14. júní 2012 › 01:33
Vaðlaheiðargöng fengu brautargengi í þingsal í dag. Tæplega níu milljarða ábyrgðarlán frá ríkinu til opinberra aðila og þó er fyrirbærið flokkað sem einkaframkvæmd. Þingmenn svæðisins voru allir með þessum fjárútlátum, óháð flokkum. Enn og aftur fetar ríkisstjórnin þannig braut aukinna opinberra skuldbindinga með tilvísun í atvinnusköpun. Framundan er svo uppáhellingur sparisjóðs Keflvíkinga upp á 25 milljarða, lífeyrissjóðslán til byggingar háskólaspítala upp á 50 milljarða, Norðfjarðargöng, Dýrafjarðargöng, 1000 milljarða snjóhengja í Seðlabankanum og skuldavandi heimilanna. Eins gott að olían finnist.
