Lýður Árnason

Lýður Árnason

Lýður Árnason, læknir og kvikmyndagerðarmaður. Bý í borg, sæki í sveit, barnmargur.

STÖÐ TVÖ OG TVÖ Í EINU

4. júní 2012 › 01:35

 Ekki var reisninni fyrir að fara á sjómannadegi, ráðherra og sægreifi munnhöggvandi á bryggjunni og báðir úti á túni.  Fyrir kappræður forsetaframbjóðendanna var þáttur fremur en auglýsing um ágæti kvótakerfisins, kostaður af tryggingamiðstöðinni.  Angar virðast allsstaðar.  Endaleysan var þó toppuð af stöð tvö sem átti "versta innslag ever" í dagskrárgerð.  Þáttur forsetaframbjóðendanna var fjölmiðlaflopp sem verður lengi minnst.  Held flesta sammála útgöngu frambjóðendanna þriggja og gaman verður að fylgjast með næstu skoðanakönnun.  Af þeim sem eftir voru hélt Ólafur Ragnar sjó, Herdís sýndi að þar fer kvenskörungur, fas hennar og talandi sannfærði mig um það.  Þóra fékk hinsvegar mesta klappið úr salnum.  Spurning hvað það merkir.   En stöð tvö þarf að hugsa sinn gang, eitt er að ráða eigin dagskrárgerð, annað að gera það illa.  



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.