Lýður Árnason

Lýður Árnason

Lýður Árnason, læknir og kvikmyndagerðarmaður. Bý í borg, sæki í sveit, barnmargur.

LOSUM OKKUR VIÐ OK AFLANDSKRÓNA

26. maí 2012 › 12:29

Hverju sem líður aðildarviðræðum að ESB virðist ljóst að innganga Íslands er harla ólíkleg.  Að minnsta kosti sem stendur.  Þó krónunni sé hallmælt hefur hún verið okkar haldreipi í þeim öldudal sem nú ríkir.  Gengisfelling er ekki fagnaðarefni en hefur sem hagstjórnartæki viðhaldið samkeppnisfærni landsins við útlönd og gert landsmönnum kleift að halda uppi sæmilegum kaupmætti og atvinnu heima fyrir.  Að grikkir íhugi að slíta evrusamstarfinu segir líka sína sögu.  Fleiri ríki suður-evrópu standa frammi fyrir álíka vanda og raunar er framtíð evrunnar óljós.  Fláræði væri að ana inn í evrópubandalagið á þessum tímapunkti og meira vit í að nýta tímann til að koma okkar eigin hagkerfi á skrið.  Til þess þarf að losna undan gjaldeyrishöftum.  Leið Lilju Mósesdóttur sem vill skattleggja aflandskrónurnar er sú skársta að mínum dómi, hún losar um höftin og skriðunni er dreift.  Auðvitað mun þjóðin finna fyrir höggi en kosturinn við að losna undan þrýstingi aflandskróna mun fljótlega vega það upp.   Tel kominn tíma til að örva einkamarkaðinn hér innanlands og fylgjast með þróuninni í Evrópu úr fjarlægð um sinn.   Gleymum ei heldur að myntskipti kæmu mjög misjafnlega niður á fólki, lungi þjóðarinnar hefur engan aðgang að evrum og yrði léttur biti í munni hinna.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.