18. ágúst 2012 › 11:27
Íslendingar eru ekki blóðheit þjóð. Fremur hið andstæða enda þykkjan slík að úr verður langrækni og hefnd. Sögur forfeðranna sanna það. Fylgd forsetans til Keflavíkur og móttaka er nýjasta þrætueplið. Brotalínur verpast að vanda ekki um málefnið heldur hvar í flokki menn standa. Hvernig má búast við árangri um meginmál þjóðarinnar þegar fluguskítur vekur slíka heift?
