19. maí 2012 › 13:15
Versta arfleifð þessarar ríkisstjórnar yrði sú að koma afturhaldinu aftur í stjórnarráðið. Það yrði út af fyrir sig afrek í ljósi þess hve skammt er um liðið síðan einmitt þetta sama fólk kom hér öllu á hvolf. Hugmyndafræði hrunflokkanna hefur ekkert breyst og gengur fyrst og síðast út á að viðhalda eigin tengslaneti. Það skársta sem þessi ríkisstjórn getur gert er að nýta haustið til að spyrja þjóðina hvaða meginlínur eigi að gilda við stjórn fiskveiða sem og hvort henni hugnist ný stjórnarskrá. Þjóðarviljinn sem þá kæmi fram fylgdi nýrri stjórn hver sem hún verður og gæti haft úrslitaþýðingu. Þjóðarvilji er allt sem þarf.
