Lýður Árnason

Lýður Árnason

Lýður Árnason, læknir og kvikmyndagerðarmaður. Bý í borg, sæki í sveit, barnmargur.

ÓHEILINDAKJÖR

10. júlí 2012 › 17:45

Fáheyrð ókurteisi!   Aðdróttanir!   Illmælgi!  Gersamlega úr lausu lofti gripið!  Atlaga að mannorði!  Álíka upphrópanir eru gjarnan viðhafðar vogi einhver sér að efast um heilindi áhrifamanna í samfélaginu.  Skilaboðin þau að þeir skuli hafnir yfir grun.  Öðru gegnir þegar eftirlaun þessa aðila eru ákveðin.  Þá eru launafríðindi langt umfram aðra þjóðfélagsþegna réttlætt með  mútuþægni sem annars gæti orðið.  Embættismenn njóta sem sagt sérkjara vegna gruns sem þeir eru hafnir yfir.  Ég elska þetta land.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.