annað. Æ augljósara er að í þessu landi búa tvær þjóðir.
