Vinnustaðurinn sem ber heitið alþingi íslendinga skrifast hér með litlum staf og er sú uppskera í samræmi við það sem niður fer. Órækt og illgresisvafningar vaða þarna uppi og kæfa þær fáu plöntur sem glatt gætu mannshjörtun. Hvert einasta mál þingsins virðist enda í kjafti stjórnarandstöðunnar sem bíður þess eins að ná yfirráðum á ný. Ný stjórnarskrá hefur ekki farið varhluta af þessum gripdeildum, mótbyrinn einkennst af hörku og heift. Sem er undarlegt því alþingi íslendinga hefur áratugum saman misfarist að semja stjórnarskrá og aldrei náð sátt um málið. Ennfremur má spyrja hvort rétt sé að alþingi formi sinn eigin starfsramma. Næstu dagar ráða úrslitum um hvort ný stjórnarskrá fari í þjóðardóm í haust. Andstæðingar þess vilja ræna þjóðina sjálfsagðri umsögn um útkomu þjóðfundar, stjórnlaganefndar og stjórnlagaráðs. Til þess nota þeir málþóf. Megi alþingi íslendinga forðast þá skömm og hvet ég þingmenn alla að leggjast á árarnar svo þjóðin geti sagt sína meiningu.
Blogg
aLÞINGI MEÐ LITLUM STAF.
16. maí 2012 › 00:25
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
